LOKSINS
Hanna 28. maí 2008
Fært undir Slúður | 3 ummæli »
Hanna 11. mars 2008
jæja hann kom loksins í gær, 10 mars
heilbrigður og fallegur
Hann er svo pínu lítill, krúttlegur og alveg eins og kjartan
annars þá ætlaði ég bara að láta vita
sjáumst
Fært undir Slúður | 6 ummæli »
Hanna 9. mars 2008
ekkert bólar á barninu! settur dagur var á fimmtudaginn. Ingibjörg er búin að reyna allt ( borða stekaran mat, langir göngutúrar, ferskur ananas :o? ) en ekkert barn. Ég er farin að halda að ég sé spenntari en verðari foreldrar, því það er helgi og ég vakna ÁTTA? fer niður og spyr frétta.. “er eitthvað að ske, komin með verki?” og alltaf sama svarið “nii ekki neitt” ég fer svo upp aftur svekkt og fer aftur að sofa.
Helgin var ágæt, fór í tvö dinner boð
mmmm stelpurnar eru svo klárar að elda
á föstudaginn fór ég í fyrsta skiptið heim til ástrósar, sem btw er í krúttlegasta svefnherbergi sem ég hef séð!! með SÉR baðherbergi inni herberginu sínu! næs! Ástrós eldaði geeðveikt gott lasagne með hrísgrjónum og hvítlauksbrauði!
á laugardeginum fór ég svo heimt til petru í dinner. og guð minn góður hvað það var gott! kjúklingabringur, hrísgrjón, maís, ferskt salat og svo sósa að hætti auðar sem er OF góð!
bæði kvöldin kom ég mér heim fyrir tólf, þorði ekki í bæinn ef eitthvað skildi ske
en jæja, á morgun 10 mars held ég að barnið komi! getur ekki verið að það láti bíða svo lengi eftir sér!!
þangað til næst sjáumst.
Fært undir Slúður | 3 ummæli »
Hanna 5. febrúar 2008
jæja ég lofaði bloggi, sennilega smá misskilningur í fólki ( siggu frænku og anítu ) ég lofaði ekki bloggi fyrsta feb! :p en hvað um það
Ég átti æðisleg jól, eitt besta jólafrí mitt hingað til. Mæli með myndum á síðunni minni, þær segja allt.
3. janúar kom ég svo aftur út, það var ótrúlega erfitt, hefði alveg verið til í að vera aaðeins lengur
en svo er bara janúar búinn að líða. Hann var ekkert spes, bara leiðinlegt veður og kuldi! semsagt uppskrift á þunglyndi.
Núna er komin febrúar og það sem búið er að líða af honum er búið að vera geðveikt gaman
ég bloggaði um helgina hér þetta var algjör snilldar helgi, Þorvaldur og Jónas komu í heimsókn.
og næstu dagar og mánuður fer svo bara í að undirbúa komu litla barnins, man ekki hvort ég sé búin að minnast á það en Ingibjörg er semsagt ólétt og litli engillinn kemur núna í byrjun mars
ég er orðin svo spennt! þannig að febrúar verður mjög fljótur að líða og hvað þá mars, því þá verður barnið komið, og svo koma páskar og þá kemur haukur. Við ætlum að fara í smá ferðalag uppí norður skotland, gista á hóteli og hafa kósý
þetta er komið í bili
sjáumst
Fært undir Slúður | 4 ummæli »
Hanna 15. desember 2007
Var að koma af íslensku jólaballi
já þið heyrðuð rétt, Limma íslensk kona hérna úti hélt eitt stykki jólaball og íslenska jóla messu í KASTALANUM sínum áðan
alveg ótrúlega flott og kósy.. Vorum þarna alveg svona 30-40 íslendingar, sungum jólalög, hlustuðum á prest, dönsuðum í kringum jólatréð ;), drukkum heitt kakó og fengum kökur, fengum íslenskan jólasvein í heimsókn og börnin litlu fengu pakka :D…
Er búin að setja inn myndir hér og svo skellti ég líka inn myndir af göngutúr sem við Kjartan fórum í gær hér.
Í kvöld ætlum við stelpurnar út á djammið, eitt svona loka 2007
þar sem þetta er líklegast seinasta því við erum allar að koma heim á fimmtudaginn
en jæja farið varlega í óveðrinu þarna heima á klakanum ;*
sjáumst
17. des - ( nenni ekki að koma með nýja færslu )
Það var svo ótrúlega gaman í gær! ég hef ekki helgið, dansað og skemmt mér jafn mikið í mjög langan tíma
ætla ekki að segja meira frá því.. hér eru myndir og þær segja allt sem segja þarf
sjáumst
Fært undir Slúður | 5 ummæli »
Hanna 9. desember 2007
Dagarnir hérna úti eru svo fljótir að líða, áttaði mig ekki á því fyrr en áðan að það er næstum mánuður síðan ég bloggaði seinast! þannig að ég held ég skuldi ykkur eitt stykki blogg.
25. nóvember kom haukur lokins í heimsókn
reyndar eftir mjög mikla seinkun og mikið bras. Hann var hjá mér í 11 daga og það var svo gaman! Við gerðum ýmislegt, svosem fórum á fótboltaleik heart vs celtic (held að það hafi staðið mest uppúr) versluðum
fórum út að borða, fórum á djammið með stelpunum
héldum uppá afmælið hans, fórum í parísarhjól, fórum nokkrum sinnum í winter wonderland :p en mest allann tíman vorum við bara heima og höfðum kósý
Við á afmælisdeginum hans
Í gær sá ég lokins snjó
en reyndar ekki lengi því þetta var bara smá slabb í svona korter.. en þetta kom mér samt í smá jólaskap, sérstaklega þar sem ég var að versla jólagjafir þegar hann kom
og svo í dag tókum við ingibjörg stofuna í gegn og skreyttum hana :p ég elska jólin og ég hlakka svo til að koma heim. en annars þá hef ég voða lítið að segja ykkur, er að fara út að borða með Petru minni og Maríu
ætla að enda þetta á mynd af flotta jóladagatalinu mínu sem ingibjörg gaf mér
( er svo búin að setja fullt af myndum hér)
jæja bókstaflega eftir 11 daga
Sjáumst
Fært undir Slúður | 5 ummæli »
Hanna 11. nóvember 2007
18. okt, þá bloggaði ég seinast, búin að gera margt síðan þá..
Ég er búin að fara nokkrum sinnum í bíó, mér finnst gaman að fara í bíó hérna.. gott popp
Haukur kemur til mín eftir aðeins tvær vikur ég get varla beðið! Ég hlakka svo til að taka á móti honum á flugvellinum, svona alveg eins og í bíómyndunum
og svo ætla ég að láta hann skoða margt, ég er nebbla búin að spara að fara og sjá margt, t.d Kastalana er ekki enþá búin að fara og sjá þá, og svo eitthvað annað.. það hlítur að vera fullt sem ég á eftir að sjá.. ég bý nú í Edinborg.
annars hef ég voða lítið að segja frá, ég er búin að setja inn fullt af nýjum myndum
sjáumst
Fært undir Slúður | 6 ummæli »
Hanna 18. október 2007
fór í bíó í gær á Stardust! og guð minn almáttugur, hún er bæði rómantísk, spennandi, fyndin ooog það eru hot gellur og gaurar
annars er lítið að frétta af mér.. lífið gengur bara og gengur, hver vika inniheldur það sama, passa, þrífa, hitta stelpurnar, villast í strætó og bara hafa það næs ;) reyndar var og verður þessi vika ekki eins og hinar því kjartan er í haustfríi. Við erum búin að bralla allskonar, fórum á mánudaginn niðrí bæ að hitta auði og stelpurnar hennar, kjartan var að hitta þær í fyrsta skiptið ooggg leist alveg vel á, en sagði mér samt þegar þær voru farnar “hanna þær eru rosalega miklar stelpur”
Svo fórum við kjartan og kíkkuðum í nokkrar búðir því það kom allt í einu uppúr þurru hellirigning. Við fórum í nokkrar dvd búðir ( það eru til ALLIR þættir á dvd og allar seríur hérna fyrir engan pening ) og svo fórum við í eina fatabúð og þar bað ég kjartan að hjálpa mér að finna eitthvað á hauk. Honum leist mjög vel á það og fór um alla búð og benti mér á dót, en það var svo þegar ég sýndi honum bleikan bol og segi við hann að mér langi að gefa honum hann. Kjartan missti andlitið og sagði svo “ég myndi ekki gera þetta, þú er miklu minni en Haukur og hann myndi “smash you to pieces” ef þú gæfir honum þetta.”
svo á þriðjudaginn fórum við í Waterworld með Auði og stelpnum og svo Petru og Helgu. Það var mjög gaman, reyndar hálf kjánlegt að sturta sig með ÖLLUM.. og það í sundfötunum og svo klæða sig bara í pínulitlum klefa með kannski karlmann við hliðiná þér.
Svo í gær var pabbi hans kjartans í fríi þannig að ég fór bara og hafði kósý dag með maríu :p pöntuðum okkur klippingu
loksins ! Annars þá held ég láti þetta nægja, er að fara heim til maríu í kvöld í smá hvítvín
vinkona hennar var að koma frá íslandi :p
sjáumst
Fært undir Slúður | 8 ummæli »
Hanna 8. október 2007
Jæja.. hér er ég, en á lífi og en í skotlandi
Það er alveg fullt búið að gerast síðan ég bloggaði seinast
Annars ætlaði ég bara að blogga um gærkvöldið! og það var mjög skemmtilegt, en svona dálítið kjánlegt
Það byrjaði þannig að ég og María ákváðum yfir hádegismatnum í gær að hittast allar au-pair stelpurnar (erum fjórar) um kvöldið og horfa saman á Scotland Argentina í rugby, og þetta var mjög mikilvægur leikur þannig að við lögðum tvo og tvo saman og ákváðum að bærinn yrði þá fullur af fólki.. og fullur af sætum strákum í skotapilsum
Ég og María meira að segja keyptum okkur boli merkta Scotland
Við töluðum við petru og auði og þær voru meira en game
Svo kom kvöldið, við mættum snemma til að fá sæti við borð, því við ætluðum að fá okkur að borða. Við fengum ógeðslegan hamborgara, og feitar franskar.. allt í góðu, svo byrjar leikurinn og verð ég nú að segja að fótboltinn höfðar betur til mín
ég eiginlega skil ekki reglurnar í þessu.. Þetta var samt frekar spennandi leikur, eða svona í endan þegar ég loksins skildi hvernig þeir skora og þá gat ég nú fylgst með og scotland tók þetta næstum því, en klúðraði á seinustu mínótu og við töpuðum
þannig að, maría reif sig úr bolnum af skömm, en heimska hanna var ekki í bol innan undir þannig að hún neyddist til að vera í bolnum ;)..
Eftir leikinn ákváðum við að fara á annan stað þar sem væri tónlist og svona.. Við fórum á stað sem var rétt hjá, en þar voru því miður bara 4 manneskjur. Þannig að við spurðum dyravörðinn um einhvernstað þar sem væri nú fólk :p hann vísaði okkur á einhvernstað lengst í burtu.. eða allvega svo langt að við tókum taxa ;) Þegar við komum svo á staðin var BIÐRÖÐ… á sunnudegi ! og allir í sínu “fínasta” djamm dressi ! neinei þá bara vorum við komnar á þennan þvílíka skemmtistað þar sem greinilega skiptir ekki máli hvaða dagur er!
Við ákváðum að fara bara inn, vorum alveg hressar og nenntum ekki heim
En í biðröðinni fatta ég eitt.. ég var í fótboltatreyju! og miðað við liðið í kringum mig.. nei ekki að gera sig, þannig að ég fór inní kápunni minni, og var bara í henni
var svolítið hrædd um að vera bara rekin út fyrir ósnytilegan klæðnað :p en svo þegar líða tók á kvöldið var mér orðið svo heitt þannig að ég bara tók sénsinn, fór úr og við fóum að dansa..
Bretar eru mjög skrítið fólk. Breta stelpur þær klæða sig helst í sem minnst. Á dansgólfinu var hver ein og einasta bresk stelpa hálf nakin! þær klæðast aldrei í skokkabuxur og eru aldrei í jökkum eða peysum.. það bara er ekki til í þeirra orðaforða! og svo bretastrákar. Ef við tókum upp myndavélina þá leið ekki langur tími þangað til að einhver strákur stökk uppá bakið á þér, tók utanum þig, lét eins og besti vinur þinn og lét þig svo taka mynd á sér
jájá voða gaman fyrst, en þegar þetta var farið að vera svona allt kvöldið, og allt frekar mjög ómyndalegir strákar.. þá færðu fljótt ógeð af þessu
En jæja þetta er orðið aðeins lengri færsla en ég ætlaði mér
efast um að einhver eigi eftir að lesa þetta allt
en allvega myndir frá kvöldinu í gær eru hér . þangað til næst
Sjáumst
Fært undir Slúður | 9 ummæli »