Að blogga eða ekki blogga?
Fært af Henry Birgir þann 3. febrúar 2009
Skal fúslega viðurkenna að ég hef haft álíka mikinn áhuga á að blogga síðustu vikur og að hlusta á langar ræður hjá Ögmundi Jónassyni.
Hafði mig ekki einu sinni í að klára áramótaannálinn minn. Átti eftir að minnast á nokkra hluti eins og:
- að ég hefði farið til Kína, gengið Múrinn, fengið mér tattoo og upplifað silfurævintýrið úr nálægð. Það voru mikil forréttindi.
- að þetta var mikið nostalgíuár. Ný Rambo-mynd kom út á árinu. Líklega besta mynd allra tíma. Sá hana á sér forsýningu fyrir Sly-fans og píndi mig líka á frumsýninguna skömmu síðar. Það er meiri Sly á næsta ári. Metallica, Guns n Roses og Oasis gáfu út plötur á svipuðum tíma. Metallica-platan er stórkostleg en hinar frekar slappar.
- gerði margt annað skemmtilegt og átti að lokum frábær jól (skreytti yfir mig) og áramót.
Átti alltaf eftir að sýna Kína-tattooið mitt hérna en einhverra hluta vegna hefur fólk áhuga á að sjá það. Fékk mér það sama dag og ég labbaði Múrinn aka Vegginn sælla minninga. Henti nöfnum barnanna minna á mandarínsku á handlegginn… og já þetta er rétt þýðing og það stendur ekki hoppaðu upp í rassgatið á þér.
Tók viðtal við Geirsson daginn eftir. Það viðtal byrjaði á óhefðbundinn hátt: “Hey, sýndu mér tattooið maður,” sagði Geirsson. Vil líka þakka Hreidda aftur fyrir að lemja mig beint á tattooið. Það var djöfulli þægilegt.
Þó svo ég sé að drulla á mig í blogginu og þetta ár verði algjör viðbjóður er maður ekki alveg að drulla á sig í öllu. Er að fjarþjálfa mig upp hjá Störe sem ætlar að gera kallinn hrikalegan. Helvíti fínt system hjá landsliðsmanninum í póker og hvet þá sem hafa verið að hlaða á sig kílóum undanfarin ár og eru að spá í að drulla sér af stað að hafa samband við Störe. Hann kippir mönnum í lag.
Ætla ekki að loka þessu bloggi þó svo það hafi verið í daufari kantinum síðustu mánuði. Blogga þegar ég nenni og hef áhuga en ekki til að þóknast öðrum. Andinn kemur kannski aftur fljótlega, ef ekki þá so be it.
Góðar stundir.
Fært undir Alþjóðamál | 4 ummæli »
Þingeysk hógværð í sinni tærustu mynd.