Hugleiðingar Húsvíkings

Færslur í flokknum 'Alþjóðamál' Category


Jólabjórarnir 2009

Fært af Henry Birgir þann 21. nóvember 2009

Undirritaður hefur lagst í mikla rannsóknarvinnu svo þið vitið hvaða Jólabjóra á að drekka í ár. Ég hef ekki Tuborg Julebryg í þessum dómi enda eiga allir að vita að sá bjór er rakinn snilld sem klikkar ekki.

Til að Jólabjór sé vel heppnaður þarf margt að smella. Bjórinn þarf að hafa karakter og umbúðirnar þurfa að vera vel heppnaðar og helst hátíðlegar. Allt er þetta hluti af upplifuninni af því að drekka Jólabjór. Stemningin verður að vera í lagi. Þess vegna er einnig rýnt í umbúðir.

9. sæti: Hvítur Royal X-mas, 5,6%.
Það er sagt að þessi bjór hafi léttan og blíðan karakter. Horseshit!! Hann er vissulega léttur en bragðið er biturt, eftirbragðið vont og það er í rauninni óbragð af þessum bjór. Já, hann er vondur.
Það er nákvæmlega ekkert jólalegt við umbúðirnar og bjórinn lyktar af metnaðarleysi. Þessi bjór er eitt stórt járnbrautarslys og ÁTVR ætti í raun að greiða með bjórnum í stað þess að rukka fyrir hann.
Ekki koma nálægt þessu helvíti.

8. sæti: Albani, 7,0%.
Það er lítið bragð af þessum bjór og hann er karakterlaus. Hann er samt ekki jafn vondur á bragðið og hvíti X-masinn. Bragðið gleymist fljótt en þú manst þó að þig langar ekki í annan Albana.
Eftirbragðið versnar eftir því sem neðar er komið í bjórinn og maður er í raun kominn með æluna upp í háls á síðustu sopunum. Umbúðir minna meira á páska en jólin.
Hann fær þó plús fyrir að vera 7 prósent.

7. sæti: Dökkur Royal X-mas, 5,6%.
Stendur á dósinni að þetta sé bjór með dýpt og karakter. Aftur horseshit. Það er sama viðbjóðsbrag af þessum og hinum dönsku en þessi er þó skástur. Ekki góður samt.
Allir þessir þrír verstu bjórar eru í dós sem er náttúrulega bannað. Jólabjór á að vera í flösku. Bar þó virðingu fyrir bjórunum og hellti þeim í uppáhaldsbjórglasið mitt. Það skilaði engu.
Þessa þrjá bjóra ber að varast. Þeir eru allir ódrekkandi.

6. sæti: Egils Jólabjór, 4,8%.
Þessi veldur vonbrigðum. Lítil lykt og nánast enginn karakter af bragðinu. Er fullflatur. Þessi bjór er það sem við köllum ódýrari týpan.
Umbúðirnar eru einnig af ódýrari gerðinni. Þessi bjór er eins og Carlsberg, hann er fyrir Bolinn sem gerir litlar kröfur til bjórsins síns.

5. sæti: Egils Maltbjór, 5,6%.
Það er meiri metnaður í þessum bjór frá honum Agli. Sterkt bragð, mikill karakter en bragðið þó ekki yfirþyrmandi.
Umbúðirnar eru lítilfjörlegar og frekar gamaldags. Þær eru óaðlaðandi sem er mínus. Ágætis bjór samt.

4. sæti: Víking Jólabjór, 5.0%.
Milt bragð, fín fylling og karamellubragðið er hæfilegt. Gott eftirbragð. Vel heppnaður bjór en kannski aðeins of einfaldur. Hann ögrar ekki bragðlaukunum nóg. Vantar meiri karakter í hann. Góður samt.
Umbúðirnar lítt aðlaðandi og mætti leggja meiri metnað í þær. Styrkleikinn veldur einnig vonbrigðum.

3. sæti: JólaJökull, 6,0%.
Sterkur og mikil fylling. Lítið eftirbragð. Lyktar vel og er það sem ég kalla sælkerabjór. Metnaðarfullur bjór sem er gott að njóta en á ekki að slafra í sig eins og Carlsberg.
Umbúðirnar vel heppnaðar. Klassabjór.

2. sæti: JólaKaldi, 5,4%.
Ekki of þungur en samt fín fylling. Bjór með miklum karakter. Þeir kunna að brugga þarna fyrir norðan.
Umbúðirnar einstaklega smekklegar og vel heppnaðar. Mikil hátíðarstemning í þessum bjór, að innan sem utan.

1. sæti: Reyktur Bock frá Ölvisholti Brugghúsi, 6,5%.

Þetta er hinn fullkomni jólabjór, það er bara þannig. Maltið í bjórnum er þurrkað í reyk og fyrsti sopinn minnti aðeins á hangikjöt. Fyrsti sopinn sló mann, gríðarlegur karakter og kom á óvart. Maður varð að taka fleiri til átta sig betur á bjórnum. Hann ögrar manni sem er snilld.
Ákveðið, sterkt maltbragð og afar bragðgóður. Eftirbragðið ljúft.
Þetta er algjör sælkerabjór, bjór sem á að njóta. Maður drekkur ekki marga í röð af þessum. Hann er spari.
Umbúðirnar líka stórkostlega vel heppnaðar og mikill metnaður í umbúðunum rétt eins og bjórnum. Þar er útskyrt að bock þýði geit meðal annars og myndin síðan af jólasveini á geit með hangilæri í hendinni. Súmerar upp bjórinn og þá stemningu sem hann stendur fyrir. Vel heppnuð mynd og afar virðingarvert að láta sögu bjórsins fylgja með. Svona á að gera þetta.
Get ekki mælt meira með þessum bjór.

Annars er ánægjulegast hvað íslensku bjórarnir koma vel út fyrir utan Egils-sullið.
Fólki er óhætt að kaupa Reykta Bockinn, JólaKalda, JólaJökulinn, Viking og svo að sjálfsögðu Tuborg Julebryg. Það eru bjórar sem munu ekki svíkja yfir hátíðina.

Gleðilega hátíð.

Fært undir Alþjóðamál | Engin ummæli »

Að blogga eða ekki blogga?

Fært af Henry Birgir þann 3. febrúar 2009

Skal fúslega viðurkenna að ég hef haft álíka mikinn áhuga á að blogga síðustu vikur og að hlusta á langar ræður hjá Ögmundi Jónassyni.

Hafði mig ekki einu sinni í að klára áramótaannálinn minn. Átti eftir að minnast á nokkra hluti eins og:

  • að ég hefði farið til Kína, gengið Múrinn, fengið mér tattoo og upplifað silfurævintýrið úr nálægð. Það voru mikil forréttindi.
  • að þetta var mikið nostalgíuár. Ný Rambo-mynd kom út á árinu. Líklega besta mynd allra tíma. Sá hana á sér forsýningu fyrir Sly-fans og píndi mig líka á frumsýninguna skömmu síðar. Það er meiri Sly á næsta ári. Metallica, Guns n Roses og Oasis gáfu út plötur á svipuðum tíma. Metallica-platan er stórkostleg en hinar frekar slappar.
  • gerði margt annað skemmtilegt og átti að lokum frábær jól (skreytti yfir mig) og áramót.

Átti alltaf eftir að sýna Kína-tattooið mitt hérna en einhverra hluta vegna hefur fólk áhuga á að sjá það. Fékk mér það sama dag og ég labbaði Múrinn aka Vegginn sælla minninga. Henti nöfnum barnanna minna á mandarínsku á handlegginn… og já þetta er rétt þýðing og það stendur ekki hoppaðu upp í rassgatið á þér.

Tók viðtal við Geirsson daginn eftir. Það viðtal byrjaði á óhefðbundinn hátt: “Hey, sýndu mér tattooið maður,” sagði Geirsson. Vil líka þakka Hreidda aftur fyrir að lemja mig beint á tattooið. Það var djöfulli þægilegt.

Þó svo ég sé að drulla á mig í blogginu og þetta ár verði algjör viðbjóður er maður ekki alveg að drulla á sig í öllu. Er að fjarþjálfa mig upp hjá Störe sem ætlar að gera kallinn hrikalegan. Helvíti fínt system hjá landsliðsmanninum í póker og hvet þá sem hafa verið að hlaða á sig kílóum undanfarin ár og eru að spá í að drulla sér af stað að hafa samband við Störe. Hann kippir mönnum í lag.

Ætla ekki að loka þessu bloggi þó svo það hafi verið í daufari kantinum síðustu mánuði. Blogga þegar ég nenni og hef áhuga en ekki til að þóknast öðrum. Andinn kemur kannski aftur fljótlega, ef ekki þá so be it.

Góðar stundir.

Fært undir Alþjóðamál | 4 ummæli »

Jólaboðinn ljúfi

Fært af Henry Birgir þann 28. nóvember 2008

“Þú komst með jólin til mín”. Nú eru jólin greinilega að koma.

Ef þetta er ekki hinn sanni jólaandi þá veit ég ekki hvað.

Fært undir Alþjóðamál, Heilbrigði | 5 ummæli »

Magnaðir danstaktar hjá Alla Eyjólfs

Fært af Henry Birgir þann 3. október 2008

Aðalsteini Reyni Eyjólfssyni aka Alli Eyjólfs, eða bara Reynsinn eins og flestir þekkja hann, er margt til lista lagt. Hann er ekki bara öflugur þjálfari heldur hreint út sagt stórkostlegur dansari. Það sannar hann á myndbandinu hér að neðan.

Hef ekki Ögmund um hvar þetta er tekið upp en Reynsinn upplýsir okkur kannski um það. Veit hann fylgist með síðunni.

Það breytir samt ekki þeirri staðreynd að þetta er líklega fyndnasta myndband sem ég hef séð um ævina. Gjörsamlega stórkostlegt. Alli mætti endilega bjóða upp á eitthvað af þessum töktum á hliðarlínunni í vetur.

Fært undir Alþjóðamál | 1 ummæli »

Glaðningur dagsins

Fært af Henry Birgir þann 1. október 2008

Góður félagi minn kom færandi hendi til mín í morgun og í kjölfarið er ég í afar góðu skapi.

lemon.jpg

Það þarf oft ekki mikið til að gleðja mann.

Óska aftur eftir meira Lemoni ef einhver á. Síðasta Lemon-færsla skilaði mér engu sem voru ákveðin vonbrigði.

Fært undir Alþjóðamál, Heilbrigði | 3 ummæli »

Gullkorn dagsins

Fært af Henry Birgir þann 24. september 2008

Það er ekki erfitt að komast í gott skap snemma morguns þegar sonur minn dritar út úr sér hverju gullkorninu á fætur öðru. Þarf að halda betur utan um alla þá snilld.

Þessi schnilld hnaut af vörum hans í morgun. Þá var eitthvað barnalag með Birgittu Haukdal í sjónvarpinu.

“Þetta er ekki gott lag, þetta er ekki Iron Maiden.” Ísak Daði Henrysson, 5 ára.

Maður fyllist óneitanlega stolti er maður sér þungarokksuppeldið skila sér. Hlustuðum svo á Death magnetic á leiðinni í leikskólann og höfðum gaman af.

Fært undir Alþjóðamál | 2 ummæli »

Konungur kyndinganna

Fært af Henry Birgir þann 23. maí 2008

Sverrir Stormsker fer gjörsamlega á kostum þessa dagana. Hann tekur hvern gamla félagann á fætur öðrum í gegn og dregur hvergi undan.

Jón Ólafsson fékk fyrstur að finna fyrir beittu sverði Sverris og gekk eigi ósærður úr þeim bardaga eftir að hafa reynt að verja sig.

Sverrir virðist hafa brýnt vopn sitt enn frekar áður en hann lagðist til atlögu gegn Stebba Hilmars. Cheeriosið hlýtur að hafa staðið í Hilmarssyni eftir síðustu atlögu Sverris í morgun. Tökum dæmi:

“Það er öfugsnúið að STEFán skuli saka mig um hroðvirkni í stúdíói. Eiginlega brandari. Ég henti honum útúr stúdíóinu á sínum tíma þegar hann var að syngja „Horfðu á björtu hliðarnar” af því að hann vildi rumpa þessu af í einum grænum í sínu kröfuleysi því hann heyrði ekki muninn á hálfnótu og heilnótu. Hef vitni að þessu. Ég sagði honum að stíga ekki fæti inn fyrir dyr fyrr en hann væri búinn að ná þessu einsog maður. Ekki nema von að gæinn reyni að snúa öllu á haus….

Það myndi aldrei hvarfla að mér að gera texta einsog STEFán, hvorki edrú eða fullur, og hvað þá að setja þá á plötu. Vona að hann fari ekki að reyna að semja lög líka til að drýgja STEFgjöldin…..

Að lokum vil ég bera fram þá frómu ósk að STEFán fari að læra bragfræði úr því hann er að sveitast við að nota stuðla og höfuðstafi á annað borð, bara svo að textagerðin virki ekki einsog eftir 5 ára gamlan hrímaðan fæðingarhálfvita, og að hann fari að viðhafa vandvirkni án tillitis til STEFgjalda. Hann má ekki bara vanda sig við endurvinnsluna heldur einnig það sem hann er að reyna að skapa. Það skal vanda sem lengi á að standa.”

Þetta er bara smá brot af pistli Skersins í dag. Pistilinn í heild má lesa í linknum hér að ofan. Stefán spáði reyndar fyrir um þennan pistil en sagðist sjálfur hafa sagt sitt síðasta í málinu. Spurning hvort hann geti það eftir þetta.

Skerið er enn í vígamóð og vegur nú að Eyjólfi Kristjánssyni í ljósi þess að Stebbi virðist ekki ætla að slást meira við hann.

Hann sendir Eyfa vænar sneiðar í pistli dagsins og segist þess utan ætla að fara í mál við hann:

“Eyjólfur Kristjánsson leikur sama feluleikinn og STEFán og fer með það einsog mannsmorð á heimasíðu sinni að ég hafi samið textann „Gott” og skráir mig ekki mínu rétta höfundarnafni einsog hann er skyldugur til. Ekki einusinni á endurútgáfu lagsins (tónleikadiski) er ég skráður mínu rétta höfundarnafni, sem er brot á höfundarréttarlögum.
Ég neyðist því til að fara í mál við Eyjólf.

Þegar verið var að tala við hann í Kastljósi fyrir fáeinum árum um þennan texta og textanum hælt í hástert af stjórnanda þá passaði Eyjólfur sig vel á því að minnast alls ekki á það hver hefði samið hann heldur kinkaði drýgindalega kolli einsog hann hefði samið hann sjálfur. Vantaði bara að hann segði: „Takk takk takk, ég á það til að gera góða texta.”

Fyrsta lagið sem var vinsælt með Eyjólfi, lagið Andskodans, var sömuleiðis eftir mig en það er einsog ég hafi gert þessum görpum einhvern óleik með því að hafa komið þeim inn á vinsældarlista. Ég get vel skilið að það sé hræðileg byrði að bera að það skuli hafa verið helvítið hann Stormsker sem hafi ýtt þeim úr vör en þeir og fjölmargir aðrir söngvarar verða bara að bíta í það súra epli. Sorry. Skal lofa að koma þeim aldrei á framfæri aftur!!

Boltinn er nú hjá Eyfa sem hlýtur að svara fyrir sig líkt og Jón og Stefán.

Við saklausir lesendur höldum áfram að skemmta okkur yfir þessum stórskemmtilegu deilum sem eru leiddar af konungi kyndinganna, Sverri Stormsker.

Fært undir Alþjóðamál, Heilbrigði, Menning og listir, Tónlist, Umræðan | 11 ummæli »

Fín afmælishelgi

Fært af Henry Birgir þann 18. maí 2008

Get ekki kvartað yfir helginni, hún er búin að vera helvíti fín. Skellti mér á Argentínu með betri helmingnum í gærkvöldi. Byrjaði ekki vel þar sem þjónninn tjáði mér að ég væri á biðlista sem var ekki raunin þegar ég pantaði.

Um það leyti sem ég ætlaði að taka hárblásturinn á hann tjáði þjónninn mér aftur á móti að það væri laust. Hefði tekið létta kastið ef þetta hefði verið eitthvað vesen.

Þarf ekkert að ræða matinn þarna. Hann er stórkostlegur. Búinn að vera einn af mínum uppáhaldsvetingastöðum til fjölda ára og hann er alltaf jafn traustur.

Svo var skundað í Smárabíó þar sem ég prófaði lúxussalinn í fyrsta skipti. Fer ekki aftur í venjulegan bíósal. Það er klárt mál. Hrikalega traust að rúlla inn með einn kaldan og láta fara vel um sig. Reyndar er fullstutt á milli sætaraða. Er nú enginn risi en var með tærnar í bakinu á stólnum fyrir framan mig sem er stór mínus.

Fékk svo að sofa út í dag og haugaði mér ekki fram úr fyrr en eftir hádegi. Það var ljúft. Eins og lesendur vita þá gekk grillið mitt í gegnum miklar raunir síðasta vetur og ferðaðist í loftköstum um hálfan Kópavog.

grill1.jpg

Ákvað því að gera vel við mig og gefa sjálfum mér nýtt grill í afmælisgjöf. Minna má það nú ekki vera enda eyði ég drjúgum tíma fyrir framan grillið.

grill2.jpg

Það var svo að sjálfsögðu eldað á nýja grillinu í kvöld eftir að mér hafði tekist að koma því saman. Ég fullyrði annars að það er ekkert eins leiðinlegt og að setja saman grill. Það hafðist á endanum.

Er svo að taka NBA núna, lúxus að fá loksins leik á eðlilegum tíma. Er því frekar sáttur með daginn og helgina.

Fært undir Alþjóðamál | 3 ummæli »

Rallýbelgir

Fært af Henry Birgir þann 21. apríl 2008

belgirnirTvær af stærstu stjörnum nútímans eiga það sameiginlegt að hafa prófað að sitja við hlið meistara í rallý.

Báðir skitu augljóslega í sig af hræðslu en settu upp nákvæmlega sama svipinn til þess að fela hræðsluna. Það er ekkert að takast neitt sérstaklega að mínu mati.

Þessi mynd er bara priceless. Hægt er að sjá hana stóra með því að smella á hana.

Njótið vel.

Fært undir Alþjóðamál, Heilbrigði | Engin ummæli »

Tyson til í að hjálpa Gazza

Fært af Henry Birgir þann 14. apríl 2008

Þetta er einhver stórkostlegasta frétt sem ég hef séð lengi. Í hversu vondum málum getur maður verið þegar Tyson hefur efni á að bjóða manni aðstoð?

Býð í kjölfarið upp á stórkostlegan dúett hjá Tyson og Jimmy Kimmel þar sem þeir syngja Winter Wonderland. Einstakt. Þetta er rosalegt !!!

Fært undir Alþjóðamál, Heilbrigði | 1 ummæli »

 
Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning