Hugleiðingar Húsvíkings

Færslur mars, 2008

Styttist í kvöld ársins

Fært af Henry Birgir þann 31. mars 2008

Dagurinn er 12. apríl. Staðurinn er Fosshótel Húsavík. Þetta verður gjörsamlega magnað. Húsvíkingar og nærsveitarmenn fjölmenna án vafa og það er von á bílalest að sunnan enda ómissandi menningarviðburður hér á ferðinni.

partei

Get ekki séð hvernig nokkur maður ætti að geta sleppt þessu kvöldi?

Fært undir Íþróttir | Engin ummæli »

Til hamingju, Haukar

Fært af Henry Birgir þann 30. mars 2008

Íslandsmóti karla í handbolta er lokið í mars og ekki einu sinni byrjað að sýna frá mótinu í Sjónvarpinu.

Rúv sýnir þá kannski leiki úr kvennadeildinni. Held það sé ekki enn búið að að sýna beint frá kvennaleik í deildinni í vetur.

Til hamingju, Haukar. Þið eruð vel að þessu komnir.

Aron Kristjánsson fær sérstakt hrós. Hann er búinn að gera magnaða hluti með Haukana á sínu fyrsta ári með liðið. Hefur blásið nýju lífi í lið sem var á mikilli niðurleið. Það er vel af sér vikið.

Það sem mér finnst aðdáunarvert við Haukaliðið er hversu sterka liðsheild Aron hefur skapað. Nánast undantekningalaust leggja allir leikmenn liðsins sitt lóð á vogarskálarnar og það eru ekkert einn eða tveir leikmenn sem halda liðinu á floti.

Varnarleikurinn er einnig magnaður þar sem Eyjapeyjarnir Arnar, Gunnar Berg hafa verið frábærir í vetur. Markvarsla liðsins er sjaldnast eitthvað sérstök, vörnin sér oftar en ekki um hlutina. Sá leik með þeim um daginn þar sem vörnin varði fleiri bolta en markverðirnir. Það er magnað.

Fært undir Íþróttir | 10 ummæli »

Var tækling Diaby eitthvað skárri en hjá Taylor?

Fært af Henry Birgir þann 30. mars 2008

Mikið rifist í dag um háskalega tæklingu Diaby á Grétar Rafn Steinsson og eðlilega eru menn að bera hana saman við tæklingu Taylors á Eduardo á dögunum.

Wenger er ekki á því að hægt sé að bera þessar tæklingar saman en sitt sýnist hverjum í þeim efnum. Ljóst má vera að Grétar mátti þakka fyrir að sleppa heill úr þessum viðskiptum.

tackles

Vísir er með frábæra frétt um málið og myndskreytingin sem ég birti hér er einstaklega góð. Getið skoðað fréttina hjá Vísi til að sjá myndina stærri.

Hvað finnst mönnum? Er tækling Diaby eitthvað skárri en tækling Taylors?

Fært undir Íþróttir | 17 ummæli »

Skitur dagsins

Fært af Henry Birgir þann 29. mars 2008

Það voru tvær áberandi miklar skitur á íþróttavellinum í dag. Annars vegar frammistaða Fram gegn ÍBV og svo frammistaða Bolton gegn Arsenal.

Ég hef séð fleiri leiki með ÍBV í vetur en ég kæri mig um og ég næ því bara ekki hvernig gott lið eins og Fram fór að því að tapa fyrir ÍBV og það sannfærandi. Með fullri virðingu fyrir þeim mönnum sem leika með ÍBV þá er þetta lið eitt það allra lélegasta sem ég hef séð í áraraðir.

Hvað voru Framarar eiginlega að gera í þessum leik? Ágætt ef einhver gæti frætt mig um það. Lið sem tapar fyrir ÍBV með fimm mörkum á heimavelli á einfaldlega ekki skilið að verða meistari.

Svo var ævintýralegt að fylgjast með klúðri Bolton gegn Arsenal. Bolton er 1-0 yfir og Arsenal missir mann af velli. Bolton kemst í 2-0. Hálfleikur.

Arsenal skorar svo þrjú í síðari hálfleik og vinnur leikinn. Bolton á skilið að vera í botnsæti. Þetta er átakanlega léleg frammistaða.

Engin úrslit í fyrstu leikjum úrslitakeppni Iceland Express-deildar karla komu mér á óvart. Spurning hvort ég verði sannspár um næstu leiki?

Fært undir Íþróttir | 13 ummæli »

Besta stuðningsmannalag allra tíma

Fært af Henry Birgir þann 28. mars 2008

VollararStuðningsmannalög íþróttafélaga eru eins misjöfn og þau eru mörg. Sum eru alveg ævintýralega léleg, önnur svo stórkostlega léleg að þau verða tær snilld.

Inn á milli eru síðan góð lög og nokkur alveg mögnuð.

Það er samt klárlega á engan hallað þegar sagt er að stuðningsmannalag Völsungs, Allir í gallana, beri höfuð og herðar yfir önnur stuðningsmannalög. Það er einfaldlega tær snilld.

Magnað rokk og stórkostlegar þjálfararæður. Endakaflinn einstakur. Ef menn komast ekki í stemmara yfir þessu lagi þá geta þeir vart talist lifandi. Það er ekkert flóknara en það.

Lagið er loks orðið aðgengilegt á leikmannasíðu Völsungs. Snilldina má heyra hér.

Fært undir Íþróttir | 1 ummæli »

Íslandsmet í plöggi

Fært af Henry Birgir þann 28. mars 2008

ploggHin stórskemmtilega úrslitakeppni í Iceland Express-deildar karla hefst í kvöld og það leyndi sér ekki í þættinum Utan vallar í gær þar sem Friðrik Ingi og Böðvar Guðjóns settu líklega Íslandsmet í plöggi á stuttum tíma. Orðin Iceland Express, Lýsingarbikarinn, Poweradebikarinn, Shell og DHL-höllin hafa líklega aldrei áður heyrst eins oft á eins skömmum tíma og í gær.

Ekkert að því heldur, þessir menn eru bara að vinna sína vinnu og gera vel við sína styrktaraðila. Okkur Seth fannst þetta aftur á móti bráðfyndið er við fylgdumst með plögginu á kaffistofunni. Létum þá síðan vita af þessu nýja Íslandsmeti er þeir stigu móðir og másandi upp úr stólunum eftir allt plöggið. Bara gaman að þessu.

Fringi ætti reyndar að taka Böðvar sér til fyrirmyndar í greiðslumálunum. Böddi býður upp á rándýran Riley í bland við skeggið á meðan Fringi er með allt greitt fram sem er ekki að gera sig eins og margoft hefur komið hér fram áður. Lagði að sjálfsögðu inn enn eina kvörtunarbeiðnina við Fringa er hann hélt því fram að þessi greiðsla væri komin til að vera.

Neita hreinlega að sætta mig við það. Eins og BB sagði svo réttilega þá sér maður varla fram á að hægt verði að halda úrslitakeppnina án Riley-greiðslunnar hjá Fringa. Stend í þeirri trú að Fringi mæti “rétt” greiddur er leikur KR og ÍR fer fram í DHL-Höllinni klukkan 16 á morgun svo ég haldi plögginu áfram fyrir Böðvar. Helstu styrktaraðilar leiksins sýnist mér vera Penninn, Landsbankinn, Herbalife og svo Parket og Gólf. Sendi þér svo gíró fyrir þessu plöggi, Böddi minn.

Rimmurnar í úrslitakeppninni eru annars þrælskemmtilegar:

Keflavík-Þór:
Þó svo Keflavík hafi aðeins verið að gefa eftir er of mikil reynsla og hæfileikar í þessu Keflavíkurliði að það láti Þór stöðva sig. 2-0.

Grindavík-Skallagrímur:
Skallarnir á niðurleið en hafa oft bitið frá sér og á stundum gert Grindavík lífið leitt. Skallarnir vinna heimaleikinn en tapa rimmunni, 2-1.

KR-ÍR:
ÍR er líklega síðasta liðið sem KR vildi mæta enda virðist þeim oftar en ekki ganga illa með Breiðhyltinga. KR var næstum dottið út fyrir þeim í fyrra og ÍR hyggur á hefndir. Held að ÍR nái fram hefndum og vinni 2-1.

Snæfell-Njarðvík:
Njarðvík valdið vonbrigðum í vetur. Enginn stöðugleiki og of margir menn ekki að skila sínu. Snæfell er aftur á móti á mikilli siglingu og rúllar þessu einvígi upp, 2-0.

Fært undir Íþróttir | 5 ummæli »

Eru trukkabílstjórar farnir að sniffa bensínið?

Fært af Henry Birgir þann 28. mars 2008

Maður gæti haldið það. Svo vitlausar eru þessar mótmælaaðgerðir þeirra. Rétt náði að skauta fram hjá tveimur trukkum áður en þeir fóru undir Kópavogsbrúna og þurfti að svo að leggja lykkju á leið mína á síðasta kaflanum á leið til vinnu svo ég kæmist án frekari tafa.

Ég styð persónulega að þeir mótmæli en hugmyndasmið aðgerðanna þarf að senda til Fjarskanistan. Með þessum aðgerðum sínum fá þeir nákvæmlega enga samúð borgaranna enda bitna aðgerðirnar á þeim sem síst skyldi. Saklaust fólk situr fast út í bæ, kemst ekki heim að ná í börnin sín, getur ekki skutlað þeim þangað sem þau þurfa að koma og svona mætti lengi telja.

Ef þessir prófessorar vilja ná eyrum æðstu ráðamanna þjóðarinnar væri þeim nær að umkringja alþingishúsið, stjórnarráðið og bílastæði þingmanna. Sjá til þess að þetta fólk kæmist ekki á fundi eða í næsta kokkteilboð. Ekki vera að trufla saklausa borgara sem ekkert hafa unnið til saka og myndu eflaust styðja við bakið á þessu fólki ef það mótmælti á aðeins gáfulegri hátt.

Fært undir Umræðan | 18 ummæli »

Sigur á Slóvakíu

Fært af Henry Birgir þann 26. mars 2008

10 mín: Byrjar ágætlega. Áhugavert að sjá hversu íslenska liðið pressar ofarlega í stað þess að bíða aftarlega eins og liðið gerir svo gjarnan. Hægri vængurinn að byrja ágætlega þar sem hlaup Grétars geta reynst mikilvæg.

15 mín: Fyrirliðinn byrjar vel. Hans sterkasta hlið er maður á mann eins og hann sýnir í upphafi leiks. Aldrei skilið hvernig þjálfurum hefur dottið í hug að hafa hann í bakvarðarstöðu þar sem hann er slakur.

22 mín: Truflaður af tveggja ára dóttur minni. Hún á að vera farin að sofa en krefst þess að fá Rice Crispies fyrir svefninn. Læt það eftir henni svo ég geti fylgst áfram með leiknum.

28 mín: Aðeins að hægjast á þessu hjá okkar mönnum. Ekki sama pressu ofarlega á vellinum. Miðjumenn Íslands að tapa baráttunni.

30 mín: Hættulegar aukaspyrnur hjá Slóvökum. Kjartan gerir vel í að verja.

35 mín: Eiður aðeins að verða pirraður. Fær lítinn stuðning frá miðjunni og Stefán klúðrar einföldum þríhyrning. Ekki sama að taka þríhyrning með Stefáni eða Messi.

40 mín: Skalli frá Slóvökum í stöng. Sýndist Ragnar sofa á verðinum, horfði á boltann og gleyma manninum. Stálheppnir að lenda ekki undir þarna enda algjört dauðafæri.

Hálfleikur: Markalaust í leikhléi. Þokkalegur fyrri hálfleikur ef litið er á stöðu leiksins. Vörnin ágæt og Kjartan öruggur fyrir aftan. Slóvakar lítið skapað en fengu eina alvöru færi leiksins er Ragnar gleymdi sér. Vorum heppnir þar. Miðverðir traustir. Bakverðir líka varnarlega en myndi vilja sjá þá báða prófa að færa sig aðeins framar. Grétar tók rispu framan af en síðan ekki söguna meir. Bjarni fer ekki fram yfir miðju og Emil fær því enga hjálp sem honum veitir svo sannarlega ekki af enda alls ekki að finna sig. Ekkert gert.
Miðjan ekki sérstök en Aron þeirra skástur. Standa ágætlega í vörn en gengur ekkert að halda boltanum og koma honum á fremstu menn og tala nú ekki um að styðja við bakið á sóknarmönnunum.
Elmar hefur verið frískastur þeirra sem eru fremstir en samt ekkert komið út úr hans leik sem segir meira en mörg orð um hversu ferskur sóknarleikurinn er. Hann er enginn.
Eiður í einskis manns landi og nýtist ekkert þarna einn frammi. Hann verður að koma aftar og Gunnar Heiðar fram. Það kemur enginn miðjumaður boltanum fram og því verður Eiður að koma til baka svo við getum byggt upp einhverjar sóknir.

Maggi “man in black” Gylfa og Óli Þórðar í settinu hjá Gaupa. Maggi vel sleiktur sem fyrr og lítið að grennast. Sakna Adidas-tuddans hans Óla. Þessi Dressman-Bola-Tuddi er ekkert að gera fyrir mig.

46 mín: Síðari hálfleikur byrjaður og það er boðið upp á snjókomu og augljóslega frekar kalt. Slóvakar skipta út tveim mönnum en við engum. Það eru vonbrigði. Nældi mér í rauðvínsglas í hálfleiknum. Vonandi hjálpar það strákunum. Hvernig það ætti að gera það hef ég ekki hugmynd um.

48 mín: Björgum á línu. Óli Jóh með húfu og skeiðklukkuna góðu. Bjarni Sig markvarðarþjálfari er með markmannshanska á bekknum. Sómi af því.

50 mín: Spes völlur þar sem stuttar, grænar brekkur fyrir aftan mörkin vekja óneitanlega athygli. Kjartan er búinn að skerða hár sitt örlítið frá síðasta sumri. Það vekur líka athygli.

55 mín: Fyrsta skot Íslands. Ekki opna kampavínið samt strax. Skotið fór nefnilega yfir markið.

59 mín: Óli Ingi með hressilega tæklingu og fær verðskuldað gult spjald. Jákvætt að sjá meira líf í honum í síðari hálfleik og Aron enn ágætur. Stebbi Gísla heldur áfram að valda vonbrigðum. Er hvorki með í vörn né sókn.

64 mín: Loksins skipting hjá Óla. Ekki beint skiptingin sem ég vildi sjá. Gunnar Heiðar inn fyrir Elmar sem er búinn að vera að lágmarki helmingi betri en Emil. Kannski fór Emil ekki af velli þar sem Óli man ekki eftir því að hann sé inn á? Á greinilega að halda sama kerfi með Eið fremstan. Hef ekki mikla trú á þessari breytingu, því miður.

66 mín: Allt að verða vitlaust. Atli Sveinn inn fyrir Grétar. Kristján fer þá væntanlega í bakvörðinn.

68 mín: Tveir ágætir krossar frá Emil. Afpantið björgunarsveitina. Emil er kominn í leitirnar sem og Stefán sem hefur skilað þrem sendingum í röð frá sér. Slóvakar fá svo tvö ágæt færi en við höldum áfram að sleppa fyrir horn.

71 mín: 0-1 fyrir Ísland!!! Ég pappíra mig. Bjarni Ólafur með fínan kross (held þetta sé í fyrsta sinn sem hann fer fram fyrir miðju) og Gunnar Heiðar tekur hann á lofti og smyr hann í samúel. Magnað mark. Eina skot Íslands á markið í leiknum. Ekki ónýt nýting það.

76 mín: Gudjohnsen með fína aukaspyrnu sem var vel varin.

79 mín: Enn eitt dauðafærið hjá heimamönnum en þeir eru blessunarlega ævintýralegir klaufar fyrir framan markið.

82 mín: 0-2 fyrir Ísland !!! Hornspyrna, ævintýralegt úthlaup í anda Pepe Reina, Eiður setur tána í boltann og hann fer í tómt markið.

87 mín: 1-2 fyrir Ísland. Slóvakar minnka muninn með góðu skoti frá markteig. 

90 mín: Veigar inn fyrir Eið. Gunni Gylfa stappar í hann stálinu það hlýtur að skila sínu. Skömmu síðar fer boltinn rétt framhjá íslenska markinu. Uppbótartími liðinn og Tryggvi fær að koma inn á. Honum finnst það gaman.

1-2 fyrir Ísland. Lokatölur !!!

Góður sigur hjá Óla og strákunum og svo sannarlega eitthvað til að byggja á. Erum loksins farnir að vinna einhverja leiki.
Sóknarleikurinn kom með Gunnari Heiðari í síðari hálfleik. Hleypti miklu lífi í sóknina og skoraði gull af marki. Var nákvæmlega enginn sóknarleikur fram að því.
Vorum samt heppnir að mörgu leyti. Slóvakar með tvö skot í markstangirnar, björguðum einu sinni á línu og Slóvakar fengu 2-3 dauðafæri þess utan. Betra lið hefði refsað okkur grimmilega. Þetta var ekki dagur Slóvaka. Við áttum aftur á móti þrjú skot að marki og tvö fóru inn.

Margt jákvætt í þessu. Kjartan mjög öruggur og sannfærandi í markinu. Kristján Örn bestur í vörninni, Ragnar fínn líka en hélt ekki alltaf einbeitingu. Grétar þokkalegur og Bjarni fínn í vörninni og gaf fá færi á sér. Auglýsti eftir hlaupum fram hjá bakvörðunum og það skilaði marki. Bjarni getur þetta og á að gera meira af þessu.

Miðjumönnunum óx ásmegin. Aron Einar þeirra langbestur og stimplaði sig heldur betur inn. Grimmur, öruggur í sínum aðgerðum og braut niður sóknir andstæðinga. Svona skemmtilega arrogant gæi sem öskrar á alla sem hvað þeir heita. Er samt ekki nema 18 ára ef mig misminnir ekki. Flott týpa sem gaman verður að fylgjast með í framhaldinu. Búinn að sanna tilverurétt sinn.

Ólafur Ingi var þokkalegur í síðari hálfleik og Stebbi síðustu 20 mínúturnar. Elmar oft átt betri leiki og það kviknaði örlítið á Emil eftir að Elmar fór af velli. Ekki góður samt. Eiður fékk allt of lítinn stuðning og dró sig síðan aðeins til baka og þá var hann mikið betri. Fer ekkert ofan af því að hann á að vera á toppnum í þriggja manna miðju með jaxla eins og Aron og Brynjar fyrir aftan sig eða jafnvel Eggert Gunnþór. Framtíðin er hjá Aroni og Eggerti.

Óli hélt sig við leikkerfið sem hann lagði upp með, strákarnir voru þolinmóðir og það skilaði árangri sem er frábært. Sjáfstraustið hlýtur að koma smám saman eftir svona sigra og veitir ekki af eftir endalaust afhroð í allt of langan tíma.

Fært undir Íþróttir | 26 ummæli »

Hvernig fer Slóvakaleikurinn?

Fært af Henry Birgir þann 26. mars 2008

Styttist í Slóvakaleikinn og byrjunarliðið komið á hreint. Fátt sem kemur á óvart þar í sjálfu sér.

 Mark: Kjartan Sturluson:
H. bak: Grétar Rafn
v. bak: Bjarni Ólafur
Miðv: Ragnar Sig
Miðv: Kristján Örn:
Miðja: Aron Einar
Miðja: Stefán Gísla
Miðja: Óli Ingi
H. kant: T. Elmar
V. kant: Emil Hallfreðs
Frammi: Eiður Smári

Eiður settur á toppinn í stað þess að spila á miðjunni. Gunnar Heiðar því á bekknum. Ekkert sérstaklega sammála þessu. Vil hafa Eið aftar og meira í boltanum.

Hægri vængurinn gæti orðið öflugur ef Grétar heldur áfram að spila eins og hann hefur verið að gera. Einnig spennandi að sjá hvort Elmar skili annarri fínni frammistöðu.

Gaman að sjá Ólaf Inga aftur inni og Aron fær tækifæri sem hann á skilið eftir Færeyjaleikinn þar sem hann stimplaði sig hressilega inn ólíkt flestum öðrum sem spiluðu þann leik.

Hefði verið gaman að sjá Eggert líka inni. Stebbi Gísla þarf samt klárlega að sanna sig eftir arfaslakan leik gegn Dönum síðast. Vinstri vængurinn gæti verið vandamál. Emil verið óstöðugur í sínum leik og Bjarni Ólafur ekkert sérstaklega sannfærandi gegn Færeyingum.

Þetta verður áhugavert. Sökum þess hvað ég er slakur spámaður læt ég það vera að spá í þetta skiptið en eftirlæt þá kúnst lesendum síðunnar.

Fært undir Íþróttir | 12 ummæli »

Skid Row var það heillin

Fært af Henry Birgir þann 26. mars 2008

Tónlistargetrauninni var slátrað á innan við 20 mínútum þó svo færslan hafi farið inn rétt fyrir miðnætti í gær. Að lesendur hafi aftur á móti náð þessu gefur til kynna að lesendur hafi ákaflega góðan tónlistarsmekk sem er ánægjulegt.

Hér var vissulega um að ræða textabrot úr slagaranum In a Darkened Room með eðalbandinu Skid Row.

Skiddararnir

Ég var ungur maður þegar platan Skid Row kom út í byrjun janúar 1989. Líkt og margir heillaðist ég mjög af bandinu sem sló rækilega í gegn með þessari plötu. Slagarar á borð við 18 & Life, Youth Gone Wild og I remember you lifa enn fínu lífi. Síðast en ekki síst heillaðist maður mjög af söngvaranum í þröngu buxunum Sebastian Bach. Skemmtilegur fýr og geysiöflugur á tónleikum.

Svo menn geti farið á alvöru nostalgíutripp skulum við rifja aðeins upp slagarana.

18 & Life

Youth Gone Wild live á Donington ´92 (Bacharinn bláedrú og alvöru flösuþeytingur í gangi)

I Rememeber You

Næsta plata, Slave to the Grind, kom út sumarið 1991 og fór beint í fyrsta sætið á ameríska breiðskífulistanum. Þetta var jafnframt í fyrsta skiptið sem þungarokksplata fór beint á toppinn í USA.

Talsvert þyngri og heilsteyptari plata en frumburðurinn. Klassalagasmíðar og í raun ekki nema svona tvö slök lög á plötunni. Flest annað steinliggur. Platan er enn í talsverðu uppáhaldi hjá mér og hefur verið undir geislanum síðustu daga.

Bandið fór í svaka tónleikaferð í kjölfar plötunnar og meðal annars með Guns N´Roses. Ef mig misminnir ekki voru fyrstu tónleikar heimsreisunnar hér á landi.

Tveir tónleikar voru haldnir í Höllinni og var grátlega illa mætt. Ég fór á aðra tónleikana og það eru með betri rokktónleikum sem ég hef séð. Komu ferskir úr stúdíóinu staðráðnir í að leggja heiminn að fótum sér og voru hrikalega þéttir og góðir. Gjörsamlega stórkostlegir tónleikar.

Minnir að það hafi mætt rúmlega 2.500 manns á hvora tónleika sem var sorglegt. Platan var nýkomin út og landinn enn að melta hana. Ef tónleikarnir hefðu farið fram svona þrem mánuðum síðar hefði Höllin líklega verið full í bæði skiptin enda sló hver hittarinn af öðrum í gegn á plötunni.

Monkey Business, Quicksand Jesus, In a Darkened Room og Wasted Time þar á meðal. Get the fuck out var ekki á öllum útgáfum þar sem menn voru eitthvað viðkvæmir fyrir textum þar sem F-orðið er notað.

Kíkjum á nokkur brot af snilldinni og byrjum á Quicksand Jesus.

Svo er það lagið sem var spurt um í getrauninni. Myndbandið er einmitt  af tónleikunum og æfingum í Höllinni. Ekki ónýtt. Nota smá Live úr Höllinni meira að segja og áhorfendur sem mættu lætu vel í sér heyra. Bacharinn þenur leðurbarkann þegar það er skipt í Live um mitt lagið. Tónleikarnir rifjast alltaf upp við að horfa á þetta video.

Wasted Time var síðan monster-hittari líka. Býð upp á hressandi Live-útgáfu frá tónleikum í Rio ´92. Bach aldrei þessu vant ekki ber að ofan. Það var líklega fréttaefni á þessum tíma. Hann er samt orðinn hálfraddlaus kallinn þetta seint á tónleikunum.

Það voru samt ekki bara öflugar rokkballöður á plötunni. Það var talsverður metall á plötunni eins og titillag plötunnar sannar meðal annars.

Bandið kom svo aftur til lands á dögunum. Reyndar í talsvert breyttri mynd og enginn Bach meðal annars. Get eiginlega ekki hugsað mér bandið án Bach og fór því ekki. Fannst þetta vera eins og kíkja á eitthvað cover band.

Skilst samt að þetta hafi verið þrælskemmtilegt og ég hafi misst af miklu. Ég lifi samt enn á tónleikunum stórkostlegu í Höllinni.

Fært undir Tónlist | 4 ummæli »

 
Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning