Hugleiðingar Húsvíkings

Færslur september, 2007

Engin pressa, nei nei

Fært af Henry Birgir þann 30. september 2007

“Gassi félagi minn hefði alveg getað gefið okkur Blikum víti en daginn sem hann gefur Blikum víti er dagurinn sem ég girði niðrum mig og hleyp í gegnum kringluna syngjandi Every Breath You Take með Sting.”
Egill Einarsson aka Gillzenegger 4. september 2007.

Pungur eða leggöng? Kemur brátt í ljós.

Fært undir Íþróttir | 3 ummæli »

Áfengisneysla bönnuð í Dalnum… nema fyrir suma

Fært af Henry Birgir þann 30. september 2007

Seth félagi minn var staddur í Dalnum um helgina þar sem mikil áhersla var lögð á að hinn almenni áhorfandi væri ekki að neyta áfengis á vellinum.

“Ég vil benda áhorfendum á að öll meðferð áfengis er bönnuð á vellinum,” sagði vallarþulur að því er fram kemur á síðu Seth. Sem fyrr ku hafa verið leitað á hinum almenna áhorfanda sem var “líklegur” að mati vallarvarða að vera með áfengi.

ISSSSSKALDUR

Ljósmyndari Fréttablaðsins kom meðfylgjandi mynd til mín en hún var tekin í leikhléi á leiknum. Þess má geta að það er ekki Spur í flöskunum.

Að þessu tilefni er vert að rifja upp orð framkvæmdastjóra KSÍ frá því fyrr í sumar en það er allt of langt síðan þau orð voru rifjuð upp.

Það verður auðvitað ekki hvikað frá þeirri stefnu að áfengisneysla, og sala áfengis, á leikjum er bönnuð og það á við um allt vallarsvæðið þar sem leikurinn fer fram. Þetta yfirbyggða rými á Laugardalsvelli fellur að sjálfsögðu undir það líka og það er ekki hugsað sem áhorfendasvæði þar sem útvaldir geta verið að höndla með áfengi. Stefna KSÍ í þessum efnum er skýr og frá henni verður ekki vikið. Félögin sem hafa afnot af aðstöðunni þegar heimaleikir þeirra fara fram verða hins vegar að bera ábyrgð á því að þessari stefnu sé framfylgt.”

Ég segi bara Amen á eftir efninu.

Fært undir Íþróttir | 2 ummæli »

dv.is … alltaf í sportinu

Fært af Henry Birgir þann 30. september 2007

dv.is var hleypt af stokkunum á dögunum undir hinu stórskemmtilega slagorði: “Hvað er frétta?”(lesist með rússneskum hreim). Auglýsingar þess efnis voru keyrðar í hinum ýmsu miðlum og þar á meðal í DV.

Eftir að hafa birt slagorðið “Hvað er frétta?” tvo daga í röð í DV ákváðu dv.is menn að breyta slagorðinu í “Hvað er AÐ frétta?”. Það þykir víst betra. Samt áhugavert að dv.is og visir.is skuli þar með keyra á sama slagorðinu. Hélt það væri kynding hjá dv.is að vera með eins slagorð mínus að-ið.

Það vekur vissulega athygli að vefurinn skuli hafa tekið þá ákvörðun að sneiða algjörlega fram hjá íþróttafréttum. Slíkt er reyndar engin nýlunda þegar menningarvitar stýra fjölmiðli, þeir virðast ekki trúa því að til sé fjöldi fólks sem lesi íþróttafréttir á degi hverjum og hægt sé að hafa íþróttir með hinu “æðra” efni að þeirra mati. Þeir telja að það sé meiri áhugi á íslenskum þýðingum rússneskra rithöfunda eða eitthvað álíka.

æ æ

Hef séð þetta áður. Svo þegar halla fer undan fæti birtast íþróttafréttirnar smám saman og verða sífellt meira áberandi. Af hverju ætli það sé? dv.is virðist vera að sjá ljósið í rólegheitum og ég sá mína fyrstu íþróttafrétt þar í dag um Íslandsmeistaratitil Vals.

Ekki tókst betur til en svo að greinarhöfundur klúðraði millinafni markaskorarans sem hann kallaði Atla STEIN en drengurinn heitir Atli SVEINN eins og allir knattspyrnuunnendur vita. Fall er fararheill.

Fært undir Íþróttir | 1 ummæli »

Fyrirsögn dagsins

Fært af Henry Birgir þann 29. september 2007

Hér hefur áður verið minnst á gullmola Alberts Arnar Eyþórssonar, íþróttafréttamanns Blaðsins, en hann á oft tíðum magnaða og einkennilega spretti á síðum Blaðsins.

Þess má reyndar geta í framhjáhlaupi að Albert fann upp salsadansinn en það er staðreynd sem ekki er öllum kunnug.

Albert á dýnamíska fyrirsögn í dag sem fær fullt hús hjá undirrituðum.

There u go

Fært undir Íþróttir | Engin ummæli »

Lokadagur í Flensburg

Fært af Henry Birgir þann 27. september 2007

Dagur að kveldi kominn í Flensburg og rúmlega það. Þarf að leggja í hann til Köben eftir fimm tíma. Búin að vera fín og árangursrík ferð.

Hápunkturinn var að sjálfsögðu í Campushalle í kvöld. Er búinn að upplifa ansi margar skemmtilegar stundir á handboltaleikjum erlendis í gegnum tíðina og ég skil hreinlega ekki af hverju það er ekki gert út á handboltaferðir frá Íslandi.

Það er tær snilld að fara á háklassahandboltaleik með frábærri umgjörð. Það besta við leiki eins og í kvöld er að Íslendingar eru að spila og það ekki í neinum aukahlutverkum. Það gerir skemmtunina enn meiri. Frábært að sjá þrjá fulltrúa Íslands á vellinum í kvöld, háklassaíþróttamenn og frábærar fyrirmyndir.

Skora á ferðaskrifstofurnar að girða sig í brók og standa fyrir handboltaferðum á leiki eins og í kvöld. Þetta er óplægður akur.

Það besta við kvöldið var að hitta Rafnar bróðir sem kom óvænt frá Danmörku. Það var mjög gaman að sjá kallinn. Átti ekki von á að sjá hann meira í ár og hvað þá á handboltaleik í Flensburg. Tók mynd af okkur aðeins á myndavélina mína en ekki símann þannig að hún bíður birtingar.

Það leiðinlegasta við kvöldið voru meiðslin hjá Einari. Mjög erfitt að horfa upp á það. Eins og maður var ánægður að hann væri loksins að fá sénsinn. Óheppnin eltir greyið strákinn á röndum og það var ekki auðvelt verk að taka viðtal við hann eftir leikinn. Hann bar sig þó vel eins og venjulega.

Það var að sama skapi unun að horfa á Ólaf Stefánsson, þvílíkur handboltamaður. Maðurinn er hreinn listamaður. Hann schkeindi mönnum hvað eftir annað og spilaði fantavörn. Magnaður.

Elvis

Kallinn mættur í Campushalle, einbeittur á svip með sixpensarann.

flensciu1.jpg

Hann var þétt setinn bekkurinn.

flensciu2.jpg

Loftfarið gerði ekki ónýtt mót. Má sjá fagmanninn í bláu vesti til venstri.

Skal

Þegar menn höfðu lagt niður störf í kvöld var í lagi að slaka aðeins á. Rúlluðum okkur í Vippið með Einari Þorvarðar og tókum gott spjall í lok ferðar. Það var mjög ánægjulegt. Villi fékk sér kaldan og átti það vel skilið eftir góða frammistöðu. Fyrir aftan má sjá Fynn Holpert, framkvæmdastjóra Flensburg. Hann var hress.

Leikmenn Flensburgar

Þarna má sjá glitta í nokkra leikmenn Flensburg og fjölmiðlatengilinn Zitu sem reyndist okkur vel. Toppkona þar á ferð.

Hver er tetta?

Þar sem ég er þekktur gagnrýnandi ”Vippa” fór ég eðlilega huldu höfði.

Fært undir Íþróttir | 5 ummæli »

Villi borðar og borðar

Fært af Henry Birgir þann 27. september 2007

Fyrir þá sem hafa áhyggjur af honum Villa mínum þá skal það tekið skýrt fram að hann hefur ekki sleppt máltíð í dag.

svangur villi minn

Í hádeginu var farið á ítalska veitingastaðinn Roma. Þar át Villi pizzu.

Yummi

Vorum að vinna fram á nótt og eini staðurinn þar sem var hægt að fá að borða var McDonald´s. Villi tók vel á því.

Fært undir Íþróttir | 1 ummæli »

Fjör í Flensburg

Fært af Henry Birgir þann 27. september 2007

Virkilega góður dagur hjá okkur félögum í gær. Afköstuðum miklu og komumst yfir allt sem við ætluðum að gera og rúmlega það. Meðal þess sem við gerðum var að heimsækja Einar og Elfu Björk sem og Alex og Eivoru. Skemmst frá því að segja að þau voru öll höfðingjar heim að sækja. Það var bakað fyrir okkur og alles. Yndislegt fólk, við þökkum kærlega fyrir okkur enn og aftur.

Skelltum okkur síðan á æfingu hjá Flensburg þar sem starfsemi félagsins var skoðuð ásamt því sem ég átti athyglisverð spjöll við áhrifamenn innan félagsins. Það var mjög góð heimsókn líka.

Að endingu tókum við á móti Ciudad Real í Campushalle. Óli var frekar hissa að sjá okkur. Var annars ferskur og leit vel út kallinn. Verður gaman að sjá alla strákana spila í kvöld, vonandi fær Einar einhverjar mínútur. Fáranlegt hvað hann er lítið notaður.

Fardu adeins til vinstri…

Fagmaðurinn segir Einari og Elfu hvernig eigi að bera sig að í myndatökum.

Komdu niður sogdu pabbi og mamma

Þetta var alvöru prógramm og kallinn skellti sér upp á stól til að mynda. Svona eiga bændur að vera.

hnegg hnegg

Íslendingarnir búa í sveit, óhætt að segja það. Hinum megin við götuna hjá Einari og Elfu eru þessir hestar.

Fagmaðurinn ad storfum

Alex, Eivor og Lúkas búa ekki fjarri Einari og Elfu. Skemmtilegt að segja frá því að við hliðina á þeim býr þjálfari Flensburg, Kent-Harry Anderson. Við hlið hans er síðan Norðmaðurinn alræmdi Johnny Jensen.

Kent Harry

Það er lítill glamúr yfir æfingasal Flensburg. Hann er af gamla skólanum, lágt til lofts og stutt í veggina. Minnti mig að vissu leyti á íþróttasal Miðbæjarskólans. Kent-Harry var hress og stýrði æfingunni af ákveðni.

Held að leikurinn sé sýndur á Eurosport 2, annað hvort beint eða aðeins á ská á milli 18-19. Mæli með að menn kíki á alvöru handbolta og stemningu. Þetta verður flott.

Fært undir Íþróttir | 3 ummæli »

Villi borðar

Fært af Henry Birgir þann 27. september 2007

Bið lesendur síðunnar afsökunar á að hafa gleymt að uppfæra hinn stórskemmtilega lið Villi borðar. Strákurinn vill ekkert borða nema steikur þessa dagana og það helst í öll mál.

hvar e syrdi rjominn?

Eins og sjá má er varla pláss fyrir steikina út af sýrða rjómanum sem Þjóverjarnir hata alveg að smyrja ofan í kartöflurnar. Villi er björgunarsveitarmaður en var samt um 18 mínútur að grafa kartöfluna úr haugnum en það var engu líkara en kartaflan hefði lent í snjóflóði nema með sýrðum rjóma.

Svangur

Ánægjusvipurinn leyndi sér ekki þegar kallinn gat loksins byrjað að gúffa í sig.

Hvað ætli Villi borði í dag?

Síðuhaldari biðst annars afsökunar á myndgæðunum en samningaviðræður við símarisana um síma með almennilegri myndavél hafa enn engan árangur borið.

Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Heilbrigði, Matur og drykkur | Engin ummæli »

Otto enn sjóðheitur í Þýskalandi

Fært af Henry Birgir þann 26. september 2007

Þegar ég var svona sjö ára voru Bros, Sandra og Otto heitustu artistarnir í Þýskalandi.

Storkostlegur

Óhætt að segja að mig hafi rekið í rogastans í dag þegar ég sá að Otto er enn í fullu fjöri hér ytra og skemmtir í stórum íþróttahöllum víða um landið.

Á morgun er Flensbug-Ciudad Real í Campushalle og 2. okt er komið að Otto. Magnað.

Fer hver að verða síðastur að næla sér í miða.

Fært undir Alþjóðamál, Heilbrigði, Kvikmyndir, Menning og listir, Trúarbrögð | 6 ummæli »

Á milli landa með remúlaði í farteskinu

Fært af Henry Birgir þann 25. september 2007

Loksins kominn til Flensburg eftir hreint út sagt stórkostleg ferðalag. Langt síðan það var eins hressandi að ferðast. Læt myndir og myndatexta tala sínu máli.

Eta, eta, eta

Villi fagmaður er búinn að vera svangur síðan hann vaknaði í nótt og hefur ekki talað um annað en hvenær eigi að borða næst. Hann er hér í fyrstu, en alls ekki síðustu, máltíð dagsins á Keflavíkurflugvelli. Við hlið hans situr sjálf Digranesdóttirin Alma.

Skal i bjor og brugal

Hittum meistara Jón Digranes og hann var ekkert í ruglinu heldur bara í köldum og svo beint í Brugal. Þvílíkur toppmaður og við áttum góða stund með honum á vellinum. Ekkert svo traust að byrja daginn á að hitta Digranesmanninn.

KOMA SVOOOO

Þegar við komum til Köben fengum við lykla að bílaleigubíl sem Handsy og félagar hjá Hertz redduðu. Ekki vildi betur til en að í bílastæðahúsinu var lyftan biluð. Urðum því að labba upp með græjurnar. Man ekki hvað við fórum hátt en það var að lágmarki 18 hæðir. Ég fór létt með það en Villi var þreyttur þó svo hann hafi verið með minni farangur.

Smooth ride

Fengum þennan fína Mondeo station sem er ekki búið að keyra nema 10 þúsund. Klassakerra.

Edlilegt

Það besta við bílinn var samt að í hólfinu á milli sætanna var flaska af remúlaði einhverra hluta vegna. Eðlilegt. Frekar öflugt prógramm þar á ferð. Flaskan mun klára ferðina með okkur, stórskemmtilegur ferðafélagi.

Alltaf hress

Fórum frá Kastrup beint til Nyhedsavisen sem er litla systir Fréttablaðsins. Að sjálfsögðu var brugðið á leik enda menn í banastuði.

Saetir og seidandi

Eins og það hefði ekki verið nóg að rekast á Digranesið og finna remúlaði í bílnum þá var það fyrsta sem blasti við okkur fyrir utan Nyhedsavisen einn Vallsy love og ekkert svo huggulegur róni sem var að drekka einhvern bjór sem ég þekkti ekki. Klárlega verri en rauður Faxe samt. Við migum nánast á okkur úr hlátri. Valli ætlaði aldrei að losna við gaurinn. Gott stopp á Nyhedsavisen.

Omar Ragnarsson anyone?

Tókum kaffi með Vallsy og Tedda Jónasar sem var jú í badminton í hádeginu. Brjálað að gera hjá kallinum. Svo var sest upp í Mondeoinn á ný með remúlaðinu og navigatornum sem ólíkt síðustu ferð minni talaði ensku. Ekkert neues ziel og álíka kjaftæði. Sá galli var á gjöf Njarðar að 12 voltin virkuðu ekki nema í skottinu og því var kellingin að lesa yfir okkur úr aftursætinu. Mæli ekki með því að horfa á navigator sem er í aftursætinu. Tók samt sterka mynd á leið yfir brúna stóru. Var örugglega á svona 340 km/h þegar ég tók myndina. Þvílíkur driver.

vondur skôur

Villi leyfði auðvitað ekki af 3 tíma akstur án matar þannig að við stoppuðum á dýnamískum Monarch þar sem var “reynt” að éta kjúklingaborgara. Er enn illt í maganum en samt í góðu stuði.

Hef ekki tíma fyrir meira í bili. Villi stendur hérna yfir mér og vill komast í mat og það STRAX !!!

Fært undir Íþróttir | 8 ummæli »

 
Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning