feb
8
BÚRKUKLÆDDIR RÆNINGJAR STELA Í PÓSTHÚSI.
8. febrúar 2010 kl. 17.26 |
AFP, 7. Febr. 2010,
Það hallar á íslamska klerkaveldið þessa dagana. Nú geta hvaða þjófar sett á sig íslamska helgislepju og stolið hverju sem er í búrkum og engin þorir að taka búrkudúkkur fastar, því það gæti leitt til uppþota og verið talin móðgun við trúna. En það liggur auðvitað í augum uppi að þjófarnir gætu verið alþjóðaglæpamenn sem færa sér í nyt íslamska helgislepju, sem er farin að lækka talsvert í gengi greinilega þessa dagana.
Fulltrúar réttarsalarins gáfu þá skýringu að þjófarnir hafi falið skammbyssur sínar undir klæðnaðinum, enda sést ekkert hvað er innan klæða.
Fulltrúar hins opinbera sögðu að parinu hefði verið hleypt inn í gegn um tvöfaldar öryggishurðir, þar sem álitið væri að um tvær múslímakonur hefði verið að ræða.
Þegar þær voru komnar inn fyrir þá brugðu þær vopnum sínum á loft og munduðu byssurnar framan í starfsfólkið.
Þeim tókst að ná 4.500 evrum af starfsfólkinu og viðskiptavinum Athis Mons, sem er staðsett rétt fyrir sunnan París, samkv. Frásögn Le Parisiens fréttavefnum.
Stuðst er við frétt af þessari slóð:
http://www.abc.net.au/news/stories/2010/02/07/2812378.htm?section=justin
Ummæli
Þú verður að vera skráður inn til að rita ummæli.

Hefi áhuga á trúmálum, stjórnmálum, leiklist, tónlist lestri bóka osfr.