Af tilraunum, barneignum og fleiru
Vá hvað maður er ekkert að standa sig hér. Veit ekki af hverju, ekki er svo brjálað að gera hjá mér í skólanum. Kannski bara almenn leti? Er það ekki alltaf þannig að maður er rokna duglegur þegar mikið er að gera og öfugt? Alla vega í mínu tilfelli.
En ok, nú er vika í heimsóknina til Íslands og skipulegið komið á fullt, svona í huganum. Hvað á að taka með og svona. Verður gaman að hitta ykkur, langar bara ekkert í þetta krepputal ykkar. En það er önnur saga.
Nú erum við búin að búa hér í Álaborg í nærri 2 mánuði og farin að venjast þessu lífi, kynnast umhverfinu og fólkinu í kringum okkur. Eða ekki beint kynnast fólkinu, meira svona taka eftir því. Hér er nefnilega margvíslegt fólk og mjög fyndið að spá í það. Verð að útskýra aðeins hvernig þetta er hérna. Sko, við erum á fyrstu hæð í blokk með svalir til tveggja átta. Það eru fjórar blokkir í okkar „garði“ sem snúa saman utanum smá leikvöll og innganginn inn í blokkirnar. Þetti gerir það að verkum að maður sér hvern og einn einasta nágranna út á sínum svölum eða á leið um garðinn. Við Hanni höfum gert aðeins í því að sitja á svölunum, reykja, fdrekka kaffið okkar og spá í fólkið sem ber fyrir augum. Reynum auðvitað að láta eins og við séum bara að njóta veðursins, sem b.t.w. hefur verið ljómandi gott fram til þessa, bara svona hjón á svölunum sínum að fá sér kaffisopa (stundum rauðvín, ok). Makalaust hvað margir Grundfirðingar eiga tvífara akkúrat hérna á þessum bletti get ég sagt ykkur. Hér býr s.s. Ása í Koti, Siggi pé eftir grenningu og fleira fólk sem ég man ekki nöfnin á í augnablikinu. Makalaust alveg hreint! En svo erum við auðvitað umvafin vandrörum (innfluttum dönum) frá Grænlandi, Sómalíu, Pakistan og öllum þeim löndum í stórum bunum. Húsaleigan er með því ódýrara hér svo það er meira svona fólk hér. Ætla nú ekki að láta þetta hljóma sem rasista eitthvað, en svona er þetta bara að þessu fólki fylgir ýmislegt og ekki endilega jákvætt allt saman. Grænlendingarir hér í næsta stigagangi finnst t.d. áfengi sérstaklega góður mjöður, meira en svona okkur hinum. Því fylgir sóðaskapur og hávaði sem maður reynir bara að láta fram hjá sér fara ef það abbast ekki upp á okkur sem það hefur næstum ekkert gert. Þurftum reyndar að kvarta yfir ruslapokunum þeirra á svölunum sem voru farnir að bera ólykt yfir til okkar. Því var kippt í liðinn. Svo höfum við fundið fyrir að maður er ekkert að láta dótið sitt liggja á svölunum ef maður vill sjá það meir. Var stolið af okkur hálfum kassa af tómum bjórflöskum, skil nú ekki að nenna svona löguðu en sumum vantar bara pening hvað svo sem upphæðin er stór. En alla vega passar maður upp á sitt dót hér. Svona er þetta bara og greinilegt að við erum ekki lengur í smábæ. En það er meira jákvætt hér en neikvætt. Við höfum t.d. aldrei fengið eins marga í heimsókn á eins stuttum tímaog síðan við fluttum hingað, skólamálin eru í fínu standi hjá okkur öllum, strákarnir eru 4 mín í sinn skóla á hjóli, ég er 1 mín og Hanni þarf auðvitað að fara á skúternum en er samt alltaf komin heimum fjögur leytið sem er ekkert smá plús miðað við að skeinast heim um fimm eða jafnvel hálf sex á verstu dögunum. Svo er hér frábært útivistarsvæði í uppbyggingu bara rétt við húshornið með göngustígum, BMX braut, risa hjólabrettabraut (Grundó mætti nú skoða það og skammast sín svolítið fyrir þennan aumingja ramp sem þeir voru svo montnir af að setja upp á sínum tíma) Hanni er svo stoltur af því að eiga einn bekk í þessum garði sem hann ásamt fleirum tók þátt í að hanna og steypa í fyrra og var settur þarna. Fórum að skoða hann í gær, mjög flott!
Annars er það að frétta af öðrum Grunmdfirðingum hér í Ála að Imba átti sitt 6. barn á föstudagskvöldið, stúlku sem fær nafnið Sunneva. Myndarstúlku sem við fjölskyldan fórum að skoða áðan. Heilsast öllum vel og mikil gleði í gangi með þetta allt saman. Kata var hérna í heimsókn á föstudaginn, héldum henni í gislíngu fram eftir kvöldi, drógum hana í storcenter, tróðum í hana mat og neyddum svo til að glápa á Vild með dans með okkur áður en hún fékk fararleyfi heim aftur. Nei, auðvitað vorum við ekkert að neyða Kötu litlu í þetta. Áttum barasta góðan dag hérna saman og hún fékk að reyna tilraunaeldamennsku okkar hjóna sem heppnaðist gríðar vel að þessu sinni. Ótrúlegasta samsetning fæðutegunda sem einhvern veginn passaði bara svona skemmtilega saman. Pangasius fiskur í sítrónu með osta og rasphjúpi í ofni, hvítlaukskartöflustappa, soðinn ferskur aspas, spænskt tómat, rauðlauks og mosarellasalat og veltisteikt grænmeti með peru og sultuðum kínverksum engifer. Ótrulegt en satt að þetta samansull var alveg ferlega gott og ekki spillti að þetta var svona samsuðu eldamennska sem allir viðstaddir tóku þátt í af miklum móð. Yfir Vild med dans var svo smakkað á brendum möndlum sem eru algjört hitt hér hjá fjölskyldunni, svo mikið að nú er bara leytað að svona potti til að brenna möndlur í í gríð og erg.
Annars var ég að byrja á Facebook (ok, ég er lengi að taka við mér) og skemmti mér þetta ljómandi við að hitta og uppgötva hinn og þennan þarna inni, gerast vinir og svona. Verð örugglega meira þar inni en hér næstu vikurnar svo þaðer um að gera þeir sem ekki eru búnir að koma sér upp Facebook að skella sér í það hið snarasta og finna mig svo.
Jæja, ég er búin að vera að skrifa þetta með hléum í allan dag. Fórum s.s. að skoða nýja baby hennar Imbu niður í bæ, tókum góðan göngutúr um miðbæinn í leiðinni fyrst við vorum komin þangað á annað borð og nú er Hanni algjörlega búinn á því og grjót sofnaður inn í rúmi. Heyri hroturnar hingað inn, úbbs! hann hrýtur jú víst ekki að eigin sögn. Það er bara hávaða rok hérna og frekar kalt í dag. Hanni spurði mig, þegar ég var að kvarta yfir rokinu niður í bæ áðan, hvort ég vissi ekki að það væri stormur í DK núna? da! HVAD? Neibb, þetta er sko ekki stormur, þetta er rok. Hér hefur ekki komið alemnnilegur stormur síðan ég flutti, en hver veit kannski kemur hann síðar í dag. Þetta er alla vega fyrstu merki haustsins hér núna að mér finnst. Búið að vera frekar milt og gott veður fram að þessu og ég bara verið á sumarjakkanum en núna þarf að fara ða grafa upp hvert trefillinn lenti ég er líka að fara til Íslands eftir 6 daga svo það er eins gott að vera komin með vetrarfötin á tært.
Læt þetta nægja í bili, enda orðið mun lengra en í upphafi var ætlað.
Þangað til næst
Hrafnhildur Jóna
