Fullt hús hjá Óla Stef
Henry Birgir 2. janúar 2009
Einhverju besta íþróttaári í sögu Íslands lauk á viðeigandi hátt í kvöld þegar einn glæsilegasti íþróttamaður þjóðarinnar frá upphafi, Ólafur Stefánsson, fékk fullt hús í kjöri íþróttamanns ársins.
Ég hafði margoft sagt að það yrði skandall ef Óli fengi ekki fullt hús og það var ánægjulegt að sjá alla kollega mína setja Ólaf í efsta sætið.
Annars var óvenju erfitt að setja saman topp tíu listann í ár. Þó ánægjulega erfitt því á stundum hefur maður átt í vandræðum með að fylla topp tíu listann. Þetta er talsvert skemmtilegra svona þó svo nokkurn tíma hafi tekið að fá niðurstöðu.
Ég er nokkuð sáttur með topp tíu listann hjá samtökunum en eins og sjá má hér að neðan hefði ég viljað sjá Jón Arnór ofar á listanum. Mér finnst hann ekki alltaf njóta sannmælis í þessu kjöri.
Topp tíu listinn minn leit annars svona út:
1. Ólafur Stefánsson
2. Snorri Steinn Guðjónsson
3. Guðjón Valur Sigurðsson
4. Jón Arnór Stefánsson
5. Margrét Lára Viðarsdóttir
6. Eiður Smári Guðjohnsen
7. Hermann Hreiðarsson
8. Veigar Páll Gunnarsson
9. Katrín Jónsdóttir
10. Þormóður Árni Jónsson
Hér er svo heildarlistinn með öllum þeim íþróttamönnum sem fengu stig í kjörinu í ár. Heildarlistinn er oft svolítið skemmtilegur.
Ólafur Stefánsson, handbolti, 480 stig
Snorri Steinn Guðjónsson, handbolti, 287
Margrét Lára Viðarsdóttir, fótbolti, 210
Guðjón Valur Sigurðsson, handbolti, 194
Eiður Smári Guðjohnsen, fótbolti, 124
Hermann Hreiðarsson, fótbolti, 97
Katrín Jónsdóttir, fótbolti, 61
Alexander Petersson, handbolti, 56
Þormóður Jónsson, júdó, 51
Jón Arnór Stefánsson, körfubolti, 39
Helena Sverrisdóttir, körfubolti, 33
Veigar Páll Gunnarsson, fótbolti, 26
Dóra María Lárusdóttir, fótbolti, 25
Bergur Ingi Pétursson, frjálsar íþróttir, 10
Grétar Rafn Steinsson, fótbolti, 10
Björgvin Páll Gústavsson, handbolti, 10
Hólmfríður Magnúsdóttir, fótbolti, 9
Viktor Kristmannsson, fimleikar, 7
Róbert Gunnarsson, handbolti, 6
Arnór Atlason, handbolti, 5
Ragna Ingólfsdóttir, badminton, 4
Örn Arnarson, sund, 4
Ásdís Hjálmsdóttir, frjálsar íþróttir, 2
Ólöf María Jónsdóttir, golf, 1
Eyþór Þrastarson, sund fatlaðra, 1
Að lokum vil óska ég Ólafi aftur til hamingju með frábæra kosningu sem hann átti svo sannarlega skilið.
Þingeysk hógværð í sinni tærustu mynd.
2. janúar 2009 kl. 22.03
Hvað gerði Jón Arnór á árinu sem skilar honum í 4. sætið?
3. janúar 2009 kl. 1.16
Valið á Ólafi var no brainer. Óviðjafnanlegur íþróttamaður. Frammistaða hans ein í úrslitaleik meistaradeildarinnar í vor hefði dugað honum til nafnbótarinnar.
Moggamenn voru líka fyrstir í mark í kvöld, þeim tókst að skúbba úrslitunum á vef sínum klukkan 18.
3. janúar 2009 kl. 13.29
Jón Arnór fór í úrslitaviðureign ítölsku deildarinnar og spilaði lykilhlutverk í sínu liði. Lék einnig í meistaradeild Evrópu og var algjör lykilmaður í landsliði Íslands.
4. janúar 2009 kl. 0.18
Gott val Henry. Er mjög sammála þér um að Jón Arnór hefði átt að vera ofar á listanum. Tel að menn eigi að kanna hans árangur og frammistöðu áður en þeir spyrja viðlíka spurningar og Róbert gerir í commenti nr.1.
Það eina sem ég geri athugasemdir við er hveru ofarlega Hermann er hjá þér sem og í valinu yfir höfuð. Margir aðrir áttu skilið að vera ofar en hann. Hann hefur oftast gert mun betur en á síðasta ári.
BTW - hvaða brandarakeppni er þetta með verðlaunagripinn. Sá allra ljótasti sem ég hef séð.
4. janúar 2009 kl. 14.09
Ég hef eingöngu eitt útá valið að setja, og það er hversu hátt Eiður er á listanum. Alveg sama hversu góður hann er þá á Hermann að vera ofar honum. Ástæða, Barcelona vann að mig minnir ekkert í fyrra, Eiður spilaði lítið og gerði lítið fyrir lið sitt (mitt mat). Hermann var byrjunarliðsmaður í sínu liði og átti stóran þátt í velgengni síns liðs. Þeir spiluðu báðir með landsliði Íslands og hafa gert það báðir jafn vel í gegnum tíðina, þó er það mitt mat að Hermann sé vanmetinn mjög þegar hann spilar fyrir landsliðið.
Svo er líka spurning með það hvort að Þormóður og Jón Arnór eigi ekki að vera ofar á listanum.
5. janúar 2009 kl. 10.13
Hef svo sem ekkert út á þennan lista að setja en hinsvegar plagaði mig eitt… Það voru trúðarnir sem tóku viðtalið við Ólaf eftir að hann var kjörinn, af öllum þeim íþróttafréttamönnum sem til eru þurftu þeir allra slökustu að spyrja spurningana sem voru í meira lagi kjánalegar! Eitt dæmi þegar Dolli spurði Ólaf hvort það væri ekki gott að gráta! Svo spurði Hrafnkell hvernig honum litist á nýja stimpilinn sinn sem grínisti eftir að hann hefði verið tekinn fyrir í Spaugstofunni! Kjánahrollurinn hefur aldrei verið jafnmikill eftir að hafa horft á þetta en engu að síður var þetta aldrei spurning með Ólaf og hefði það verið skandall hefði hann ekki fengið full house!
6. janúar 2009 kl. 10.50
Af hverju finnast NBA áhugamönnum þeir vera snuðaðir um almennilega umfjöllun - á einu mest coveraða sporti Vestan hafs, og þar með í heiminum…. jú, það er þegar þeir lesa að Darry Genge hafi skorað 36 stig fyrir Indiana.
http://mbl.is/mm/sport/korfubolti/2009/01/06/soknarleikurinn_i_fyrirrumi_i_denver/
6. janúar 2009 kl. 11.53
athyglivert, búið er að lagfæra fréttina…
nú er talað um Darry Granger. Gott hjá þessum fréttamanni að vita ekki ennþá hvað maðurinn heitir.