Hugleiðingar Húsvíkings

Færslur október, 2007

Gaddinn snýr aftur

Fært af Henry Birgir þann 31. október 2007

Það gleður mig óendanlega mikið að tilkynna mínum fjölmörgu aðdáendum að einn áf mínum uppáhaldsbloggurum, Garðar Örn Hinriksson aka Gaddinn aka Raðspjaldarinn aka Reykásinn aka Rauði Baróninn, og svo mætti lengi telja, er mættur aftur í netheima.

Þar sem ég veit að hann hatar alveg athyglina þá fær hann að sjálfsögðu sérstakt plögg hjá mér.

Garðar er ákaflega vel gefinn maður og því þarf ekki að undra að hann hafi séð ljósið og sé búinn að flýja Bolinn á hinu ömurlega Moggabloggi. Garðar hefur þess í stað kosið að koma í faðm fallega, fræga og vel gefna fólksins hér á Vísi. Þar á hann svo sannarlega heima.

Vertu velkominn, meistari.

Blogg Gaddans má nálgast hér.

Fært undir Íþróttir | 1 ummæli »

Nefbrot í handboltanum

Fært af Henry Birgir þann 30. október 2007

Það gengur oft mikið á í handboltaleikjum og umdeild atvik oftar en ekki mörg.

Eitt þessara umdeildu atvika átti sér stað í leik HK og Fram á dögunum. Þá tókust HK-ingurinn Arnar Þór Sæþórsson og Framarinn Jón Þorbjörn Jóhannsson á. Arnar fer augljóslega með olnbogann í andlitið á Jóni sem nefbrotnaði fyrir vikið.

Stuðningsmaður Fram náði góðum myndum af atvikinu og birtir á síðu sinni. Hægt er að sjá myndbandið hér.

Stóra spurningin er: Viljandi eða óviljandi?

Fært undir Íþróttir | 7 ummæli »

Fjör í Safamýrinni

Fært af Henry Birgir þann 30. október 2007

Það var boðið upp á verulega hressandi leik í Safamýrinni í kvöld. Gjörsamlega fullt út úr dyrum og stemningin frábær. Umgjörðin hjá vinum mínum í Fram var til mikillar fyrirmyndar í kvöld og ber að hrósa þeim fyrir það.

Það er alltaf mögnuð stemning þegar þessi lið mætast og rígurinn skemmtilegi sem er á milli félaganna skilaði sér út á völlinn. Þessi lið mættu mætast einu sinni í viku, svo gaman er að horfa á þau spila.

Læt annars myndirnar tala sínu máli.

tannsi

Tannlæknirinn geðþekki, Kjartan Ragnarsson, tók á móti undirrituðum með virktum. Bauð upp á kaffi og kruðerí og eitthvað meira til ef menn hefðu tíma til að kíkja á bakvið. Lét mér kaffið nægja sem var mjög gott. Netið virkaði líka. Mjög gott.

blom og kossar

Umgjörðin var eins og fyrr segir Fram til sóma og það var vel til fundið hjá Fram að láta Jón Eggert, formann handknattleiksdeildar, færa Sigfúsi Páli blóm fyrir leikinn. Siffa leið annars augljóslega ekki vel og var slakur.

hatadi ad vera a bekknum

Halldór Jóhann var lengi í gang í gær en var þokkalegur í seinni. Hann fær hér væna yfirhalningu frá Einari Jóns sem hataði alveg að fá að vera á bekknum í gær. Nældi sér í spjald hjá Tonanum og hataði það líka. Ánægður með þig Einsi minn. Annars var sagt í kvöldfréttum Rúv að Halldór væri að mæta sínum fyrrum félögum en fréttamaður var þar eitthvað að ruglast á leikmönnum.

Einar Kara yngri

DV-menn voru með nöfn Framara á kristaltæru. Rúnar Kárason var allt í einu orðinn Einar Kára og verður ekki þekktur undir öðru nafni hér eftir.

alltaf svangur

Sem fyrr ákvaðu DV-liðar að bíða með matartíma alveg fram að leik. Ég hélt fyrst að þeir hefði verið fengnir í að kaupa mat ofan í gesti í leikhléi miðað við fjölda poka sem þeir mættu með. Pokarnir átján voru svo aðeins ofan í þrjá einstaklinga. Þessir menn eru enn að bæta met í áti. Sómi að því. Benni hataði ekki Sbarrossinn og fékk sér í vör á eftir. Íslenskt, já takk.

Ekkert gradugir nei nei

Viddi og Höddi máttu hafa sig allan við að klára matinn áður en leik lauk enda með um 3 kíló á mann. Þeir sjást hér báðir með stútfullan munninn. Þetta er mynd kvöldsins.

Fært undir Íþróttir | 13 ummæli »

Af hverju lá KSÍ svona á?

Fært af Henry Birgir þann 30. október 2007

Mynd / GloráHlutirnir gerðust hratt í Laugardalnum um helgina. Eyjólfur hvarf af vettvangi á laugardaginn og KSÍ komst að samkomulagi við Ólaf Jóhannesson degi síðar. Án þess að kasta nokkurri rýrð á ráðningu Ólafs þá furða ég mig á þessum vinnubrögðum Knattspyrnusambandsins.

Af hverju lá mönnum svona lífið á? Tímapressa var fyrsta svar Geirs á blaðamannafundinum. Hvaða tímapressa? Fyrir það fyrsta þá eru nokkrar vikur í næsta leik sem nota bene skiptir nákvæmlega engu máli. Gunni Gylfa hefði þess vegna mátt stýra liðinu í þeim leik.

Ráðning landsliðsþjálfara er mikilvægari en svo að það sé gert í einhverju óðagoti. Eftir þennan tilgangslausa Danaleik kemur margra mánaða landsleikjafrí sem hefði mátt nýta vel.

Það er eitthvað mikið að hjá landsliðinu. Það sjá allir. Hefði verið ánægjulegt að sjá KSÍ tækla málið af yfirvegun og skynsemi. Datt Geir til að mynda ekki í hug að ræða við leikmenn og kanna hug þeirra á því sem sé að og hvað þeir telji að þurfi að breytast svo liðið nái árangri? Hefði það skaðað? Hvað með að auglýsa stöðuna og athuga hverjir hefðu áhuga? Hvað aðrir menn kostuðu?

Ólafur var svo sannarlega ekki á förum. Nýhættur með FH og ætlaði að taka sér frí frá fótbolta. Hann hefði líklega verið áfram laus eftir nokkrar vikur. Það var engin ástæða til að afgreiða þetta mikilvæga Mynd / Glorámál á einum degi.

Persónulega líst mér ágætlega á Ólaf sem þjálfara. Ég reyndar skil ekki nánasarháttinum í KSÍ að ráða ekki þjálfara í fullt starf. Búa síðan til almennilega umgjörð í kringum þjálfarann og liðið enda flaggskip íslenska fótboltans. Þegar Geir tók við sem formaður var umgjörðin aldeilis bætt í hans starfi og launin hækkuð verulega. 

Ólafur á verk fyrir höndum. Það dylst engum. Verk hans er klárlega mjög erfitt ef mið er tekið af sögum um agaleysi leikmanna og annað því tengdu. Formaðurinn eyddi þeirri spurningu í Kastljósinu á þann hátt að landsliðsmennirnir hefðu verið erfiðari í gamla daga. Hverslags svar er það? Er þetta agaleysi léttvægt í huga formannsins?  Hefur hann virkilega engan áhuga á að tækla það af alvöru?

Það verður líklegi stærsti slagur Ólafs. Að aga hópinn til og fá þá til að bera virðingu fyrir reglum sem og þjálfaranum. Fyrsta lota verður í Danmörku og ef Ólafur stendur hana ekki almennilega af sér er hætt við að það verði á brattann að sækja hjá honum það sem eftir lifir bardagans. Miðað við það sem maður hefur heyrt þá veitir ekki af að leggja strax ákveðnar grundvallarreglur sem ekki mega brjóta.

Ólafur verður að bjóða leikmönnum birginn og endurtaka það sem hann sagði í gær - að hann ráði. Hann verður að gera leikmönnum ljóst að lúti þeir ekki hans reglum verði þeim hent út og jafnvel að ástæður þess verði gefnar upp opinberlega. Get ekki séð að neitt annað dugi í þessum slag.

Það koma svo sannarlega ferskir vindar með Ólafi í starfið eins og sjá mátti á blaðamannafundi í gær. Kærkomin tilbreyting frá Eyjólfi sem er góður drengur en ekki sérstaklega fjölmiðlavænn og talar eingöngu í klisjum. Hann gaf aldrei af sér og var kallaður leiðinlegur í leiðara fyrir nokkrum mánuðum síðan. Man ekki eftir að það hafi gerst áður.

Ólafur er mikið ólíkindatól og maður veit aldrei hvað hann segir næst. Hann er oftar en ekki heiðarlegur og hnyttinn í tilsvörum. Það kunna bæði fjölmiðlamenn og knattspyrnuunnendur að meta.

Það verður því talsvert meira fjör í kringum Ólaf en var í kringum Eyjólf. Það er vel.  Ég býð Ólaf velkominn til starfa og óska þess að honum takist að rétta skútuna af en hún er algjörlega á hvolfi í dag.

Fært undir Íþróttir | 2 ummæli »

Ungur íþróttafréttaritari Þjóðviljans

Fært af Henry Birgir þann 30. október 2007

vidirsig6.jpgHjalti félagi minn rakst á ansi skemmtilegt viðtal við vinnslu ritgerðar í Háskólanum á Akureyri.

Þar er sjálfur Víðir Sigurðsson, félagi minn af Morgunblaðinu, í eftirminnilegu viðtali. Viðtalið er fimmtán ára gamalt en þá hélt Víðir úti dýnamískri sportsíðu á Þjóðviljanum sáluga.

Hægt er að smella á myndina til að sjá stærri mynd og lesa viðtalið.

Held annars að Víðir sé enn að nota sömu möppuna.

Fært undir Íþróttir | 8 ummæli »

Færsla númer 500

Fært af Henry Birgir þann 30. október 2007

Var að reka augun í að þessi færsla er númer 500 hjá mér. Allar 499 færslurnar voru að mínu mati tær snilld en þessi tímamótafærsla er svo sannarlega af ódýrari gerðinni.

Fært undir Íþróttir | 4 ummæli »

Carlos Tévez er þræll í eigu rússnesku mafíunnar

Fært af Henry Birgir þann 29. október 2007

Ráðstefnan “Play the Game” fer fram hér á landi þessa dagana og íþróttafréttamenn úr öllum heimshornum eru staddir hér á landi vegna hennar. Margt athyglisvert á dagskrá ráðstefnunnar en ég get því miður ekki verið viðstaddur alla þá fyrirlestra sem ég hef áhuga á.

Fór samt á nokkra mjög áhugaverða í dag þar sem spilling í íþróttaheiminum var í fyrirrúmi. Fyrirlesarar komu frá Nígeríu, Eþíópíu, Brasilíu og Argentínu.

Fyrirlesturinn um ástandið í knattspyrnuheiminum í Nígeríu vakti hjá mér áhuga. Þar eru flest liðin í eigu ríkisins. Ríkið og forkólfar knattspyrnusambandsins stinga síðan öllu undan sem þeir geta. Ríkið vill ekki að einstaklingar eignist félögin. Gangi liðunum vel gætu einstaklingarnir orðið það þekktir og vinsælir að þeir gætu komist til pólitískra metorða.

Umhverfi íþróttafréttamanna í Nígeríu er mjög sérstakt og ekki óalgengt að þeim séu boðnar mútur af félagsliðum. Hafni menn mútunum eru þeir sakaðir um að hafa þegið mútur frá andstæðingunum. Blaðamennirnir vinna aldrei.

Fyrirlestrarnir sem ég beið annars spenntastur eftir voru annars vegar um Carlos Tévez og síðan um hið umdeilda Media Sports Investment eða MSI sem hefur verið mikið í fjölmiðlum síðustu mánuði enda stóð félagið á bakvið Íranann Kia Joorabchian er hann reyndi að kaupa West Ham og stóð fyrir því að Tévez og Mascherano fóru til West Ham.

Fyrirlestrarnir komu hver á fætur öðrum enda efnið vel tengt. Í fyrirlestrunum var því haldið blákalt fram að Carlos Téves væri þræll í eigu rússnesku mafíunnar. Tévez fór á kostum með Boca Juniors í Argentínu og í stað þess að vera seldur til stóru liðanna í Evrópu var hann seldur í hendur rússnesku mafíunnar að mati fyrirlesaranna. Þ.e.a.s Tévez var seldur til brasilíska liðsins Corinthians í desember 2004 sem er í raun stjórnað af MSI sem náði völdum hjá félaginu á umdeildan hátt árið 2004 gegn því að kaupa stórar stjörnur til liðsins. MSI eignaðist um leið Tévez.

Það er umtalað að MSI sé í eigu rússnesku mafíunnar og þar fari fremstir í flokki milljarðamæringarnir Boris Berezovsky og svo Roman Abramovich, eigandi Chelsea. Eftir því sem fram kom þá er Tévez í eigu MSI þar til samningur hans við Man. Utd rennur út.

Ætla ekki að fara ítarlegar í málið en það er mun áhugaverðara en mig óraði fyrir í fyrstu og gaman að heyra menn sem þekkja málið ítarlega tjá sig um það.

Fært undir Íþróttir | 4 ummæli »

Ólafur tekur við af Eyjólfi

Fært af Henry Birgir þann 29. október 2007

Þá er það staðfest. Ólafur Jóhannesson stýrir íslenska landlsiðinu í næstu undankeppni og gegn Dönum.

Ólafur var fyrsti kostur KSÍ í starfið og aðrir möguleikar voru ekki skoðaðir.

Hvað finnst mönnum um þessa ráðningu?

Fært undir Íþróttir | 21 ummæli »

NFL á Wembley

Fært af Henry Birgir þann 28. október 2007

Áhugaverður íþróttaviðburður á sér stað í Lundúnum í dag og ég er ekki að tala um leik Tottenham og Blackburn.

New York Giants og Miami Dolphins mætast í deildarleik á sjálfum Wembley-leikvanginum. Verður örugglega skrítið að horfa á amerískan fótbolta á þessum magnaða leikvangi. Þetta er aðeins í annað sinn sem leikur í deildinni fer fram utan Bandaríkjanna.

Leikurinn verður örugglega ekki mjög spennandi enda er Dolphins lélegasta lið deildarinnar en Giants er með þeim heitari enda búið að vinna fimm leiki í röð. Dolphins er búið að skíttapa öllum sínum leikjum.

Verður gaman að sjá Eli Manning sem er litli bróðir Peytons Manning hjá Colts. Miklar kröfur gerðar til Manning enda valinn fyrstur í nýliðavalinu á sínum tíma rétt eins og bróðir hans.

Ég er persónulega mjög spenntur fyrir þessum viðburði en leikurinn hefur vakið mikla athygli um allan heim og um milljón manns sóttu um miða en “aðeins” 90 þúsund komast að. Það eitt og sér segir ýmislegt um áhugann á viðburðinum og sportinu.

Geri fastlega ráð fyrir því að Eggert Magnússon verði á svæðinu en hann er mikill aðdáandi amerísks fótbolta.

Að gefnu tilefni er rétt að taka fram að engin neikvæð ummæli um NFL verða leyfð á þessari síðu.

Fyrir áhugasama má geta þess að leikurinn hefst klukkan 17 og er í beinni á Sýn.

Fært undir Íþróttir | 11 ummæli »

Eyjólfur rekinn !!!

Fært af Henry Birgir þann 27. október 2007

Í lítilli falinni frétt á ksi.is kemur fram að Eyjólfur Sverrisson verði ekki endurráðinn sem landsliðsþjálfari og að hann muni ekki stýra landsliðinu gegn Dönum í lok næsta mánaðar.

Þetta er kúvending á fyrri afstöðu KSÍ sem hafði gefið það út að Eyjólfur myndi klára Danaleikinn þó svo samningur hans myndi renna út um næstu mánaðamót. Í kjölfarið yrði staðan skoðuð.

Ætli umræða gærdagsins um agavandamál og agaleysi liðsins hafi eitthvað haft að gera með þessa ákvörðun?

Fært undir Íþróttir | 21 ummæli »

 
Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning