Hugleiðingar Húsvíkings

Árið 2008 - part four

Henry Birgir 7. janúar 2009

Átti alltaf eftir að klára að schkeina áramótauppgjörinu mínu. Svo skemmtilega vildi til að tölvan mín dó á gamlársdag og því tókst ekki að klára það á tilskyldum tíma. Ætla engu að síður að rumpa því af.

… ég fór eðlilega í sumarfrí og var afar duglegur að ferðast innanlands og þá aðallega norður. Hef ekki keyrt svona oft norður á einu ári ég veit ekki síðan hvenær. Skellti mér meðal annars í fyrstu hvalaskoðunaferð ársins á Húsavík. Gekk ekki vel til að byrja með en fundum hvali á endanum. Börnin lifa enn á þessari stórskemmtilegu ferð í fallegasta umhverfi landsins á Skjálfanda.

… ég fór svo á ættarmót í Norður-Þingeyjarsýslu nálægt Ásbyrgi. (helvítis) Tjaldið var með í för og kallinn blés upp vindsængur. Geysigott og skemmtilegt ættarmót. Frasinn “hefur þú áhuga á að vera númer 19″ fæddist þar og er orðinn legendary. Gott geim.

… ég fór líka í skemmtilega traktorsferð á ættarmótinu. Það var hressandi.

… ég keyrði svo suður aftur bara til þess að hlaða upp birgðum því skömmu síðar var haldið aftur norður á Mærudaga á Húsavík. Fyrsta skipti sem ég mæti á Mærudaga og klikka ekki á því aftur. Stórkostlegt. Við feðgarnir léttum á okkur við Hvammstanga.

… ég skellti mér líka á völlinn á Mærudögum. Við feðgarnir dressuðum okkur eðlilega upp og létum vel í okkur heyra í grasbrekkunni. KSÍ-foringjarnir Geir og Þórir mættu á svæðið til að taka út dómaraskandalinn sem hundelti Völlara í sumar. Urðu svo vitni að því er dómari þessa leiks rændi Völsung víti undir lokin. Kostaði liðið tvö stig. Ekkert var samt gert í málinu. Ég er ekki “alveg viss” en mér sýnist Stebbinn vera með í framdrifinu fyrir aftan mig.

5 ummæli um “Árið 2008 - part four”

  1. Rafnar ritaði:

    stórkostleg mynd af feðgum í völlara treyjunum!

  2. Hroi ritaði:

    Gleðilegt nýtt ár frændi!!
    Gaman af þessu ársuppgjöri, flott mynd af ykkur feðgum á næstbesta velli norðurlandsins :)
    Þess má geta að ég hef aldrei tapað leik á Húsavíkurvelli, finn mig greinilega vel þar.

    Kv Hrói

  3. Stebbi Ben ritaði:

    Ég er ekki með í framdrifinu!!!!!

  4. Benni Bóas ritaði:

    Það er margt skrýtið við þessa neðstu mynd. Í fyrsta lagi er ský á himni á norðurlandinu sem er eitthvað skrýtið og greinilega fótoshjoppað. Í öðru lagi er enginn á myndinni að horfa í sömu átt nema þið feðgar. Í þriðja lagi er hið afar geðþekka framdrif Stebba greinilega troðið af losafullum Rudda og í fjórða lagi er flaggstöng að koma uppúr klofinu á einum guttanum! Til að toppa þetta er síðan stelpa umvafinn teppi og þú í úlpu á Mærudögum!
    Til upprifjunar þá er hér frétt frá eina óspillta miðli landsins. 640.is http://640.is/news/maerudagar_i_rjomablidu.

  5. Sverrir ritaði:

    Kinnarfjöll, Skjálfandaflói og hvalir hvað er fegurra?
    En að gera sig sekann um að míga utan í mjólkurtank þeirra Húnvetninga eru landráð gáðu að því. Hvað ungur nemur gamall temur..eða þannig.
    Samt flottar myndir, sammála því að þessi mynd af ykkur feðgum á vellinum er fótósjoppuð því það er ský á myndinni. Allt norðan og Austan Tjörness er með því fegurst sem hægt er að finna í landslagi hvar sem þú berð niður fæti, Ásbyrgi, Lundur, Hljóðaklettar, Dettifoss, Öxarfjörður, Núpasveit, Leirhafnartorfan og Melrakkasléttan og er þá fátt eitt nefnt á nafn.

    Mærudagar eru bráðnauðsynlegir og alltaf gott veður þá daga á Húsavík.

Rita ummæli

 
Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning