Fært af Henry Birgir þann 30. júní 2007
Samkvæmt heimildum síðunnar þá munu forráðamenn knattspyrnudeildar FH ganga á fund Knattspyrnusambands Íslands á mánudag til þess að ræða atburðina á leik Vals og FH sem leiddu til þess að tveir stuðningsmenn Fimleikafélagsins voru handteknir.
Þar á ekki síst að ræða framkoma vallarstjórans, Jóhanns Kristinssonar, en stuðningsmenn FH voru langt frá því að vera sáttir með hans framkomu í leiknum.
Jóhann gerði upptæka tösku af áhorfendum vegna gruns um að í töskunni væri áfengi. Áhöld eru um hvort Jóhann hafi hreinlega haft leyfi til þess að gera töskuna upptæka sem og að leita í henni. Stuðningsmennirnir brugðust ókvæða við þessum aðgerðum og Jóhann hringdi á lögregluna í kjölfarið.
Þegar Jóhann gerði töskuna upptæka reyndu stuðningsmenn FH að rökræða við vallarstjórann og var bent á að nokkrum metrum ofar væri fólk að drekka áfengi í VIP-herberginu. Vallarstjórinn var ekki til í slíkar rökræður. Jóhann hafði reyndar fyrr sama kvöld farið upp í VIP-herbergið og beðið fólk um að gæta þess að ekki sæist í gegnum rúðuna að það væri að neyta áfengis.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Jóhann kemst í hann krappann á Þjóðarleikvangínum en ljósmyndarar íslenskra blaða bera honum ekki vel söguna og hefur margoft slegist í brýnu á milli vallarstjórans og ljósmyndara.
Athygli vakti að hvorki forráðamenn KSÍ né Jóhann vildu tjá sig um málið í Fréttablaðinu fyrir helgi.
Fært undir Íþróttir | 1 ummæli »
Fært af Henry Birgir þann 29. júní 2007
Rakst á einhverja fyndnustu frétt dagsins á Vísi áðan. Hefur farið lítið fyrir henni þó svo fréttin sé góð.
“Lögregla þurfti að hafa afskipti af tveimur ölvuðum blaðberum í Kópavogi i nótt. Íbúar kvörtuðu yfir því að þeir væru sprænandi á götum úti og í húsagörðum og létu blöðum rigna á víðavangi. Mennirnir voru skikaðir til og lofuðu þeir bót og betrun.”
Man ekki eftir að hafa lesið frétt áður um ölvaða blaðbera.
Það sem mér finnst áhugaverðast við fréttina er sú staðreynd að einstaklingarnir hafi farið í að bera út þó svo þeir hafi verið ölvaðir. Þetta eru klárlega einhverjir traustustu blaðberar landsins í dag.
Einhverjir hefðu nú bara lagt sig og gefið skít í djobbið. Ekki þessir blaðberar. Það er virðingarvert.
Fært undir Íþróttir | 5 ummæli »
Fært af Henry Birgir þann 29. júní 2007
Thierry Henry seldur til Barcelona á 16 milljónir punda og Spurs kaupir Darren Bent á 16,5 milljónir punda. Er ég einn um að finnast þetta alveg glórulaust?
Henry er að verða þrítugur en hann er samt meira en 16 milljón punda virði. Þetta er sama grínið og með Beckham sem borgaði sig víst nánast upp yfir sumarið eftir að hann var keyptur til Madrid á svipaða skiptimynt.
Hvað hefur svo þessi Bent gert til að verðskulda þennan verðmiða? Hann er dýrasti leikmaður félagsins. Klárlega ofmetinn leikmaður sem hefur ekkert sýnt sem réttlætir verðmiðann.
Samt alveg klassískt Spurs að gera þetta. Kraftaverk ef þessi maður fer yfir 12 mörk næsta vetur.
Fært undir Íþróttir | 3 ummæli »
Fært af Henry Birgir þann 29. júní 2007
Frábær stemning í Frostaskjólinu í gær rétt eins og venjulega. Breytti engu þó um væri að ræða botnbaráttuslag. Miðjan fór á kostum sem fyrr og stuðningsmenn Fram komu skemmtilega á óvart með fyrsta lífsmarki sumarsins.
Það var allt til staðar í gær. Veðrið, völlurinn og svo var mikið undir í leiknum. Óvenju stór hópur bláklæddra Framara sást á vellinum en félagið fór í mikið átak til þess að fjölga á vellinum og búa til stemningu hjá sínu liði og það skilaði sér. Mikil framför og skref í rétta átt hjá Frömurum sem verða samt örugglega einhvern tíma að finna taktinn. Leikurinn í gær var þó fín byrjun og vonandi það sem koma skal frá Frömurum.
Framararnir fylgdust vonandi vel með Miðjunni sem átti enn einn stórleikinn og söng frá upphafi til enda. Þarf ekkert að fjölyrða um styrk þess stuðningsmannahóps sem er efst í deildinni hvað stuðning varðar.
Buðu líka upp á “Einn Henry Birgir…” sem var klárlega mikill sómi að. Takk fyrir það. Klárlega fimm stjörnur þar á ferðinni.
Aðstaða blaðamanna klikkaði ekki þó svo Röddin væri í fríi. Stebbi Kalli kom sterkur inn af bekknum. Netið á fullu blasti, rúður hreinar og veitingar til fyrirmyndar. Skýrslan var loksins rétt og áhorfendatölur skiluðu sér. Kaffið var einstaklega gott.
KR - Fram:
Umgjörð: 5 stjörnur af 5.
Aðstaða: 5 stjörnur af 5.

Það var boðið upp á þessa fínu köku. Skúli Unnar fékk sér sæti við hliðina á kökunni sem kom ekkert sérstaklega á óvart.

Skammt frá var þetta fína bakkelsi.

Miðjan stóð við hlið blaðamanna en einhver nýliði átti það til að birgja blaðamönnum sýn. Hver er þessi maður?
Fært undir Íþróttir | 1 ummæli »
Fært af Henry Birgir þann 28. júní 2007
Andy Gray fór á kostum í Sýnarpartýinu í gær og sagði skemmtilegar sögur frá ferlinum sem slógu í gegn hjá viðstöddum. Gray hefur gríðargóð tengsl í knattspyrnuheiminum og það sýndi sig svo um munaði í dag.
Gray sagði nefnilega í gær að Fabio Capello yrði rekinn frá Real Madrid í dag. Það gekk eftir.
Það sem Gray sagði í kjölfarið var enn áhugaverðara. Andy Gray vill nefnilega meina að Capello muni í kjölfarið taka við Chelsea.
Verður spennandi að sjá næstu daga hvort hann hafi rétt fyrir sér.
Hvað verður þá um Mourinho? Ætli hann taki við Real Madrid af Capello?
Fært undir Íþróttir | 4 ummæli »
Fært af Henry Birgir þann 28. júní 2007
Samkvæmt heimildum síðunnar þá mun framherjinn Hjörtur Hjartarson hefja störf á íþróttadeild Rúv í byrjun september. Hjörtur gerði garðinn frægan með Völsungi á sínum tíma en gekk síðan einhverra hluta vegna í raðir lakari liða á borð við ÍA og Þrótt þar sem hann spilar í dag.
Hans verður samt alltaf minnst sem leikmanns Völsungs enda átti hann klárlega sína bestu tíma á Húsavíkurvelli.
Hjörtur er nýkominn heim frá Bandaríkjunum þar sem hann var að ljúka námi í stjórnmálafræði en hann sló einnig í gegn í boltanum í Kanalandi þar sem hann sló öll met sem hægt var að slá í skólanum hans.
Strákurinn var hlaðinn lofi og kom heim með fullan kassa af verðlaunagripum fyrir frammistöðu sína í boltanum.
Þetta er gríðarlegur hvalreki fyrir Rúv enda Hjössi drengur góður og ákaflega vel gefinn. Hef fulla trú á því að hann muni hrista aðeins upp í hlutunum á deildinni og veitir nú ekki af.
Fært undir Íþróttir | 6 ummæli »
Fært af Henry Birgir þann 28. júní 2007
Það hefur vakið athygli margra hversu margir knattspyrnumenn eru farnir að vinna við fjölmiðla í sumar. Gummi Ben er farinn að vinna á Sýn og tekur viðtöl við þjálfara þegar Valur er ekki að spila, Sigurbjörn Hreiðarsson er með eigin útvarpsþátt sem fjallar nær eingöngu um fótbolta og Viðar Guðjónsson, leikmaður Víkings, skrifar um leiki í Landsbankadeildinni fyrir DV.
Sitt sýnist hverjum um þessa þróun enda augljósir hagsmunaárekstrar í gangi. Getur Gummi Ben til að mynda þjarmað stíft að þjálfurum með spurningum eftir leiki? Getur Viðar leyft sér að skrifa hvað sem er um leikmennina sem hann mætir á vellinum? Eða um Fram þar sem hann komst ekki í liðið? Sama gildir um Sigurbjörn í útvarpinu.
Það getur verið erfitt fyrir þessa menn að fóta sig í starfinu sökum stöðu sinnar. Það segir sig sjálft. Þeir eru ekki hlutlausir né óháðir og eiga því erfiðara um vik en aðrir íþróttafréttamenn.
Veit ekki til að þetta tíðkist í öðrum löndum og veit til þess að það er ekki bullandi hamingja með þessa þróun mála hjá öllum félögum.
Fært undir Íþróttir | 1 ummæli »
Fært af Henry Birgir þann 28. júní 2007
Hér er síðbúinn gestapistill en betra er seint en aldrei. Fór á leik Vals og Cork City sem var hreint út sagt ömurlegur leikur í alla staði. Leyfi mér að segja það þar sem annað liðið var íslenskt en hitt erlent. Leikurinn var klukkan 20 á laugardagskvöldi sem er ansi óvenjulegur leiktími hér á Íslandi.
Hvort það hafi verið ástæðan fyrir því að Valsmenn ákváðu að bjóða blaðamönnum upp á bjór skal ósagt látið. Veitingarnar voru allavega af dýrari taginu. Kaffi, gos, snittur, samlokur og jú - bjór. Þessi líka fíni Egils Lite sem telur aðeins 39 kalóríur (var þetta skot á okkur blaðamenn?) og er með 4,4% áfengismagn.
Þetta var gríðarlega athyglisvert útspil hjá Valsmönnum sem hafa hingað til látið áfengið flæða um VIP-stúkuna og fengið ansi sterk viðbrögð fyrir.
Bjórinn var hins vegar hlandvolgur og því auðvitað ódrekkandi. Ég tók því minn heim með mér, stakk honum í ísskápinn og drakk hann svo þegar ég kom heim úr vinnunni á sunnudagskvöldið. Hann rann ljúflega niður. Takk fyrir það kærlega.
Netið í topplagi, búið að þrífa rúður, áhorfendatölur uppgefnar, skýrsla og meira að segja leikskrá á sínum stað. Stemningin á leiknum var ágæt, Valsmenn reyndu að halda í við Írana sem sungu af hjartans innlifun allan leikinn. Mættu samt undir þúsund manns á leikinn sem er klárlega ekki nógu gott.
Valur - Cork City
Umgjörð leiks: 3 stjörnur af 5 mögulegum
Aðstaða blaðamanna: 4,5 stjörnur af 5 mögulegum.
Eiríkur Stefán Ásgeirsson

Volgur Lite. Það var ekki boðið upp á neinn léttbjór.

Írarnir voru hressir í stúkunni.

Eins og sjá má var talsvert af bjór í boði.
Fært undir Íþróttir | Engin ummæli »
Fært af Henry Birgir þann 28. júní 2007
Eins og margoft hefur komið fram hér á síðunni þá éta íþróttafréttamenn DV talsvert meira en kollegar þeirra á öðrum miðlum. DV-liðar eru enn að bæta við sig og settu nýt met í áti í gær á leik Vals og FH. Þá dugði bakkelsið ekki til og því var mætt með sjö poka frá Nings.
Viðar Guðjónsson mætti með veitingarnar tveim mínútum fyrir leik og það tók Bóas 10 mín að éta sinn skammt en Viðar var botnlaus og eyddi nánast öllum fyrri hálfleiknum í að éta. Myndi ekki treysta tölfræðinni hjá DV á leiknum, annað gekk fyrir.
Þessir drengir eru hreint út sagt stórkostlegir. Gaman að þeim.
Annars var aðstaðan þokkaleg í gær. Kaffið ágætt en bakkelsið að minnsta kosti viku gamalt. Það voru bara hinir botnlausu DV-menn sem átu bakkelsið en þeir íhuguðu meira að segja að éta kassann sem var utan um kræsingarnar.
Netið var loksins komið í lag, skýrslur í góðu lagi, rúður þokkalega hreinar en ekkert vatn.
Ekki gat ég séð að neitt sérstakt hefði verið lagt í umgjörðina og mætingin olli vonbrigðum. Hasarinn með lögguna og Jóa valló setti síðan ljótan blett á leikinn.
Valur - FH:
Aðstaða: 3 stjörnur af 5
Umgjörð: 2 stjörnur af 5

Viðar Guðjónsson, leikmaður Víkings og íþróttafréttamaður DV, stimplaði sig rækilega inn í DV-átinu í gær en fær mínus fyrir að mæta með hollustufæði. Það viljum við ekki sjá.

Bóasinn étur allt. Sama hvað það heitir og hvort honum þyki það gott.

Hérna sést aðeins lítill hluti af matarbirgðum íþróttafréttamanna DV í gær.

“Nei, ég vil þetta ekki,” þóttist Bóasinn segja. 4 sekúndum síðar var berlínarbollan komin í mallakút.
Fært undir Íþróttir | 1 ummæli »
Fært af Henry Birgir þann 28. júní 2007
Fram kom í ummælum við færsluna hér að neðan að einhverjir FH-ingar ætluðu sér að kæra Jóhann Kristinsson, vallarstjóra Laugardalsvallar, fyrir sína framgöngu á leik Vals og FH í gær. Þar sauð upp úr og lögreglan mætti á svæðið og handtók menn.

Mikill hiti var í mönnum í gærkvöldi og spurning hvort sami hiti sé enn til staðar í dag?
Fært undir Íþróttir | 1 ummæli »