Dýr aðgerð hjá KR
Fært af Henry Birgir þann 31. júlí 2007
Hið óumflýjanlega gerðist í gær. Teitur Þórðarson var rekinn. Stjórn KR Sports gat einfaldlega ekkert annað gert enda árangurinn, spilamennskan, framfarirnar og síðan kröfur þjálfarans til liðsins langt fyrir neðan væntingar. Það sem verra var þá versnaði liðið undir stjórn Teits og skotgrafarhernaður þjálfarans er ekki eitthvað sem hægt er að byggja ofan á.
Tímasetningin er umdeild eins og alltaf í slíkum málum. Ég tel að Teitur hefði átt að fjúka eftir HK-leikinn. Ég sagði reyndar hér áður að ef KR Sport ætlaði í þessa aðgerð yrði stjórnin að hafa annan þjálfara kláran á hliðarlínunni sem hún treysti. Það er aldrei gott að reka bara til að reka.
Svo virðist vera sem sá maður hafi ekki verið til staðar fyrr en nú. Síðuhaldari hefur heimildir fyrir því að leitað hafi verið til Loga áður en hann stefndi alls ekki í þjálfun aftur enda hefur hann það gott hjá knattspyrnuakademíunni og Sýn. Það þurfti því klárlega talsverða peninga til að lokka Loga í Vesturbæinn. KR virðist fyrst í gær hafa verið tilbúið að greiða nógu mikið til að fá hann í Vesturbæinn.
Það var einnig mjög dýrt fyrir KR að reka Teit. Samningur hans var ekki uppsegjanlegur fyrr en eftir þrjú ár samkvæmt heimildum. Teitur fékk því klárlega fínan starfslokasamning enda ekki á neinum lúsarlaunum í Vesturbænum. Þar var Teitur í fullu starfi við að þjálfa meistaraflokk og móta framtíð knattspyrnunnar hjá KR meðal annars með stofnum knattspyrnuakademíu.
Teitur hafnaði freistandi tilboðum erlendis til að taka við KR og það segir sitt um samninginn sem hann fékk frá KR. Þessi aðgerð KR-inga kostar því klárlega ansi margar milljónir og síðuhaldari hefur heyrt tölur á borð við 15-20 milljónir króna sem er líklega ekki fjarri lagi.
Það verður ekki tekið af KR sport að það var mjög metnaðarfullt skref hjá þeim að ráða Teit á sínum tíma. Með því var verið að horfa til framtíðar með meistaraflokk sem og alls starfs hjá félaginu. Hugmyndin var góð en árangur og spilamennska meistaraflokksins var svo átakanlega léleg að ekki var lengur við unað. Það varð að skipta um mann í brúnni. Teitur fékk alla þá aðstöðu og leikmenn til að byggja upp gott lið en honum mistókst verkið því miður.
Teitur Þórðarson er einstakt ljúfmenni og mikill heiðursmaður. Það er meiri klassi yfir honum en flestum öðrum íslenskum þjálfurum, sama í hvaða grein það er. Það var aðdáunarvert að fylgjast með honum í viðtölum í gær. Það hefðu ekki allir menn í hans stöðu gefið kost á viðtölum og síðan verið jafn hreinir og beinir í sínum málflutningi og hann var. Þvert á móti gefa fæstir þjálfarar kost á viðtölum í slíkri stöðu og eru eðlilega oft reiðir og fúlir.
Teitur höndlaði gærdaginn af sömu fagmennsku og hann hefur höndlað aðra hluti síðan hann tók við KR. Hann sagði ef þetta væri það besta fyrir KR þá væri hann sáttur. Það er mikill klassi yfir Teiti Þórðarsyni en því miður ekki sami klassi yfir spilamennsku KR undir hans stjórn.
Fært undir Íþróttir | 7 ummæli »
Þingeysk hógværð í sinni tærustu mynd.