Hugleiðingar Húsvíkings

Færslur desember, 2008

Árið 2008 - part three

Fært af Henry Birgir þann 30. desember 2008

Sumarið 2008 var í einu orði sagt frábært.

… ég fór um mánaðamótin maí-júní í magnaða ferð til Póllands þar sem landsliðið tryggði sig inn á ÓL eftir magnaðan sigur á Svíum. Ákaflega skemmtilegt og eftirminnilegt allt saman. Stemningin eftir leik stórkostleg og minnkaði ekki eftir því sem leið á kvöldið. Náði þá aðeins að kynda Kim Andersson. Það var kvikindislegt. Viðurkenni það. Samt hressandi.

… ég gjörsamlega tjaldaði yfir mig í sumar. Stór sem smá tjöld léku hreinlega í höndunum á mér.

… ég hélt mitt árlega sumargrill fyrir félagana. Gloría mojitoaði yfir sig eins og við var að búast.

… ég grillaði með Einari Þorvarðar heima hjá Alla Gísla. Einsi var svolítið í því að kveikja í steikunum en ég gerði mitt besta til þess að kenna honum.

… ég grillaði reyndar algjörlega yfir mig í sumar og toppaði mig á þessu líkkistugrilli.

… ég golfaði einnig talsvert. Eftirminnilegustu golfferðirnar voru þó með kynþokkafyllsta golfara landsins, Albertino. Kynþokkinn lak af honum er hann lék með hneppt frá í 2 stiga hita. Hardcore gæi.

Fært undir Áramótaannáll | 7 ummæli »

Áramótasprengja Skjálfanda

Fært af Henry Birgir þann 30. desember 2008

Vek athygli íþróttaunnenda á því að á morgun, gamlársdag, verður tveggja tíma þáttur af Skjálfanda. Byrjar á gamla tímanum, 12, og er búinn klukkan 14 en þá mæta snillingarnir í Harmageddon með sína áramótasprengju.

Ég mun taka á móti fjölda góðra gesta og við munum í sameiningu rifja upp íþróttaárið 2008. Held það sé óhætt að lofa hressum og léttum þætti.

Þeir sem vilja hlusta á þáttinn á netinu geta gert það hér. Annars er það bara gamla góða 977 á útvarpinu.

Þetta verður væntanlega síðasti þáttur af Skjálfanda. Í óbreyttri mynd hið minnsta en óvissa er um framtíð þáttarins eftir áramót eins og margt annað í þjóðfélaginu þessa dagana. Þátturinn verður hið minnsta ekki áfram á dagskrá fimm daga vikunnar. Því miður segi ég enda hef ég haft mjög gaman af þessari vinnu.

Áramótasprengja Skjálfanda á morgun, gamlársdag, milli 12 og 14!

Fært undir Íþróttir | Engin ummæli »

Árið 2008 - part two

Fært af Henry Birgir þann 30. desember 2008

… ég reyndi að bjarga EM með því að koma Bjarna Fel í lýsingar. Rúv hlustaði ekki á rödd þjóðarinnar þá frekar en áður.

… ég ræðumannaði yfir mig hjá Völlurunum. Lét útbúa stórkostlegar Júdasartreyjur með hjálp Hensons.

… ég fór helvíti oft í Utan vallar og meðal annars í frægasta þáttinn með Tobba. Það var ógleymanlegt. Einhver sendi mér þessa skemmtilegu mynd þá. Veit ekki hver á heiðurinn af henni en skemmtileg er hún. Tobbi var líka hress í Þrándheimi.

… ég skrifaði minn fyrsta tónleikadóm og tókst að gera allt vitlaust. Henti fullu húsi á Breiðdalinn og stend enn við þann dóm. Arnar Eggert hægði sér eftirminnilega í sínum dómi og var í einhverja viku að reyna að schkeina sér enda með drulluna vel yfir axlir. Schkeiningin gekk aðallega út á að gera mig ótrúverðugan sem tónleikagagnrýnanda og hrokinn sem hann bauð upp á var í hæsta klassa. Ég skemmti mér ágætlega við lesturinn og það besta var að því meira sem hann reyndi að schkeina sér því dýpra sökk hann í kamarinn. Stórkostlegt. Dómur og schkeining Arnars er án vafa með mestu skitum ársins.

… ég fer ekki mikið í partý á þessum síðari árum en mætti engu að síður í partý ársins hjá Geirssyni. Það stóð að sjálfsögðu undir væntingum. Lamdi húðir í teitinu með Merzedes Club og stimplaði mig um leið inn sem einn kröftugasti trommari landsins.

Fært undir Áramótaannáll | Engin ummæli »

Árið 2008 - part one

Fært af Henry Birgir þann 29. desember 2008

Árið 2008 var frábært ár. Mjög sáttur við þetta ár er ég lít til baka. Ég mun í næstu færslum stikla á stóru í því sem ég tók mér fyrir hendur á árinu.

Árið 2008 byrjaði líkt og síðustu ár á stórmóti í handbolta. Verður skrítið að fara á ekkert stórmót á þessu ári. Áfangastaðurinn Þrándheimur. Fínn bær, fín ferð í frábærum félagsskap en árangur landsliðsins lélegur. Stemningin var engan veginn í lagi og maður fann það fljótt. Alfreð yfirgaf skútuna eftir mótið. Mikil eftirsjá af Alfreð sem er góður drengur og mikill fagmaður. Einn besti þjálfari sem ég hef þurft að eiga samskipti við í minni vinnu.

Það var sérstaklega ánægjulegt að fá Skapta með í þessa ferð. Hér erum við félagarnir að taka conference finals í NFL fram á rauða nótt á herberginu mínu. Hressandi kvöld. Sérstaklega eftirminnilegt er við ákváðum að vekja Pjetur en Pjetur var einmitt mjög ánægður með það uppátæki. Það er einmitt Skapti sem á kynþokkafullu tærnar aðeins neðar á síðunni. Sú mynd var einmitt tekin við þetta tækifæri.

… ég hélt sjóræningjaafmæli og fór á kostum sem sjóræningi í afmælinu.

… ég fór líka til Húsavíkur í fermingu systur minnar. Afar skemmtilegt og þessi mynd var sérstaklega tekin fyrir Hörpu frænku.

… ég byrjaði líka með útvarpsþáttinn Skjálfanda. Það hefur verið einstaklega skemmtilegt verkefni. Mörg eftirminnileg atvik átt sér stað í þættinum en eitt það eftirminnilegasta var klárlega þegar ég leiddi Störe og Gaddann saman. Sögulegar sættir.

Fært undir Áramótaannáll | Engin ummæli »

Jólakveðja

Fært af Henry Birgir þann 24. desember 2008

Þá eru jólin að bresta á. Er að njóta stundarinnar í rólegheitum með rjúpnalyktina í vitunum. Hún er ekki af ódýrari gerðinni. Það verður eitthvað tekið á því á eftir.

Ef einhver er ekki kominn í jólaskap nú þegar þá er lausnin hér að neðan. Það er ekki bara lagið sem kemur manni í rétta skapið heldur einnig þetta stórkostlega myndband.

Óska vinum, ættingjum og öðrum lesendum gleðilegrar hátíðar.

Gleðileg jól!

Fært undir Jól | 1 ummæli »

Afhausun og afklæðing á jólum

Fært af Henry Birgir þann 22. desember 2008

Ég hef komið mér upp mörgum hefðum sem hjálpa mér að telja niður í jólin. Sú sterkasta og skemmtilegasta er þó án vafa sú er við hittumst í bílskúrnum og hamflettum rjúpurnar með kaldan við hönd. Það er geysiskemmtilegt og segir mér svo ekki sé um villst að jólin séu að koma.

Ég meina hvað er jólalegra en að afhausa og afklæða fugla og vera með blóð á höndunum?

Lyktin sem kemur er sú jólalegasta sem til er. Það besta er að hún fer ekkert næstu dagana heldur, sama hvað maður þvær sér oft. Love it eins og JR sagði um árið.

Þessi tími rann upp í kvöld og var frábær eins og alltaf. Hérna sýni ég strákunum hvernig á að taka þessar elskur úr.

Vorum þrír í aðgerð þetta árið. Við eldri mennirnir tókum inn nýliða í ár sem er yngsti bróðir minn og heitir Daníel. Hann stóð sig helvíti vel og er alveg með þetta… enda ekki annað hægt þegar hann er með snillinga eins og mig og Agga að kenna sér.

Aggi var óvenju öflugur í ár og við vorum óþarflega fljótir að þessu ef eitthvað er.

Menn verða hálfgeðveikir í blóðbaðinu eins og búast má við. Hérna bý ég mig undir að éta hausinn á þessari þingeysku rjúpu. Hætti snarlega við og skar bara hausinn af henni í staðinn.

Unnusta nýliðans, Gulla, stóð þétt við bakið á sínum manni og var ánægð með taktana. Hún fær stóran plús fyrir að halda þetta út enda eru kvenmenn oftar en ekki fljótir að hverfa út úr bílskúrnum þegar athöfnin fer fram. Gulla kippti sér ekki einu sinni upp við að Daníel skyldi kryfja heilann á rjúpunni og skera tunguna úr sem var annars “mjög eðlilegt”.

Mamma þvingaði okkur í hálfsamkynhneigðar svuntur þetta árið og að sjálfsögðu hlýddi maður. Það á alltaf að hlýða mömmu sinni.

Fært undir Afhausun | 3 ummæli »

Jólagetraun

Fært af Henry Birgir þann 19. desember 2008

Spurt er: Hver á þessar þrælhuggulegu tær?

Sigurvegari getraunarinnar fær hugsanlega að drekka einn “Henry Birgi” hjá mér í kvöld en það er víst heitasti drykkurinn á Spáni þessa dagana.

Fært undir Kynþokkafullar tær | 12 ummæli »

Íþróttamaður ársins

Fært af Henry Birgir þann 18. desember 2008

Styttist í að íþróttamaður ársins verði krýndur en kjörinu verður lýst þann 2. janúar næstkomandi. Íþróttafréttamenn skiluðu inn atkvæðaseðlum sínum í gær, það er að segja fyrir utan einn sem á það til að taka sér lengri tíma í þetta en aðrir, og á Þorláksmessu verður opinberað hvaða tíu íþróttafréttamenn koma til greina.

Mun væntanlega birta minn lista eftir að kjörinu hefur verið lýst en það er svo sem ekkert leyndarmál að ég kaus Ólaf Stefánsson sem íþróttamann ársins. Í mínum huga þarf ekkert að ræða það val sérstaklega. Gjörsamlega ótrúlegt ár hjá Óla. Frammistaða hans í Meistaradeildarúrslitunum í Kiel er að mínu mati eitt stærsta íþróttaafrek allra tíma á Íslandi. Svo var víst silfur á ÓL og annað í þessu hjá honum. Er þess utan á því að það sé skandall ef hann fær ekki fullt hús!

Annars sérstakt ár að mörgu leyti þar sem hópíþróttir bera af og einstaklingsíþróttamenn ekki margir að berjast um að komast inn á listann. Það hafa komið ár þar sem ég hef verið í vandræðum með að finna tíu íþróttamenn á listann minn en það var enginn hausverkur í ár. Talsvert skemmtilegra að geta valið úr stórum fjölda. Samt afar erfitt að setja saman listann frá 2 til 10.

Væri gaman að heyra álit manna á kjörinu þetta árið og ekki verra ef menn henda í sinn topp tíu lista hérna í commentunum.

Tók annars heilan Skjálfanda undir umræður um kjörið. Það var afar hressandi þáttur og má heyra hann hér.

Fært undir Íþróttir | 11 ummæli »

Já, ég er nýr stílisti hjá Helga Seljan

Fært af Henry Birgir þann 15. desember 2008

Eins og glöggir Kastljósáhorfendur tóku eftir á dögunum þá skartaði Helgi Seljan nýju outfitti í stað hins klassíska þjóðhátíðarbúnings Reyðfirðinga sem ritstjórnin greindi frá á dögunum.

Við Helgi fórum yfir stöðuna og erum að prófa okkur áfram með nýja liti og jafnvel rúllukragapeysur sem við trúum að komi sterkar inn í kreppuárinu sem er framundan.

Hef ekki heyrt annað en fólk hafi verið ánægt með nýja dressið en við erum hvergi nærri hættir og munum halda ótrauðir áfram með nýja hluti í jólamánuðinum.

Fært undir Hátíska í sjónvarpi | 3 ummæli »

45 mínútna maður

Fært af Henry Birgir þann 15. desember 2008

“…mér fannst ég hálforkulaus eftir fyrri hálfleikinn,” sagði Eiður Smári við Moggann eftir El Clásico.

Er ég einn um að finnast eitthvað skrýtið við það að atvinnumaður hjá Barcelona sé sprunginn eftir einn hálfleik?

Fært undir Íþróttir | 6 ummæli »

 
Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning