Hugleiðingar Húsvíkings

Færslur apríl, 2007

A heimleid

Fært af Henry Birgir þann 30. apríl 2007

Jaeja, saelan a enda. Typiskt ad besta vedrid se tegar heim er farid. Oh well. Frabaer ferd engu ad sidur sem stod vel undir vaentingum.

Sjaum Barca merja Levante a Camp Nou í gaer, hrikalega slakir samt. Saga af teirri ferd a morgun.

Erum a hoteli ad ganga fra sidustu hlutunum adur en haldid er heim a leid.

Meira a morgun.

Fært undir Íþróttir | 4 ummæli »

Boladagur í Barcelona

Fært af Henry Birgir þann 28. apríl 2007

Skrautlegur dagur ad baki. Byrjad i “meirihattar” versunarferd hja konunni en tadan var haldid i Mekka, Camp Nou. Gamall draumur tar ad raetast. Boladi edlilega yfir mig og for i touristaferd um vollinn sem var storkostlegt. Verdur magnad ad koma a sama voll a morgun plus 100 tusund manns.

Ferdin var hressandi. Einna mesta athygli vakti kapella i gongunum rett adur en gengid er ut. Haegt ad spjalla vid himnafodurinn rett fyrir leik. Heidursstukan var taegileg en bladamannastukan var ohugnaleg. Taer snilld en ekki fyrir lofthraedda menn eins og mig. stukan er nanast yfir vellinum og gler nidur ad fotum. Myndi ekki lifa af leik tarna.

Vid hjonin boludum svo yfir okkur med Meistaradeildarbikarinn, fengum mynd sem og af okkur med “Messi” og “Ronaldinho” a vellinum. Frekar fyndin mynd. Bola henni kannski hingad vid taekifaeri.

I kjolfarid var haldid beint i handboltahollina sem er nokkrum metrum fra. Saum tar bradskemmtilegan leik Barca og Granollers. Barca a rassgatinu tar til seinni hlutann i sidari er storlidid sigdli fram ur. Ahorfendur hressir og tok ogleymanlegt video af furdulegasta og biladasta manni sem eg hef sed a itrottaleik. Sa var klikkadur. Vid hlogum svo mikid ad ekki minna en tveir menn hotudu ad lemja okkur hjonin ef vid haettum ekki. Tad var lika fyndid…. allavega eftir a fannst konunni.

Godur dagur a Camp Nou ekki onytt af fara tangad annad kvold.

Nu er tad nidur a strond i mat. 4Cats var fullt i gaer og komumst ekki tvi midur. Fengum samt ageatan mat a stad vid hlidina.

Tetta var finn boladagur. Naudsynlegt ad halda tengslum vid bolinn i ser reglulega.

Bolakvedjur fra Barca

Fært undir Íþróttir | 1 ummæli »

Stemning i Barca

Fært af Henry Birgir þann 27. apríl 2007

Ferdalagid til Barca var fulllangt og ekkert serstaklega skemmtilegt. Leifsstod tekid breytingum og medal annars buid ad fjolga bordum. Hef adur sagt og stend vid tad eftir breytingarnar ad vandinn la ekki i fjolda afgreidsluborda heldur fjolda starfsfolks. Allt of litid af folki ad tekka inn og engin breyting nuna tratt fyrir tvofoldun afgreidsluborda.

JFK er eins og flugvollurinn a Kopaskeri midad vid Leifsstod en tad tarf ad syna vegabref er madur fer a WC í Kef. Alveg med olikindum. Hvada hrydjuverkamenn hafa annars farid i gegn Kef. Aveg otolandi. Matarstodum og borum ekki fjolgad og tad tekur halftima ad fa einn bjor. Meirihattar alveg.

Flugid var ekkert piknikk heldur. Flogid med JetX sem Heimsferdir lata fljuga fyrir sig. Velin ok, flugfreyjurnar allar af vilja gerdar en of faar og haegar i snuningum. Voru nanast alla fjora timana ad rulla vagninum eina leid. Bestu samlokurnar bunar eftir tiu radir og afengid klaradist einnig i velinni en haft skal i huga ad fartegar vatnslasudu vel og meirihlutinn sem var rigfullordid folk var a skallanum tegar nalgadist lendingu. Hressandi.

Tad var bodid upp a flugdolg sem var afar hressandi en hann hentist a milli saeta og vard sidan astfanginn af einni flugfreyjunni. Reyndi ad kyssa hana i tima og otima vid miklar vinsaeldir flugfreyjunnar og katinu fartega. Verulega hressandi. Of sjaldan sem madur ser godan flugdolg.

Bolurinn var med i ferdinni og lenti i einum a midri leid en sa vildi fara yfir malin og tad itarlega. Hann var samt hress og alltaf naudsynlegt ad hitta godan bol.

Eftir flug tok oratima ad komast upp á hótel og ekki komin inn a herbergi fyrr en 1 um nottina.

Dagurinn i dag gódur, fint vedur og mikid labbad. Nu er tad 4Gats sem Ívar vinur minn maelti med. Treysti honum enda tekid margar godar steikur saman a ferdum erlendis sem Pall Alfredsson hefdi nu ekki verid hrifinn af. Hann vill hafa okkur i graenmetinu. Hvad um tad.

4Gats er malid. Farinn. Adios.

Fært undir Íþróttir | 2 ummæli »

Farinn til Barcelona

Fært af Henry Birgir þann 26. apríl 2007

Á leið í verðskuldað frí. Barcelona er áfangastaðurinn og betri helmingurinn fær aldrei þessu vant að fljóta með en gríslingarnir verða eftir heima.

Engu að síður verður reynt að njóta íþróttalífs Barcelona til hins ítrasta og stefnan sett á handboltaleik Barca og Granollers á laugardag og knattspyrnuleik Barca og Levante á sunnudag. Helvíti leiðinlegt.

Konan ekki alveg jafn áhugasöm um leikina en samt spennt fyrir knattspyrnuleiknum enda þarf fólk ekki að hafa áhuga á fótbolta til að njóta stemningarinnar á Nou Camp þar sem 100 þúsund manns mæta á leiki.

Ekki viss um að boðið verði upp á rýni um aðstöðu og umgjörð en ætla samt að reyna að skoða blaðamannaaðstæður á báðum stöðum. Áhugavert að sjá hvernig stórlið búa að blaðamönnum. Efa ekki að aðstaðan verður flott á Camp Nou en spurning hvernig handboltahöllin kemur út. Hef heimsótt Ciudad Real og það félag tekur ákaflega vel á móti fjölmiðlamönnum.

Mun reyna að uppfæra þessa síðu eitthvað á meðan ég er úti, svona mitt á milli þess er ég reyni að hækka bréfin hjá Brugal.

Fært undir Ferðalög | 7 ummæli »

Búið að semja um úrslit?

Fært af Henry Birgir þann 25. apríl 2007

Sá einhverja furðulegustu auglýsingu sem ég hef lengi séð í sjónvarpinu áðan. Þar var meistari Sammi að auglýsa beinar útsendingar frá oddaleikjum í deildarbikarnum í handbolta á laugardag og sunnudag.

Það sem eðlilega vekur mesta athygli er sú staðreynd að ekki er víst að það verði neinir oddaleikir um helgina. Leikir eitt eru aðeins búnir í öllum rimmum og það ræðst fyrir helgi hvort það verði einhverjir oddaleikir yfir höfuð.

Furðulegt.

Ætli það sé búið að semja um úrslit í næstu leikjum? Hefur Sammi tryggingu fyrir því að það fari fram oddaleikir?

Spyr sá sem ekki veit.

Fært undir Íþróttir | Engin ummæli »

Jón L. gekk ekki út

Fært af Henry Birgir þann 25. apríl 2007

Eiginhandaráritun skáksnillingsins Jóns L. Árnasonar verður áfram í minni varðveislu þar sem enginn rambaði á rétt úrslit með markaskorurum í leik kvöldsins þar sem “heilt” mark var skorað. Ekki er ljóst hvort Jón L. verður aftur í boði þar sem ótrúleg gredda í áritunina býður klárlega upp á e-bay sölu.

DV-menn voru naskir á lokatölur og tveir þeirra með réttar lokatölur líkt og hornaundrið Gaui Drengs sem ku hafa sett sjö snuddur í kvöld. Markamet þar á ferðinni og því spáð að Gaui leggi skóna á hilluna í kjölfarið. “Ekki annað hægt en að hætta á toppnum. Ég geri ekki betur en þetta,” sagði Gaui í léttu spjalli við Eirík húsvörð í Digranesi eftir leik. Allir skitu á sig með markaskorara og þurfa því að heyra í Lexa með pappír.

Annars stóð leikurinn undir væntingum og falsvonir í upphafi leiks þar sem talsvert fjör var í leiknum blekkti engan. Eftir markið gerðist sama sem ekkert og ekki eitt dauðafæri leit dagsins ljós. Skot utan teigs var allt og sumt sem var á matseðlinum á Stamford Bridge. Meiriháttar.

Úrslitin er þess utan ávísun á enn varnarsinnaðri og leiðinlegri leik er liðin mætast eftir viku. Get ekki beðið.

Ég og BB tókum Sopranos fyrir leik þar sem Old Raunchy gaf Digranesaranum eftirminnilegan hárblástur. Klárlega tilþrif kvöldsins.

Annars er ég hress enda kominn í stutt frí. Helvíti leiðinlegt.

Fært undir Íþróttir | 1 ummæli »

Fyrsti vinningshafinn

Fært af Henry Birgir þann 25. apríl 2007

Staupi og Ótthar

Það hlaut að koma að því að fyrsta eiginhandaráritunin gengi út enda hafa menn hreinlega slegist um þær. Sá getspaki er góður drengur að nafni Guðjón Guðmundsson og skrifar á síðuna undir nafninu Staupi og það ekki að ástæðulausu. Maðurinn ætti í raun að bera millinafnið Jever. Hann er einnig gallharður Víkingur og aðalmaðurinn hjá Berserkjum. Mynd af okkar manni uppdressuðum kemur síðar.

Áritun Higgins

Staupi hjó ansi nærri réttum úrslitum í leik KR og Njarðvíkur og hlaut að launum áritun breska vöðvatröllsins Mark Higgins sem fór á kostum á Landsmóti UMFÍ árið 1987 sem fram fór á Húsavík. Hugsanlega sá eini sem á slíka áritun á Íslandi í dag og slíka hluti er ekki hægt að verðleggja.

Meðfylgjandi mynd er frá hátíðlegri athöfn í Skaftahlíð fyrr í dag er áritunin var afhent. Ánægjan leynir sér ekki. Undirritaður er í hlutverki Ótthars Edvardssonar en Staupinn er mjúkur. Var pínu fúll er hann frétti að verðlaunin væru bara áritun en enginn Jever.

Áritun Palla Magg gekk ekki út í þessum leik og verður í boði fljótlega aftur en eins og glöggir lesendur hafa séð er hún með nafnnúmeri.

Síðuhaldari óskar toppmanninum Staupa til hamingju.

Fært undir Íþróttir | 3 ummæli »

Hleypið mér út !!!

Fært af Henry Birgir þann 25. apríl 2007

Öryggisverðir á Stamford Bridge fá eflaust að heyra þetta frá fjölda áhorfenda í kvöld þegar nokkuð verður liðið á leik Chelsea og Liverpool. Það er ekki hægt að bjóða fólki upp á hvað sem er í 90 mínútur.

Af einstakri góðmennsku minni hef ég ákveðið að bjóða syfjuðum áhorfendum upp á aðstoð sem felst í hlustun á hinu hressa lagi Hleypið mér út eða I want out með þýsku speed metal sveitinni Helloween. Stórkostlegt lag frá eðalsveit sem er víst enn starfandi. Mæli með að einhver snillingurinn rúlli þeim inn á NASA í sumar.

Njótið vel og það var ekkert fyrir að halda ykkur vakandi yfir leiknum.

Fært undir Íþróttir | 2 ummæli »

Boðið upp á Jón L. Árnason

Fært af Henry Birgir þann 25. apríl 2007

Palli og Jói

Ekki gengu vinningarnir út í gær og eiginhandaráritun Jóhannesar Kristbjörnssonar bíður því betri tíma sem og hin sívinsæla London Docks áritun Palla Magg.

Jón og Leibbi

Leikurinn í kvöld er ekki mjög spennandi né erfitt að giska á rétt svar og því eru vinningarnir ekki alveg í sama gæðaflokki í dag en góðir samt.

Það má ekki gefa eftir í getraunabransanum og því er spurt hvernig fer leikurinn í kvöld og hver/hverjir skora ef svo ólíklega vill til að annað liðið skori.

Tvær áritanir í boði í dag enda geri ég ráð fyrir að fleiri en einn verði með rétt svar. Fyrst skal telja áritun skáksnillingsins Jóns L. Árnasonar og síðan handboltamarkvarðarins Leifs Dagfinnssonar sem er klárlega einhver skrautlegasti íþróttamaður Íslands fyrr og síðar. Ekki ónýt verðlaun.

Ég veit að Ísland í dag er að gefa ferð á leik og einhverjir telja þetta ekki merkileg verðlaun í samanburði. Því er ég algjörlega ósammála því áritarnir voru fegnar þegar þessir menn voru á hátindi ferils síns. Reynið að fá áritun hjá Jóni L. í dag.

Ég meina það kemst hver sem er á völlinn en áritun Jóns er ekki auðfengin. Eina sem heillar hinum megin er að Denni verður líklega með töflufund fyrir leik að því er menn segja.

Fært undir Íþróttir | 19 ummæli »

Ronaldo og Rooney

Fært af Henry Birgir þann 24. apríl 2007

Hættulegasti sóknardúett í heimi. Þurfum ekkert að ræða það neitt sérstaklega. United vantar bara nýjan Nistelrooy til þess að hirða upp leifarnar. Hvernig var annars hægt að láta hann fara? Leikurinn í kvöld var frábær. Það var eins og mig grunaði að sóknin yrði að standa sína plikt, raða inn mörkum og vonandi myndi vörnin halda þokkalega. Þrjú mörk eiga venjulega að duga en þegar þarf að skipta út nánast allri varnarlínunni vandast málið.

Ekkert við fyrra marki Kaká að gera, það var snilld þótti Eddi hefði mátt gera betur. Hann er farinn að fá einstaka mark á sig sem er ekki nógu gott. Sörinn kúplar honum út í sumar. Seinna markið var disaster, 2-1 fyrir Milan  sem var ekkert búið að gera.

United hefði getað skorað mikið fleiri mörk eins og venjulega en brasilíska undrið í rammanum varði yfir sig. Hann opnaði þó augun undir lokin og sýndi sitt rétta andlit.

Skandall ef United hefði ekki unnið leikinn. Þvílíkur karakter. Giggs enn og aftur með lykilatriði. Nú stolinn bolti og stoðsending. Ótrúlegur.

Ekki vanur að pirra mig á dómaranum en hinn gríski Kys As var hrikalega slakur og dæmdi á allan fjandann. Ég hef séð körfuboltadómara leyfa meiri hörku.

Þetta var alvöru fótboltaleikur eins og venjulega þegar United er að spila. Áhorfendur fá alltaf fyrir peninginn og rúmlega það. Að geta boðið upp á slíkan leik gegn ítölskum andstæðingi er líka afrek.

Slíkur sambabolti verður ekki í boði á morgun þegar hin varnarsinnuðu lið Liverpool og Chelsea mætast. Mæli með sterku Braga kaffi. Tveir bollar drekkist fyrir leik.

Fært undir Íþróttir | 2 ummæli »

 
Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning