Mistök í talningu
Henry Birgir 16. júní 2007
Golfmót samtaka íþróttafréttamanna var haldið í fyrsta skipti í einhver 20 ár á Kálfatjarnarvelli á föstudag. Sá völlur er á Vatnsleysuströnd nálægt Vogum. Fæstir spilara höfðu ekki Guðmund um að þessi völlur væri til.
Það var toppmæting frá Fréttablaðinu, sú langbesta. Mogginn sendi heilan mann og það sinn besta, einn kom frá Sýn, einn frá DV og svo Valtarinn fyrir X-ið. Það var brjálað að gera eins og venjulega hjá Rúv og því gat enginn mætt frá þeim.
Völlurinn kom skemmtilega á óvart og veðrið var ágætt. Rigndi ekki allan hringinn. Þegar inn á skála var komið var boðið upp og bjór og burger. Hressandi.
Dagur og Hjalti aka Garðar og Skapti unnu mótið en spilað var Texas scramble sportpress style. Þeir svindluðu. Dagur var búinn að liggja í æfingabúðum í Munaðarnesi svo vikum skipti en það hreinlega stórsér á minigolfvellinum eftir átökin. Skapti er þess utan með lægri forgjöf en hann gefur upp. Vona að þeir séu sáttir með sjálfan sig eftir þetta.
Steini Gun og Valtarinn komu í öðru sæti. Seth var einn í þriðja sæti en enginn vildi spila með honum. Ég og Eiki Geira héldum honum félagsskap og sáum til þess að stemningin var í lagi. Við þrír skemmtum okkur vel saman og vonandi að Seth hafi lært eitthvað af okkur.
Ég og Eiki vorum eina parið sem hafði enga reynslu en fengum þrátt fyrir það ekki fulla forgjöf einhverra hluta vegna. Ef talið hefði verið rétt þá hefðum við unnið mótið með svona 18 höggum. Það er ekki flóknara en það.
Við spiluðum samt frábærlega og vorum sáttir. “Poweradeið” hjálpaði eflaust til við spilamennskuna hjá okkur.
Bleiku mjólkubrúsarnir á teigunum voru að gera gott mót og hér er Seth að gróðursetja eftir að hafa misþyrmt einum af mörgum teigum vallarins.
Steini formaður á heiður skilinn fyrir að halda mótið sem hann gerði að sjálfsögðu með glæsibrag. Hann heldur hér tölu yfir mannskapnum.
Carlsberg var helsti styrktaraðili mótsins og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir.
Svindlararnir Garðar og Skapti sjást hér með djöfullegt bros eftir að hafa svindlað sér á toppinn. Þeir fengu út að éta í Lóninu. Vonandi fá þeir matareitrun. (nei, ég er ekkert fúll yfir að hafa ekki unnið).
Þingeysk hógværð í sinni tærustu mynd.


