feb
7
OPINBER HÝÐING Í PAKISTAN.
7. febrúar 2010 kl. 20.33 |
http://www.msnbc.msn.com/id/21134540/vp/35261548#35261548
Hér er myndband sem sýnir Talebana deila út flengingum sínum, fyrir hinar ýmsu yfirsjónir gegn sharia lögunum þeirra.
Öldungar ættbálksins, sem sendu þetta myndband sögðu að 1. Manninum væri refsað fyrir ,,vinna gegn Talibönum“ með því að tala gegn stríðsjálkunum. Annað fórnarlambið virðist vera táningur, sem öldungarnir segja að hafi verið sakfeldur fyrir að láta sér ekki vaxa skegg. Sá þriðji var flengdur fyrir að biðjast ekki fyrir.
Viðstaddir karlmenn horfðu á barsmíðarnar þögulir í vanmætti sínum yfir að geta ekki komið í veg fyrir þessi glæpaverk Talibana..
Myndbandið var tekið 3. Febr. S.l. á GSM síma var afhent fréttamanni, sem sendir stundum myndbönd til Associated Press Television News. Hann sagði að það hefði verið tekið á Mamozai svæðingu í Orakzai ættarsvæðinu. Engin leið er til þess að fá sannleiksgildi myndbandsins staðfest, þar sem öldungarnir óskuðu nafnleyndar.
Talibanar eru þektir fyrir að flengja fólk á svæðum sem þeir ráða ef þeir gruna menn að vinna gegn sér, og fara ekki eftir strangtrúartúlkun þeirra á Kóraninum. Flengingarnar eru oft svo harkalegar að þær leiða til dauða.
Hér er slóð á frásagnir af stjórn Talebana á Afganistan á sínum tíma.
http://hermdarverk.blogcentral.is/blog/2008/5/21/hid-islamska-riki-talibana-i-afghanistan/
Ummæli
Þú verður að vera skráður inn til að rita ummæli.
Hefi áhuga á trúmálum, stjórnmálum, leiklist, tónlist lestri bóka osfr.