Útlendingar í þjónustustörfum
26. september 2007Skiljanlega getur það fari í taugarnar á innfæddum Íslendingum þegar þeir þurfa að leita eftir þjónustu, að lenda á útlendingi sem ekki talar okkar ylhýra tungumál og getur jafnvel ekki gert sig skiljanlegan á ensku.
Í sumum geirum atvinnulífsins á ekki að líða að þar starfi einstaklingar sem ekki tala íslensku, einstaklingar sem þurfa eða verða að hafa samskipti við þá sem sækjast eftir þjónustunni. Það gengur ekki að um aldraða fólkið hugsi einstaklingar sem geta ekki tjáð sig á íslensku eða í leikskólum landsins starfi einstaklingar sem kunna ekki íslensku. Er ekki sjálfsögð krafa að að útlendingar sem setjast að hér læri tungumálið okkar hyggist þeir takast á hendur störf eins og þessi?
Hvað finnst þér?
Heimir og Kolla stýra morgunþætti Bylgjunnar, alla virka daga milli sjö og níu.