Fiskur tvö. 17. september 2008
Fært af helgilistamadur undir Óflokkað. 1 ummæli fram að þessu
Fiskarnir eru búnir að vera upp á borði hjá mér síðustu mánuði en nú er fiskur númer tvö tilbúinn og hann hefur fengið nafnið “Frónbúi Fjallableikja”. Annars er ég mjög ánægður með þær heimsóknir sem ég hef fengið á síðuna og vona að allir hafa gaman af.
Kveðja Helgi v.
Fossbúi. 12. júlí 2008
Fært af helgilistamadur undir Óflokkað. 5 ummæli 
Hér er nýjasta verkið mitt komið upp á vegg en það heitir Fossbúi.
Fleyri myndir 1. október 2007
Fært af helgilistamadur undir Óflokkað. 2 ummæliÉg er að vinna í að fjölga myndum á netinu. Myndir af sýningunni í nóvember verða þar á meðal. Ég hef ekki tök á því að svo stöddu að setja sýninguna sem slíka inn á netið í bili en hef hugsað mér að vinna nánar að því. Við sjáum hvað setur.
Myndirnar mínar
Fært af helgilistamadur undir Óflokkað. 1 ummæli fram að þessuNú er loksins búið að setja texta undir myndirnar mínar og því hægt að lesa hvaða merkingu ég set við hverja þeirra. Í Danmörku er nú frábært veður og ekkert annað að gera en að brosa út að eyrum.
Sýningin í nóvember 19. september 2007
Fært af helgilistamadur undir Óflokkað. 1 ummæli fram að þessuSyningin mín í Nóvember byrjar þann 9. nóv milli 1400 og 1700
Hún er haldin í litlum sal í Flugger málningavöruverslun í Ballerup.
Nákvæmlega: Centrumgade 20
2750 Ballerup
Danmark.
Hlakka til að sjá sem flesta.
Ný sýning í nóvember 13. september 2007
Fært af helgilistamadur undir Óflokkað. 1 ummæli fram að þessuÉg er að undirbúa nýja sýningu sem haldin verður í nóvembermánuði, nánari upplýsingar um stað og stund fljótlega.
Fullt af nýjum myndum 5. september 2007
Fært af helgilistamadur undir Óflokkað. 1 ummæli fram að þessuNú hef ég sett mikið safn af verkum hérna inn á heimasíðuna. Ég er að vinna í því að uppfæra heimasíðuna eins mikið og ég get þessa dagana til að fá sem flesta til að kíkja í heimsókn. Ég vona að þið hafið gaman af því að skoða verkin mín og þróun mála hér á þessari heimasíðu.
Kveðja Helgi V.
Fyrsta heimasíðan mín 4. september 2007
Fært af helgilistamadur undir Óflokkað. 2 ummæliJá nú er þetta allt farið að taka á sig mynd. Það er skrítið að vera kominn með heimasíðu sem fólk getur skoðað án þess að tala við mig eða hitta mig á annað borð. Á næstu dögum mun ég fara að setja inn meira af hugsunum mínum og miðla þannig því sem brennur mér á hjarta. Fleiri myndir eftir mig eru einnig væntanlegar inn á síðuna og einnig meira af uppýsingum um þá vinnu sem á sér stað í Köpen síðustu daga og mánuði.
Endilega sendið mér comment.
Listasýning í Köpen 2. september 2007
Fært af helgilistamadur undir Óflokkað. rita ummæliUm síðustu helgi var haldin sýning á mínum vegum í Kaupmannahöfn. Allir voru sammála um að sýningin hafi tekist mjög vel í alla staði og er hægt að nálgast myndir af þessum atburð hér á heimasíðunni. Vegna fjöld áskorana hef ég ákveðið að byrja með þessa heimasíðu og miðla þannig mínum verkum og hugsunum til þeirra sem hafa áhuga.

