Góð vísa

27. febrúar 2010 | Rita ummæli

Margur bragur mjög vel gerður
magnar andans bál.
Þessi vísa þannig verður;
það er augljóst mál.

Sjaldan eru á jafnsléttu brekkur brattar.
Í brennandi húsi er illt að dvelja.
Víst eru fáir vinsælir skattar.
Varla er skuldir auðvelt að selja.

Málarar

4. febrúar 2010 | 1 ummæli

Ég gekk fram hjá miða sem á stóð: Nýmálað. Fór að hugsa um hversvegna maður sæi aldrei áletrunina: Ómálað. Færði það í tal við málarameistarann. Hann kvaðst ekki ansa mér nema ég gerði um þetta vísu. Ég gerði það:
Eitt er það við ykkar starf
sem ekki verður flúið;
merkja það sem mála þarf
og muna hvað er búið!

Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning