Gísli söng hæst í kirkju

15. maí 2012

Góða söngæfingu áttum við í kvöld
og svo tökum við frosttölur á heimleiðinni kl. 22.45, fórum af stað með eina og
hálfa frostgráðu, en þær fóru niður í 4 stig milli Arnarstaða og Túns en voru
komnar í tvær og hálfa við Gaulv.afleggjara, tvær við N1 og eina gráðu á
torginu. Ótrúlega mikill munur.

Þórhildur á Hóli er systurdóttir
Gísla Ólafssonar og yrkir hér um Gísla afa þeirra á Eyvindarstöðum.

  
Langafar mínir

Síst má glæstum gleyma

Gísla Blönddælingi.

Unni hann öllu fögru,

átti frændstyrk mikinn.

Glettinn gæðadrengur,

glaður á vinaþingi.

Honum enginn hærra

hefur í kirkju sungið.

            Þórhildur
Sveinsdóttir frá Hóli

móðir hennar Vilborg Ólafsdóttir var barnabarn Gísla Ólafssonar á
Eyvindarsstöðum

 

Hér má skoða sóknirnar í landinu:

http://kirkjan.is/soknir/profastsdaemi/#J

lestin lík

15. maí 2012

  Úr kvæðabók Gísla
Ólafssonar, Ljóð

 

Blessað vor! Þín blómdögg hlý

bræðir klaka af strindi.

Hjá þér falla faðmlög í

friður von og yndi. GÓ lokavísa úr ljóðinu Vorkvaki bls.
56

 

Röng eru flestöll fetin mín

en fárra sést til spora.

Gleymska festir fortjöld sín

fyrir bresti vora. GÓ bls. 60

 

Þótt þú berir fegri flík

og fleiri í vösum lykla

okkar verður lestin lík

lokadaginn mikla. GÓ bls. 61

 

http://bragi.arnastofnun.is/visur.php?VID=5699

umræðu fremur en garg!

14. maí 2012

Sól og norðanátt hefur ráðið
ríkjum í dag, úrkomulaust og kalt. Kátir voru þeir kennarar á kaffistofunni í
morgun sem farið höfðu á Bítlatónleikana í gærkveldi, heiðra má Stefán
Þorleifsson og kórinn hans fyrir þetta ágæta framtak.

Hafliða Pálssyni auglýsanda í RUV1 tekur
ritlari ofan fyrir, Hafliði er greinilega orðinn leiður á sægreifastaglinu í
fjölmiðlaauglýsingum og auglýsir móti þeim – ofstopalaust og undir eigin nafni.

Látum ekki óráðsíufólk stjórna
Íslandi. Sanngjarnt auðlindagjald. Hafliði Pálsson

Þannig hljómar auglýsingin á undan
kvöldfréttunum.

G. Andri fjallar af vandvirkni en
tæpitungulaust um auglýsingar sægreifanna og hvernig þeir bera fyrir sig
saklausa sjómenn og verkalýðsforingja. Ekki er það stórmannlegt að hafa þessa að
skjöldum til að skamma Steingrím og ríkisstjórnina:

 Það er því eitthvað verulega óþægilegt við auglýsingu þar sem sýnd er
íslensk sjómannsfjölskylda og spurt: Hvað höfum við gert ykkur? Og látið sem
svo að stuðningsmenn veiðigjalds vilji taka lífsbjörgina frá íslenskum
sjómönnum, gott ef ekki hrifsa matinn frá litlu sjómannsbörnunum. Þessi
auglýsing er svo ófyrirleitin í viðleitni sinni til að spila á kenndir
landsmanna í garð sjómanna að leitun er á öðru eins.

http://www.visir.is/thad-gefur-a-batinn—/article/2012705149913

 

get messað

14. maí 2012

Þau fylltu Iðusalinn í
gærkveldi, kór FSu, og skemmtu gestum sínum prýðilega, sungu Bítlalög með
söngvurunum Gunnari Ólasyni og Labba, fernt kom úr bænum og hjónin í
Vesturbænum fóru svo við gátum kallað okkur allfjölmenn hér af spildunni.

Óveðursfréttir bárust að norðan í gærkveldi, form. sauðfjárbænda í Eyjaf. var
áhyggjusamur vegna fuglanna, ber honum gott vitni;

Hryssutjón ei hrellir oss

hress er ég þó dræpist ess

missa gerði margur hross

messað get ég vegna þess.

Jón á Bægisá

 

á er fallinn bráður byr

13. maí 2012

Nú komum að skoða
Hlíðarsókn  og Bergsstaða 1877-87, þar
eru áar Gísla frá Eiríksstöðum:

http://blogg.visir.is/iihjstikill/?p=633

Húnaver 9. júní kl. 14

http://stikill.123.is/blog/2010/10/29/485458/

Sigvaldi á Skeggsstöðum er
orðin fyrirvinna ekkjunnar móður sinnar og systkina, búa í Eiríksstaðakoti

Pálmi langafi ritlarans er í
Gautsdal

Gamli Gísli og Elísabet amma
Gísla skálds  á Eiríksstöðum búa með
barnahópinn á Eyvindarstöðum

Ólafur sonur þeirra fluttur í
Eiríksstaði og Helga Sölvadóttir kona hans frá Ytri-Löngumýri Sölvasonar

Þá búa í Blöndudalshólum
tengdaforeldrar sonar þeirra KG kaupmanns á Krók (1881)

Sölvi á Löngumýri afi Gísla
Ólafssonar frá Eiríksstöðum var snjall hagyrðingur, flutti til Vesturheims:

Á er fallinn bráður byr
bíða hljóðir vinir
Verið þið allir alsælir
Íslands góðu synir. SS

http://bragi.arnastofnun.is/skag/visur.php?VID=11787

Ýmsar vefslóðir á Þjóðminjasafni:

http://www.thjodminjasafn.is/um-safnid/upplysingathjonusta/boka-og-heimildasafn/tenglar/

Vísindavefurinn – tenglar:

http://visindavefur.hi.is/article.php?id=55

 

ófræging

13. maí 2012

Ófræging er tæplega
eftirsóknarvert viðfangsefni og enn síður getur það verið skemmtilegt.

Í fjölmiðlum dynja á okkur yfirlýsingar þessa daga, úthrópanir á kvótafrumvarpinu
hvað ómögulegt það sé!

Hver er orðin menntun okkar og hæfileiki til umræðu?
Kunna menn ekki lengur að spyrja og svara?

Vonandi sökkvum við aldrei
dýpra í öldudalinn en nú er.

Þetta er útvegurinn sem græðir
hverja viku á hríðföllnu genginu, aflinn er góður og hvað er þá til fyrirstöðu
að setjast niður og setja loksins lög um þjóðarauðlind þessa, - eins og aðrar.
Nei, milljónum er ausið í auglýsingar með ömurlegu og endurteknu stagli og
ófrægingum. 

Væri ekki nær að leggja nokkrar krónur í ríkissjóðinn og sægreifarnir settust niður að ræða málin.
Hrokalaust.

Hættu að láta mammon kúga sig og þjóðina til að hlaupa eftir
stundargróða.

Eitt hrun á að duga. 

Þökk sé Þór Saari að minna á
þessa ómenningu í gærkveldi í sjónvarpinu!

fáklæðin forn eða ný

12. maí 2012

Baðstofukaldur og sjókaldur
eru orð sem við RB fórum að ræða í morgun, Ragnar var í morgunsöng og
eitthverju var ólokið af því sem þar bar á góma og þá er fljótlegt að hringja
og rabba stund.

Við GÞJ fórum að hlusta á
kirkjukórinn og Rögnvald Valbergsson söngstjórann þeirra kl. 17 í kirkjunni.
Vel sótt og góðar undirtektir við ágætan söng kórsins, veraldleg lög, mörg
útsett af söngstjóranum, Ingimar Jóihannsson og Kjartan Erlendsson stóðu vel
vaktina í tenórnum en þeim þótti þeir vera fullfáir að vera aðeins 2 þegar
mikið er um að vera í kirkjusöngnum heima á Krók.

Fáklæðin sín, forn og ný

fljóðin gegnum skinu

vóru svo sem engu í

öðru en sakleysinu. St.G.St.

http://bragi.arnastofnun.is/visur.php?VID=5889

 

úr friðsælum hvammi

12. maí 2012

Kyrrt og svalt á
laugardagsmorgni, kirkjukórinn á Sauðárkróki væntanlegur til Selfoss í dag,
syngur í kirkjunni kl. 17 en fyrst þurfum við að halda morgunsöng í Grænumörk
kl. 10.30 og vertu þangað velkominn síðugestur góður! Upp úr bók Friðriks
Hansen hef ég verið að skrifa ljóð hans um Gísla Ólafsson frá Eiríksstöðum
sextugan, hér kemur miðvísan:

Sé ég til baka: Sumarhaga fríða

sólfagrar myndir rísa bjarta nótt.

Í friðsælum hvömmum kvikir lækir líða

litfagrar rósir döggvast – allt er
hljótt.

Vængbreiðir svanir fljúga fram til
heiða.

Fjarlægðir bláar skáld til drauma leiða.

http://stikill.123.is/blog/2011/03/22/512519/

Hnittinn útúrsnúningur á vísu Fjallaskáldsins barst
mér að eyrum á mánud. morgni, af Rás 1, Sig. Arnarson á Ak. var að upplýsa
Jónatan Garðarsson í morgunþættinum:

Yfir kaldan eyðisand

ætla ég ið fyrsta

Nupo keypti Norðurland

nú er hægt að gista!

Vísan kom inn á Leirinn frá Hjálmari Freysteinssyni
en hann kannast þó ekki við að vera höfundur og þá það. Jói í Stapa var að
smíða í Kakalaskála í gær en nú þyrpast þangað gestir dag eftir dag, svo halda
þeir Sigurður áfram smíðinni þegar hlé verður.

Hretið, sem spáð er á morgun, hefur verið
umræðuefni á kaffistofu kennara frá því um miðja viku. Hretið nær þó tæpast til
Makedóníu þar sem þeir Jón og Guðjón hjóla þessa dagana.

 

Hið vanmetna

11. maí 2012

Mótherjum rakks bætist
liðsauki í dag, meiri hugsun, minni kappsemi segir í Bakþönkum Björns Þórs
Sigbjörnssonar í Fréttablaðinu:

BÞS segir:

Hér hefur sem sagt staðið ein
samfelld kosningabarátta frá því fljótlega eftir síðustu kosningar. Vanalega
hefur slík barátta tekið um þrjá mánuði og finnst mörgum nóg um. Þrjár vikur
væri líklega hæfilegt. En næstum fjögur ár! Þetta er náttúrulega ekki gæfulegt.
Kappsemi er mikilvæg við tilteknar aðstæður en landsstjórnin og
löggjafarsamkoman eru ekki þær aðstæður. Þar þarf annars konar eiginleika til
að ná árangri. Ígrundun, yfirvegun, samstarf. http://vefblod.visir.is/index.php?s=6057&p=131906

við undirspil Sogsins

11. maí 2012

Sé ég til baka. Silfrar máni
tinda segir Friðrik Hansen um skáldið í dalnum, Gísla Ólafsson, ritlara tekst
að ná ljóðinu fram í vefnum Braga en vísar þó þangað á þá skáldbræður

http://bragi.arnastofnun.is/ljod.php?U=f0&R=2&ID=443

Í gær söng Sig. Torfi ljóð eftir bæði
Friðrik og Gísla í Grænumörkinni við lög Péturs Sig. og Eyþórs Stefánssonar. Þar
var síðasta opna húsið fyrir sumarhlé en Gísli Magnússon kennari emeritus las
þar indælissögu ofan úr sveitum Sogsins þar sem veiðiskapur strákanna og
munntóbak og hóstamixtúra Guðm. voru sett í sviðsljósið. Góð saga sem Gísli las
skínandi vel.

http://www.isholf.is/sandholt/saga1.htm

Klukkan var að verða sex í
morgun þegar við kisi fórum út, ég til að sækja Fréttablað og Fréttatíma en
kisi til að rölta yfir götuna og kíkja yfir  grannans garð. Logn var í fyrstu en hann var
að búa sig undir smáúrkomu enda sá ég kisa þjóta yfir götuna þegar fyrstu dropa
féllu og ég var langt norður á Rauðholtinu til að koma sér aftur inn í hlýtt og
þurrt athvarf.

 


Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Sjónvarp Útvarp Fréttablaðið
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning