Húrra fyrir pulsugerðarmanninum.

/ / hemmi

Hemmi þreytturÞað styttist í 28 ára afmælisdaginn minn. Ég sumsé verð 28 ára 22. febrúar, eða á morgun miða við hvenær þetta er ritað. Hingað til hef ég bara vitað um einn mann sem á sama afmælisdag og ég, það er hinn frægi skátahöfðingi, Baden-Powel. Hann var fæddur 1857 sem er langt síðan. Ég fór því á stúfana og uppfærði listann minn. Hér eru þau afmælisbörn sem mér finnst þess virði að minnast á.

Jenna Haze - Klámmyndastjarna fædd 1982.

Drew Barrymore - Barnastjarna fædd 1975.

James Blunt - Bluntarinn verður að fylgja með enda fáranlega fallegt kvikindi, 1972.

Brian Laudrup - Danska fótboltastjarna, 1967.

Steve Irwin - Ástralski ofurhuginn sem lét skötu stinga sig til dauða, fæddur 1962 d. 2006.

George Washington - Fyrsti forseti bandaríkjana fæðist 1732.

Og svo gerðist ýmislegt skemmtileg:

1997 - kindin Dolly var klónuð

2006 - 6 bankaræningjar stálu yfir 800 milljónum króna úr “höndum” Securitas.

Endilega commentið ef þið munið eftir einhverju hressandi eða þið sjálf eigið afmæli.


Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning