Hugleiðingar Húsvíkings

Færslur maí, 2007

Sammi að hætta hjá Rúv?

Fært af Henry Birgir þann 31. maí 2007

Meistari SammiÞau tíðindi berast nú um netheima að sjálfur Samúel Örn Erlingsson sé búinn að segja starfi sínu lausu hjá Rúv. Öðruvísi mér áður brá. Þessi tíðindi koma verulega á óvart enda var talið að Samúel ætlaði sér að sitja sem fastast þar sem hann komst ekki inn á þing fyrir Framsókn þó það hafi staðið tæpt um tíma.

Það er hinn ágæti bloggari Jón Axel Ólafsson sem greinir frá þessu á síðu sinni í dag.

Þetta eru mikil tíðindi í heimi íþróttafréttamanna enda á Samúel langan starfsferil að baki. Hann hefur komið mörgu góða til leiða og annað hefur ekki verið eins gott.

Verður áhugavert að fylgjast með því hvað Sammi ætlar sér að gera næst.

Þarna gefst Rúv aftur á móti tækifæri til þess að hrista aðeins upp í hlutunum hjá sér og koma inn með nýjan mann sem kæmi með nauðsynlega ferska strauma í íþróttadeildina hjá sér. Hún þarf svo sannarlega á því að halda.

Fært undir Íþróttir | 1 ummæli »

Ætli KSÍ fari eftir eigin reglum?

Fært af Henry Birgir þann 31. maí 2007

Í blaðaauglýsingu fyrir leik Íslands og Liechtenstein stendur orðrétt: “Öll meðferð áfengis er óheimil og eins að fara með drykkjarföng inn á völlinn.”

ksiauglysing.JPG

Eins og meðal annars hefur komið fram á þessari síðu veitir KSÍ boðsgestum sínum nánast undantekningalaust bjór og léttvín fyrir landsleiki sem og í hálfleik. Meðal þeirra sem þiggja áfengið hjá KSÍ eru forystumenn félaga, hátt settir einstaklingar innan þeirra fyrirtækja sem styrkja sambandið og stjórnmálamenn.

Verður áhugavert að sjá hvort KSÍ fari eftir eigin reglum til tilbreytingar og veiti ekki vín í heiðursstúkunni fyrir leik og í hálfleik á laugardag. Heiðursstúkan var nefnilega hluti af stúkunni sem og vallarsvæðinu þegar ég síðast vissi.

Fært undir Íþróttir | 2 ummæli »

Reynslusaga úr Laugardal

Fært af Henry Birgir þann 31. maí 2007

Í ummælum við færslu mína sem heitir “Af hverju fá bara útvaldir að drekka bjór í Dalnum?” er mjög athyglisverð reynslusaga FH-ings frá leik Fram og FH síðastliðinn þriðjudag. Sá hefur setið beggja megin borðsins.

Leyfi mér að birta brot úr henni hér þar sem mig grunar að það nenni ekki allir að lesa ummælin. Sá er ritar kallar sig Johnson.

“Ég er í FH mafíunni og þökk sé vinnunni minni þá fékk ég lánaðan Fram boðsmiða í heiðurstúkuna með veitingum og tilheyrandi. [...] Þó FHingar séum þá fórum við að sjálfsögðu að þiggja veitingar í hálfleik. Ég vissi ekki betur, en ég hélt að veitingar fyrir heiðursstúkugesti og stuðningsmenn Fram væru nákvæmlega sömu veitingarnar.  Annað frétti ég hjá gömlum vinnufélaga sem er mikill Framari og kvartaði sáran yfir útrunnum snúðum frá Jóa Fél sem stuðningsmenn Fram er boðið uppá í hálfleik

Ég smakkaði á þessum ósköpum og hafði ekki mikla lyst eftir fyrsta bitann. Þessi harði stuðningsmaður Fram sagði að VIP liðið uppi fengu nú allt annað en hörðu stuðningsmennirnir. Ég fór því þarna upp í VIP dæmið og ég hef aldrei kynnst öðru eins. Veitingarnar voru með ólíkindum og bjór og léttvín eins og þú gast í þig látið. Maturinn var í hæsta gæðaflokki og þetta var fullkomið með köldum öl og frábæru útsýni yfir völlinn, aðstaðan í VIP dæminu var einnig frábær.

Þarna uppi var auðvitað allt VIP liðið og ég var þarna einn ásamt þeim í mínum FH búning og með FH trefilinn. Ég fékk mér einn vænan Löwenbrau sem bragðaðist afar vel, en þá fór ég að hugsa um eitt atvik. Það var á þessum sama velli á síðasta ári gegn Val þar sem vallarstarfsmenn voru að leita í töskum okkar stuðningsmanna FH af bjór, í miðjum leik. Þetta var einn mesti dónaskapur sem ég hef orðið vitni af, leitað af öli í töskum í miðjum leik!

Stuðningsmenn liðanna mega ekki fá sér öl en það er í lagi fyrir VIP liðið!. Hvar er réttlætið í því? Ég vil taka það fram að ég sat ekki eina mínutu í heiðurstúkuni, heldur að sjálfsögðu í þéttum hóp snillinga sem kalla sig Hafnarfjarðarmafíuna.

Það er með ólikndum hvernig þetta er, aðeins VIP liðið má drekka og reykja en almúginn má ekkert.”

Væri gaman að heyra fleiri sögur. Mailið er: henrybirgir@visir.is

Fært undir Íþróttir | 4 ummæli »

Valsmenn drekka í Dalnum

Fært af Henry Birgir þann 30. maí 2007

Á meðfylgjandi myndum Fært undir Íþróttir | 26 ummæli »

Af hverju fá bara útvaldir að drekka bjór í Dalnum?

Fært af Henry Birgir þann 30. maí 2007

Það er enginn afgangur af stéttaskiptingunni á þjóðarleikvangi Íslands, Laugardalsvelli. Þar hefur aðallinn lengi vel dreypt á Guðaveigum og dýrindis mat á meðan grútskítugur almúginn hefur greitt fyrir volgt kók og vondar pylsur. Þetta hefur allt verið gert í skjóli KSÍ. Þeir sem hafa reynt að smygla sömu Guðaveigum inn á völlinn hafa ítrekað lent í vörðum vallarins sem gera veigarnar upptækar. Ekkert áfengi nema fyrir aðalinn.

Tvískinnungurinn er ótrúlegur. Þess utan er ekkert áfengisleyfi, að því ég veit best, á Laugardalsvelli og menn því væntanlega að fremja lögbrot. Yfirvöld hafa kosið að loka augunum fyrir þessum skrípaleik sem hefur verið í gangi í áraraðir í Laugardal.

Skal svo sem ekki undra þar sem pólitíkusar eru í stórum hluta þess liðs sem situr í VIP-stúku KSÍ á landsleikjum og dreypir væntanlega á Guðaveigunum í leikhléi og fyrir leik. Gerir það eflaust líka næstkomandi laugardag þegar landsleikur fer fram á vellinum.

Veglegar veigar

Ástandið fer versnandi. Nú er það ekki bara KSÍ sem blæs til veislu. Með tilkomu nýju stúkunnar, sem skartar glæsilegri VIP-stúku, hafa félögin - Valur og Fram í þessu tilviki - notað hvert tækifæri til þess að gera sér glaðan dag á leikdegi og þá er ávallt boðið upp á áfengi.

Á því var engin breyting í gær þegar Fram tók á móti FH. Þá voru heilu kassarnir af bjór klárir í VIPPINU. Myndin sem fylgir færslunni er af hluta bjórsins sem var í boði á leiknum. Þarna eru að lágmarki átta kassar af bjór.

Eins og þetta sé ekki nógu blaut tuska í andlit almúgans þá má hann einnig gera sér að góðu að horfa upp á VIP-liðið reykja úr sér lungun í leikhléi á meðan þeir fá ekki einu sinni að fara út í eigin bíl til að reykja. Þetta ástand hefur verið upp á teningnum í síðustu tveim leikjum og getur fjöldi áhorfenda vottað um það.

Þarf ekki einhver að svara fyrir þessa mismunum?

Fært undir Íþróttir | 7 ummæli »

Nýtt KR lógó

Fært af Henry Birgir þann 30. maí 2007

Ömurlegt gengi KR-liðsins í Landsbankadeildinni fer ekkert sérstaklega mikið í taugarnar á stuðningsmönnum annarra liða sem fagna hverju marki andstæðinga KR.

Slakur leikur KR-liðsins hefur einnig verið á milli tannanna á fólki og sumir gengið svo langt að líkja honum við leik Kidderminster Harriers.

krlogo.gif

Írekaðar langar sendingar leikmanna KR fram völlinn urðu til þess að einhver sá sig knúinn til þess að hanna nýtt lógó fyrir KR.

Það barst síðuhaldara í hendur og hann sýnir auðmýkt með því að birta það hér.

Fært undir Íþróttir | 2 ummæli »

Stórkostleg myndaveisla úr Fram-FH

Fært af Henry Birgir þann 30. maí 2007

Hinn geðþekki blaðamaður Fréttablaðsins, Hjalti Þór Hreinsson, brá sér í ljósmyndarabúninginn í kvöld og myndaði stemninguna hjá blaðamönnum í Laugardalnum. Sjón er sögu ríkari.

Framarar, Framarar…

Bóasinn mætti í miklu stuði og steig léttan dans við stuðlagið “Stöngin inn”.

VIP people

Góð símaskrá er í blaðamannaherberginu en athygli vekur að fjölmiðlafulltrúar Fram og Vals virðast vera of frægir til að gefa upp númerið sitt fyrir blaðamenn.

Elôan

Þétt setinn bekkurinn. Frá vinstri: Skúli MBL, síðuhaldari, Tom fótbolti.net og DV-mennirnir Elvis og Bóas.

Jæja

Sauðnaut. Bóasi tókst að sjálfsögðu að sulla niður.

DV étur

Það mátti vart á milli sjá hvort DV-menn hefðu meiri áhuga á leiknum eða bakkelsinu. Vel átu þeir, svo mikið er víst. “Djöfull átu þeir”.

YEAHHHH

Ef ekki að éta þá að rokka.

Nammi namm

Mikill sómi að bakkelsinu.

einkennilegt

Furðulegasta skýrsla ársins. Vantaði byrjunarliðsmann.

Svona er útsýnið

Blaðamenn mættu sitja hærra í stúkunni eða hreinlega lækka borðin.

Skemmtilegur

Fjölmiðlafulltrúinn lék á alls oddi í VIPPINU. Ölið skammt undan.

Nóg að eta

Það var nóg að éta og drekka fyrir VIP-liðið.

Celebrity àstuku

Hemmi Hreiðars lét sjá sig á vellinum.

Óli Kristjáns àgóðri stellingu

Óli Kristjáns fylgdist með leiknum í laumi. Honum tókst þó ekki að forðast linsur hins stóra fjölmiðils, blogg.visir.is/henry.

Fært undir Íþróttir | 1 ummæli »

Kaffið kom eftir 100 mínútur

Fært af Henry Birgir þann 30. maí 2007

“Kaffið kemur svo á eftir,” var það síðasta sem heyrðist frá dýnamískum fjölmiðlafulltrúa Framara, Snorra Má Skúlasyni, á síðasta heimaleik Safamýrarliðsins. Kaffið kom aldrei og ekki sást frekar til fjölmiðlafulltrúans.

Það var víða pottur brotinn hjá Frömurum síðast og því ríkti nokkur spenna fyrir kvöldinu. Var búið að laga eitthvað?

Laugardalsvöllurinn er martröð fyrir fjölmiðla sem þurfa að hafa snarar hendur eftir leiki enda langt niður á völl og aftur upp í blaðamannastúku. Þarf meira að segja að taka lyftu.

Hún stoppar við VIP-svæðið og það fyrsta sem blasti við þar var fullt borð af Löwenbrau bjór. Allt að verða klárt fyrir fína fólkið sem einhverra hluta má drekka á vellinum þó svo ekkert sé áfengisleyfið.

Í blaðamannastúkunni beið ekkert. Engin skýrsla, ekkert kaffi, lélegt net og grútskítugir gluggar. Snorri Már datt inn með sýnishorn af skýrslum þegar leikurinn var byrjaður. Erum að tala um örfáar skýrslur og svo vantaði mann á skýrsluna hjá FH. Mjög furðulegt. Einhver pappírsfátækt greinilega í Dalnum.

Snorri slúttaði svo á setningunni frægu: “Kaffið kemur svo á eftir.” Stúkan titraði af hlátri svo hátt hlógu blaðamennirnir.

Þeir hlógu ekki mikið þegar Snorri birtist mjög óvænt 11 mínútum síðar með kaffikönnu og glös. Það tók sem sagt 101 leikmínútu að fá kaffi hjá Frömurum. Kaffið var gott. Snorri kvaddi síðan með þeim orðum að það gæti verið von á meiru. Hann laug engu um það því tíu mínútum síðar birtist hann með fullan bakka af ljúffengu bakkelsi. Mikil framför hér á ferðinni.

Þó má gera betur eins og í auðveldum hlutum á borð við skýrslur og svo þarf netið að komast upp því sambandið er mjög óstöðugt þarna uppi sem er ekki gott. Jói vallarstjóri mætti síðan ná sér í tusku og rúlla aðeins yfir gluggana sem eru ógeðslegir.

Stemningin á vellinum var ágæt og það ber aðallega að þakka Mafíunni sem var í banastuði. Lítið heyrðist í rækjusamlokuáhorfenum Fram sem náðu tvisvar að öskra hið frumlega “Framarar, Framarar…”. Entist í bæði skiptin í um 15 sekúndur.

Fram-FH:
Umgjörð: 3 stjörnur af 5 mögulegum.
Aðstaða: 2 1/2 stjarna af 5 mögulegum.

Fært undir Íþróttir | Engin ummæli »

Kaffilaust í Kópavogi

Fært af Henry Birgir þann 29. maí 2007

Leikur Blika og Vals er með leiðinlegri leikjum síðari ára og rennur öllum sem hann sáu vonandi fljótt úr minni. Blikar stóðu þó vaktina í umgjörðinni ágætlega þó gætt hafi á örlitlu kæruleysi.

Blaðamaður fótbolta.net var mættur manna fyrstur á völlinn og eflaust feginn að vera laus við Samma ef eitthvað er að marka orð hans við færslu um síðasta leik. Í stað Samma var mættur Hallgrímur Indriðason sem komst lítið að þar sem allt var væntanlega að verða vitlaust vestur í bæ.

DJ Muggz talaði um mannaskítssól í Kópavogi í eftirminnilegum pistli og ég þreytist ekki á að ítreka að sólin sést aðeins í Kópavogi meðan á leik stendur. Á því var engin breyting í gær, sólin skein beint í grímuna á blaðamönnum allan leikinn. Alveg magnað.

Blaðamaður Moggans, Seth, lá óvígur eftir síðasta leik með mígreni og var óvinnufær daginn eftir. Svo halda menn að blaðamennskan sé eitthvað grín.

Gussi Jalli ferskur

Skýrslur komu því miður áfram á tveim blöðum en fjölmiðlafulltrúinn lofaði bót og betrun eftir vinsamlega ábendingu undirritaðs. Hann var mættur með tvær djúskönnur í hitann, tvær kaffikönnur en klikkaði eitthvað þar sem þeir voru báðar með vatni en ekkert var kaffið. Hann sást ekki aftur þannig að ekki reyndist unnt að bjarga kaffinu. Það var miður.

Kruðeríið var samt hefðbundið og vel þegið, þá sérstaklega af Gussa Jalla, blaðamanni DV, sem skartaði stórkostlegum Dior gleraugum í sólinni sem vöktu mikla lukku. Myndin segir meira en mörg orð.

Gussi og Höddi

Eitthvað var búið að ræða við hina illa uppöldu krakka sem Muggz minntist á því hurðin fékk að vera í fríi í þetta skiptið. Gummi Hilmars hefði líklega hrist krakkana til ef þeir hefðu ætlað að æra hann annan leikinn í röð og lái honum hver sem vill.

Netið svínvirkaðiu, rúðurnar voru hreinar og umgjörðin fín þó svo skólahljómsveit Kópavogs sé að minnsta kosti þrem áratugum of sein á völlinn.

Breiðablik-Valur:
Umgjörð: 3 stjörnur af 5 mögulegum.
Aðstaða: 3 stjörnur af 5 mögulegum.

Fært undir Íþróttir | 1 ummæli »

Næstum fullkomið í Árbænum (gestapistill)

Fært af Henry Birgir þann 29. maí 2007

Ég fór á afmælisleik Fylkis í Árbænum í gær þar sem heimamenn tóku á móti ÍA. Fylkir fagnaði 40 ára afmæli félagsins um daginn og leikurinn þar að auki í beinni á Sýn. Umgjörðin var því með ágætasta móti, slatti af áhorfendum og fyrirtaksstemmning. Leikurinn var líka skemmtilegur fyrir áhorfendur, fullt af mörkum, rautt spjald og vítadrama í lokin. Fylkismenn eru þó örugglega ekki sáttir við að hafa misst af gullnu tækifæri að ná öllum stigunum en þeir geta prísað sig sæla að ekki fór verr yfirhöfuð.

Ónefnd hljómsveit spilaði einhver lög fyrir leik og var þar að auki ókeypis á völlinn. Nýstofnaður stuðningsmannaklúbbur reyndi sitt besta til að skapa góða stemmningu og sótti greinilega í smiðju Miðjunnar í KR. Ekkert að því enda Miðjan að gera gríðarlega góða hluti. Stuðningsmenn ÍA voru einnig fjölmennir og hressir þar að auki. Það hefði samt verið gaman að fá meira en tvö þúsund manns á völlinn fyrst tilefnið var svona gott.

Blaðamannaaðstaðan var eins og í fyrsta heimaleiknum til fyrirmyndar. Skýrslur komnar tímalega, netið í lagi, boðið upp á kaffi og meðlæti og gluggar voru hreinir. Svo var fjölmiðlafulltrúinn á staðnum til að hafa yfirumsjón með þessu öllusaman. Þá má einnig nefna að sólargluggatjöldin á blaðamannakofanum er gríðarlega skemmtileg viðbót og kemur sér afar vel á sólríkum dögum.

Það eina sem mætti setja út á aðstöðuna er að áhorfendatölur voru ekki gefnar upp í blaðamannaskýlinu áður en leiknum lauk. Þær voru hins vegar lesnar upp í hátalarakerfinu eftir leik og reddaðist það þannig.

Fylkir - ÍA:
Umgjörð: 4 stjörnur af 5 mögulegum.
Aðstaða: 4½ stjarna af 5 mögulegum.

Eiríkur Stefán Ásgeirsson

Fært undir Íþróttir | Engin ummæli »