Hugleiðingar Húsvíkings

Færslur í flokknum 'Íþróttir' Category


Vistaskipti

Fært af Henry Birgir þann 7. mars 2009

Skil ekkert í því hvað fólk er enn að gera inn á þessari síðu. Hún hefur löngu lokið keppni af einhverju viti.

Er nú samt ekki alveg hættur að blogga en hef flutt mig um set. Framvegis mun ég skrifa íþróttahugleiðingar mínar á blogg.visir.is/utanvallar ásamt félögum mínum í vinnunni. Endilega kíkja á það.

Veit ekki hvað verður um þessa síðu en hún mun liggja áfram í dvala. Ætla nú samt ekki að loka henni enda gæti ég hugsanlega nýtt hana fyrir önnur hugðarefni sem ekki endilega tengjast sportinu. Þannig að framtíð síðunnar er óráðin.

Hvet lesendur endilega til þess að kíkja á nýju síðuna.

Fært undir Íþróttir | Engin ummæli »

Kreppa í körfunni

Fært af Henry Birgir þann 9. janúar 2009

Fyrirsögn af vef KKÍ:

“Hver vinnur ferð fyrir tvo á leik ÍR og KR í kvöld?”.

Fært undir Íþróttir | 4 ummæli »

Fullt hús hjá Óla Stef

Fært af Henry Birgir þann 2. janúar 2009

Einhverju besta íþróttaári í sögu Íslands lauk á viðeigandi hátt í kvöld þegar einn glæsilegasti íþróttamaður þjóðarinnar frá upphafi, Ólafur Stefánsson, fékk fullt hús í kjöri íþróttamanns ársins.

Ég hafði margoft sagt að það yrði skandall ef Óli fengi ekki fullt hús og það var ánægjulegt að sjá alla kollega mína setja Ólaf í efsta sætið.

Annars var óvenju erfitt að setja saman topp tíu listann í ár. Þó ánægjulega erfitt því á stundum hefur maður átt í vandræðum með að fylla topp tíu listann. Þetta er talsvert skemmtilegra svona þó svo nokkurn tíma hafi tekið að fá niðurstöðu.

Ég er nokkuð sáttur með topp tíu listann hjá samtökunum en eins og sjá má hér að neðan hefði ég viljað sjá Jón Arnór ofar á listanum. Mér finnst hann ekki alltaf njóta sannmælis í þessu kjöri.

Topp tíu listinn minn leit annars svona út:

1. Ólafur Stefánsson
2. Snorri Steinn Guðjónsson
3. Guðjón Valur Sigurðsson
4. Jón Arnór Stefánsson
5. Margrét Lára Viðarsdóttir
6. Eiður Smári Guðjohnsen
7. Hermann Hreiðarsson
8. Veigar Páll Gunnarsson
9. Katrín Jónsdóttir
10. Þormóður Árni Jónsson

Hér er svo heildarlistinn með öllum þeim íþróttamönnum sem fengu stig í kjörinu í ár. Heildarlistinn er oft svolítið skemmtilegur.

Ólafur Stefánsson, handbolti, 480 stig
Snorri Steinn Guðjónsson, handbolti, 287
Margrét Lára Viðarsdóttir, fótbolti, 210
Guðjón Valur Sigurðsson, handbolti, 194
Eiður Smári Guðjohnsen, fótbolti, 124
Hermann Hreiðarsson, fótbolti, 97
Katrín Jónsdóttir, fótbolti, 61
Alexander Petersson, handbolti, 56
Þormóður Jónsson, júdó, 51
Jón Arnór Stefánsson, körfubolti, 39
Helena Sverrisdóttir, körfubolti, 33
Veigar Páll Gunnarsson, fótbolti, 26
Dóra María Lárusdóttir, fótbolti, 25
Bergur Ingi Pétursson, frjálsar íþróttir, 10
Grétar Rafn Steinsson, fótbolti, 10
Björgvin Páll Gústavsson, handbolti, 10
Hólmfríður Magnúsdóttir, fótbolti, 9
Viktor Kristmannsson, fimleikar, 7
Róbert Gunnarsson, handbolti, 6
Arnór Atlason, handbolti, 5
Ragna Ingólfsdóttir, badminton, 4
Örn Arnarson, sund, 4
Ásdís Hjálmsdóttir, frjálsar íþróttir, 2
Ólöf María Jónsdóttir, golf, 1
Eyþór Þrastarson, sund fatlaðra, 1

Að lokum vil óska ég Ólafi aftur til hamingju með frábæra kosningu sem hann átti svo sannarlega skilið.

Fært undir Íþróttir | 8 ummæli »

Áramótasprengja Skjálfanda

Fært af Henry Birgir þann 30. desember 2008

Vek athygli íþróttaunnenda á því að á morgun, gamlársdag, verður tveggja tíma þáttur af Skjálfanda. Byrjar á gamla tímanum, 12, og er búinn klukkan 14 en þá mæta snillingarnir í Harmageddon með sína áramótasprengju.

Ég mun taka á móti fjölda góðra gesta og við munum í sameiningu rifja upp íþróttaárið 2008. Held það sé óhætt að lofa hressum og léttum þætti.

Þeir sem vilja hlusta á þáttinn á netinu geta gert það hér. Annars er það bara gamla góða 977 á útvarpinu.

Þetta verður væntanlega síðasti þáttur af Skjálfanda. Í óbreyttri mynd hið minnsta en óvissa er um framtíð þáttarins eftir áramót eins og margt annað í þjóðfélaginu þessa dagana. Þátturinn verður hið minnsta ekki áfram á dagskrá fimm daga vikunnar. Því miður segi ég enda hef ég haft mjög gaman af þessari vinnu.

Áramótasprengja Skjálfanda á morgun, gamlársdag, milli 12 og 14!

Fært undir Íþróttir | Engin ummæli »

Íþróttamaður ársins

Fært af Henry Birgir þann 18. desember 2008

Styttist í að íþróttamaður ársins verði krýndur en kjörinu verður lýst þann 2. janúar næstkomandi. Íþróttafréttamenn skiluðu inn atkvæðaseðlum sínum í gær, það er að segja fyrir utan einn sem á það til að taka sér lengri tíma í þetta en aðrir, og á Þorláksmessu verður opinberað hvaða tíu íþróttafréttamenn koma til greina.

Mun væntanlega birta minn lista eftir að kjörinu hefur verið lýst en það er svo sem ekkert leyndarmál að ég kaus Ólaf Stefánsson sem íþróttamann ársins. Í mínum huga þarf ekkert að ræða það val sérstaklega. Gjörsamlega ótrúlegt ár hjá Óla. Frammistaða hans í Meistaradeildarúrslitunum í Kiel er að mínu mati eitt stærsta íþróttaafrek allra tíma á Íslandi. Svo var víst silfur á ÓL og annað í þessu hjá honum. Er þess utan á því að það sé skandall ef hann fær ekki fullt hús!

Annars sérstakt ár að mörgu leyti þar sem hópíþróttir bera af og einstaklingsíþróttamenn ekki margir að berjast um að komast inn á listann. Það hafa komið ár þar sem ég hef verið í vandræðum með að finna tíu íþróttamenn á listann minn en það var enginn hausverkur í ár. Talsvert skemmtilegra að geta valið úr stórum fjölda. Samt afar erfitt að setja saman listann frá 2 til 10.

Væri gaman að heyra álit manna á kjörinu þetta árið og ekki verra ef menn henda í sinn topp tíu lista hérna í commentunum.

Tók annars heilan Skjálfanda undir umræður um kjörið. Það var afar hressandi þáttur og má heyra hann hér.

Fært undir Íþróttir | 11 ummæli »

45 mínútna maður

Fært af Henry Birgir þann 15. desember 2008

“…mér fannst ég hálforkulaus eftir fyrri hálfleikinn,” sagði Eiður Smári við Moggann eftir El Clásico.

Er ég einn um að finnast eitthvað skrýtið við það að atvinnumaður hjá Barcelona sé sprunginn eftir einn hálfleik?

Fært undir Íþróttir | 6 ummæli »

Reykás anyone?

Fært af Henry Birgir þann 9. desember 2008

Þá er komin enn ein handboltayfirlýsingin í vetur. Nú eru það FH og Haukar sem harma allt og alla og sleppa við allar refsingar væntanlega eins og aðrir sem hafa nennt að henda frá sér yfirlýsingu.

A. Reynir Eyjólfsson farinn út þannig að líkurnar á að einhver fari í drjúgt bann í vetur hafa hrapað um 80 prósent.

Annars búið að vera líf og fjör í handboltanum í vetur. Gaman að sjá góða grannaslagi þar sem vel er mætt og mikill hiti í húsinu. Það verður að vera hiti og fjör í þessu en þó innan skynsamlegra marka eðlilega.

Skemmti mér líka konunglega við að lesa viðtal við Viggó á sport.is í gær þar sem hann sagði úrslitakeppnina vera rugl. Ekki margir mánuðir síðan hann var ötull stuðningsmaður þess að hafa úrslitakeppni og sagði hana reyndar nauðsynlega fyrir handboltann.

Hressandi.

Fært undir Íþróttir | 11 ummæli »

Föstudagslagið - Ronn Moss tribute

Fært af Henry Birgir þann 28. nóvember 2008

Það er löngu kominn tími á að þessi síða heiðri einn merkasta listamann allra tíma á almennilegan hátt. Sá heitir Ronn Moss og ætti í raun ekki að þurfa að kynna þann meistara frekar en fyrir þá sem hafa búið í helli síðustu áratugi þá leikur hann ofurhönkið Ridge Forrester í eðalþáttunum B&B.

Mossarinn er ekki bara einstakur leikari heldur er hann ákaflega hæfileikaríkur tónlistarmaður og hefur verið að gera garðinn þar einnig frægan í hátt í þrjá áratugi.

Byrjum á hugljúfum smelli af síðustu sólóplötu sem heitir UnCovered. Sú plata er meistarastykki og ég get bara ekki mælt nógu mikið með henni. Þarna sýnir strákurinn hvað hann er öflugur LIVE að mér sýnist í finnskri útgáfu af Laugardagslögunum.

Strákurinn henti í rándýrt myndband fyrir fyrsta single plötunnar, It´s all about you. Líklega besta myndband sem ég hef séð. Hann plokkar þarna bassann af einstakri fagmennsku ofan á allt annað. Hæfileikar mannsins eiga sér engin takmörk.

Svo fáum við eina dýnamíska og góða senu með meistaranum og Logan sinni. Músík að sjálfsögðu í boði Mossarans.

Moss er maðurinn. Bendi á dýnamíska heimasíðu kappans að lokum.

Fært undir Íþróttir | 3 ummæli »

Allir voða sorry í handboltanum

Fært af Henry Birgir þann 26. nóvember 2008

Áhugaverð stefna hjá HSÍ að krefja þá sem missa eitthvað vafasamt út úr sér við fjölmiðla um afsökunarbeiðni. Ef þeir verða við þeirri beiðni er ummælunum ekki skotið inn á borð aganefndar.

Viggó reið á vaðið, sem kom gríðarlega á óvart, og nú hefur Patti fylgt í kjölfarið.

Ég harma það sem var haft eftir mér um störf dómara í leik Vals og Stjörnunnar í N1 deild karla. Þetta var sagt í hita leiksins og biðst ég velvirðingar á því.
Kveðja,
Patrekur Jóhannesson

Patti er þarna nokkuð sorry yfir því að hafa látið dómarana heyra það og tekst því ekki að toppa Viggó sem skautaði á snilldarlegan hátt fram hjá því að biðjast afsökunar á orðum sínum. Yfirlýsing hans er þegar orðinn legendary og á vel skili að fá aðra birtingu.

Ég harma að hafa rætt við blaðamann Morgunblaðsins um frammistöðu dómarana eftir leik Fram og FH í N1 deild karla.
Með kveðju. Viggó Sigurðsson.

Hver biðst næst afsökunar? Reynsinn hefur verið ótrúlega spakur það sem af er vetri. Hann hlýtur að fara að opna sig.

Fært undir Íþróttir | 1 ummæli »

Áhugaverð skilti og skortur á strípum á Rúv

Fært af Henry Birgir þann 22. nóvember 2008

Var að horfa á handboltann þar sem FH missti enn á ný niður forskot í seinni hálfleik. Skil ekkert í þeim að vera ekki alltaf undir í hálfleik.

Hitt og þetta sem vakti athygli. Mesta athygli vakti í upphafi leiks að Gísli Hlynur er búinn að kasta strípunum fyrir róða og er orðinn dökkhærður.

Ekki gott mál en Gísli er kannski að spara í kreppunni. Skora á hárgreiðslustofur á Suðurnesjum til þess að gefa Gísla fríar strípur. Hann er bara ekki sami maðurinn strípulaus.

Skiltin hjá Rúv voru svo frábær. Þau voru með brasilísku ívafi. Aðeins fyrra nafn leikmanna þegar lokatölur voru teknar saman. Bara eins og allir viti hver “Arnar” er.

Virkar í Brasilíu með Kaká, Robinho og svona en ekki með Einar, Jón og Gunnar.

Fært undir Íþróttir | 3 ummæli »

 
Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning