Jólabjórarnir 2009
Henry Birgir 21. nóvember 2009
Undirritaður hefur lagst í mikla rannsóknarvinnu svo þið vitið hvaða Jólabjóra á að drekka í ár. Ég hef ekki Tuborg Julebryg í þessum dómi enda eiga allir að vita að sá bjór er rakinn snilld sem klikkar ekki.
Til að Jólabjór sé vel heppnaður þarf margt að smella. Bjórinn þarf að hafa karakter og umbúðirnar þurfa að vera vel heppnaðar og helst hátíðlegar. Allt er þetta hluti af upplifuninni af því að drekka Jólabjór. Stemningin verður að vera í lagi. Þess vegna er einnig rýnt í umbúðir.
9. sæti: Hvítur Royal X-mas, 5,6%.
Það er sagt að þessi bjór hafi léttan og blíðan karakter. Horseshit!! Hann er vissulega léttur en bragðið er biturt, eftirbragðið vont og það er í rauninni óbragð af þessum bjór. Já, hann er vondur.
Það er nákvæmlega ekkert jólalegt við umbúðirnar og bjórinn lyktar af metnaðarleysi. Þessi bjór er eitt stórt járnbrautarslys og ÁTVR ætti í raun að greiða með bjórnum í stað þess að rukka fyrir hann.
Ekki koma nálægt þessu helvíti.
8. sæti: Albani, 7,0%.
Það er lítið bragð af þessum bjór og hann er karakterlaus. Hann er samt ekki jafn vondur á bragðið og hvíti X-masinn. Bragðið gleymist fljótt en þú manst þó að þig langar ekki í annan Albana.
Eftirbragðið versnar eftir því sem neðar er komið í bjórinn og maður er í raun kominn með æluna upp í háls á síðustu sopunum. Umbúðir minna meira á páska en jólin.
Hann fær þó plús fyrir að vera 7 prósent.
7. sæti: Dökkur Royal X-mas, 5,6%.
Stendur á dósinni að þetta sé bjór með dýpt og karakter. Aftur horseshit. Það er sama viðbjóðsbrag af þessum og hinum dönsku en þessi er þó skástur. Ekki góður samt.
Allir þessir þrír verstu bjórar eru í dós sem er náttúrulega bannað. Jólabjór á að vera í flösku. Bar þó virðingu fyrir bjórunum og hellti þeim í uppáhaldsbjórglasið mitt. Það skilaði engu.
Þessa þrjá bjóra ber að varast. Þeir eru allir ódrekkandi.
6. sæti: Egils Jólabjór, 4,8%.
Þessi veldur vonbrigðum. Lítil lykt og nánast enginn karakter af bragðinu. Er fullflatur. Þessi bjór er það sem við köllum ódýrari týpan.
Umbúðirnar eru einnig af ódýrari gerðinni. Þessi bjór er eins og Carlsberg, hann er fyrir Bolinn sem gerir litlar kröfur til bjórsins síns.
5. sæti: Egils Maltbjór, 5,6%.
Það er meiri metnaður í þessum bjór frá honum Agli. Sterkt bragð, mikill karakter en bragðið þó ekki yfirþyrmandi.
Umbúðirnar eru lítilfjörlegar og frekar gamaldags. Þær eru óaðlaðandi sem er mínus. Ágætis bjór samt.
4. sæti: Víking Jólabjór, 5.0%.
Milt bragð, fín fylling og karamellubragðið er hæfilegt. Gott eftirbragð. Vel heppnaður bjór en kannski aðeins of einfaldur. Hann ögrar ekki bragðlaukunum nóg. Vantar meiri karakter í hann. Góður samt.
Umbúðirnar lítt aðlaðandi og mætti leggja meiri metnað í þær. Styrkleikinn veldur einnig vonbrigðum.
3. sæti: JólaJökull, 6,0%.
Sterkur og mikil fylling. Lítið eftirbragð. Lyktar vel og er það sem ég kalla sælkerabjór. Metnaðarfullur bjór sem er gott að njóta en á ekki að slafra í sig eins og Carlsberg.
Umbúðirnar vel heppnaðar. Klassabjór.
2. sæti: JólaKaldi, 5,4%.
Ekki of þungur en samt fín fylling. Bjór með miklum karakter. Þeir kunna að brugga þarna fyrir norðan.
Umbúðirnar einstaklega smekklegar og vel heppnaðar. Mikil hátíðarstemning í þessum bjór, að innan sem utan.
1. sæti: Reyktur Bock frá Ölvisholti Brugghúsi, 6,5%.
Þetta er hinn fullkomni jólabjór, það er bara þannig. Maltið í bjórnum er þurrkað í reyk og fyrsti sopinn minnti aðeins á hangikjöt. Fyrsti sopinn sló mann, gríðarlegur karakter og kom á óvart. Maður varð að taka fleiri til átta sig betur á bjórnum. Hann ögrar manni sem er snilld.
Ákveðið, sterkt maltbragð og afar bragðgóður. Eftirbragðið ljúft.
Þetta er algjör sælkerabjór, bjór sem á að njóta. Maður drekkur ekki marga í röð af þessum. Hann er spari.
Umbúðirnar líka stórkostlega vel heppnaðar og mikill metnaður í umbúðunum rétt eins og bjórnum. Þar er útskyrt að bock þýði geit meðal annars og myndin síðan af jólasveini á geit með hangilæri í hendinni. Súmerar upp bjórinn og þá stemningu sem hann stendur fyrir. Vel heppnuð mynd og afar virðingarvert að láta sögu bjórsins fylgja með. Svona á að gera þetta.
Get ekki mælt meira með þessum bjór.
Annars er ánægjulegast hvað íslensku bjórarnir koma vel út fyrir utan Egils-sullið.
Fólki er óhætt að kaupa Reykta Bockinn, JólaKalda, JólaJökulinn, Viking og svo að sjálfsögðu Tuborg Julebryg. Það eru bjórar sem munu ekki svíkja yfir hátíðina.
Gleðilega hátíð.
Fært undir Alþjóðamál | Engin ummæli »
Þingeysk hógværð í sinni tærustu mynd.











