fara í valmynd

Keflavíkurgangan 2009 7. nóvember 2009

Fært af Ingi Rúnar undir Efnahagur. rita ummæli

Allt er í heimi hverfult. Ég sá í blaðinu í dag að séttarfélög á Suðurnesjum auglýsa Atvinnu strax! Keflavíkurgangan 2009. Sjálfur gekk ég margar Keflavíkurgöngur á árum árum gegn her og Nató. Þá voru fáir Suðurnesjamenn í göngunni (ég er brottflutttur Keflvíkingur). Og þá var oft gengið frá hliði að herstöðinni alls 45 km.

Hvað um það - málefnið er gott - að krefjast vinnu (Við heimtum meiri aukavinnu var sungið hér á árum áður). Þegar tölur Vinnumálastofnunar eru skoðaðar er mesta atvinnuleysið náttúrulega á höfuðborgarsvæðinu - 10.552 einstaklingar án vinnu, því næst koma Suðurnesin með 1644 manns og þá Norðurland eystra með 1138 manns án vinnnu. Hlutfallslega er atvinnuleysið hæst á Suðurnesjum og því er krafan háværust þar.

En þegar Kremlarlógíu er beytt til að greina málið er líklega verið að þrýsta á um byggingu álvers í Helguvík, sem á að sögn að skapa 4.000 ársverk á byggingartíma - en 600 störf í fullbyggðu álveri. En hvað með konurnar á Suðurnesjum sem eru tæplega helmingur atvinnulausra? Þær eru fremur fámennar í byggingargeiranum sem bíður eftir að hefja handa. Er þá helst verið að skapa störf fyrir karla?

Ef við skoðum íslensk fyrirtæki þá sýna nýjustu tölur Hagstofu að 95,5% þeirra eru smáfyrirtæki með færri en 20 starfsmenn. Þar eru störfin. Endurfjármögnun þeirra og að skapa þeim rekstrarskilyrði mun skila mun meiri árangri í atvinnusköpun en eitt álver. Verum þess minnug að það eru liðlega 15.000 manns án vinnu og flestir í Reykjavík og nágrenni. Álver í Helguvík mun ekki veita þeim vinnu - nema að litlu leyti. Endurfjármögnun bankanna er nú lokið og vonandi fara þeir nú að hraða endurskipulagningu fyrirtækja. Það er mörg tækifæri á Íslandi, sérstaklega í útflutningsgreinum.

Marvísleg úrræði eru einnig í boði fyrir atvinnlausa jafnt sem fyrirtæki. Eitt þeirra er skammtímaráðning í 6 mánuði, hlutfallsleg ráðning o.fl. Á þriðjudaginn mun ég ræða um reynslu annarra þjóða við að draga úr atvinnuleysi á ráðstefnunni Virkjum fjölbreyttari mannauð. Þegar hafa um 200 manns skráð sig á hana og hún fer fram á ensku.

Laun á Íslandi 6. nóvember 2009

Fært af Ingi Rúnar undir Efnahagur. rita ummæli

Þessa dagana erum við nokkrir félagar við HA að skrifa umsókn ásamt félögum í Evrópu í ESPON sjóð sem er rannsóknarsjóður á vegum Evrópusambandsins. Þar komst ég að því að laun okkar sem prófessora eru eftir hrunið 45% lægri en kollega okkar í Svíþjóð (launatengd gjöld eru vissulega hærri ytra). Alkunna er að laun í Noregi og Danmörku eru mun hærri en í Svíþjóð. Hrunið hefur því fært samanburð okkar landfræðilega. Nú getum við ekki borið okkur saman við Norðurlönd, heldur Pólland og Eystrasaltsríki. Af því má draga tvær niðurstöður: Í fyrsta lagi að samkeppnisfærni íslenskra fyrirtækja á erlendri grundu hefur vaxið mjög eftir hrunið. Í öðru lagi að lífskjörin hafa versnað mjög og munu halda áfram að versna um sinn. Dýrt verður útrásarævintýrið þegar skuldirnar verða fullgreiddar.

Meirihluti á móti ESB í könnun 5. nóvember 2009

Fært af Ingi Rúnar undir Óflokkað. 2 ummæli

Stöð 2 greinir frá því að mikill meirihluti þjóðarinnar er hlynntur aðildarviðræðum en vill ekki ganga í ESB. Það kemur ekki á óvart. ICESAVE málið á stóran þátt í því og eins hafa anstæðingar ESB aðildar haft sig mjög í frammi að undanförnu, en aðildarsinnar verið lítið áberandi. Hér er um flókið og afar mikilvægt málefni að ræða. Ég vona að við fáum að kjósa um málið að nokkrum árum liðnum þegar meiri stöðuleiki hefur færst yfir efnahagslíf og stjórnmál. Þá verður væntanlega hægt að taka yfirvegaða afstöðu þegar samningsniðurstöður liggja fyrir. Um þessar mundir er of mikil tortryggni gagnvart allt og öllu að ekki er gott að útkljá mál eins og ESB við slíkar aðstæður. Hvort sem ESB aðild verður felld eða samþykkt þá er  víst að þjóðin hefur fengið að segja hug sinn. Það er mikivægast af öllu.

Upp með húmorinn - Dave Allen 4. nóvember 2009

Fært af Ingi Rúnar undir Brandarar, Trúarbrögð. rita ummæli

Hláturinn lengir lífið. Í sorg og gleði er þörf fyrir hlátur. Dave Allen er frábær grínisti. Hér fer hann á kostum þegar hann rifjar upp fyrstu trúarreynslu sína 4 ára gamall.

CCP og ,,raunhagkerfið” 3. nóvember 2009

Fært af Ingi Rúnar undir Efnahagur. 1 ummæli fram að þessu

Þær eru áhugaverðar fréttirnar um að CCP hyggist ráða 150 starfsmenn á næstu árum. Megnið af þeim verður væntanlega ráðinn hér á landi ef mannskapur fæst. CCP er eins og flestir vita fyrirtæki sem þróað hefur Eve Online og hyggst þróa fleiri leiki. Fyrirtækið er ásamt Latabæ gott dæmi um sívaxandi svið atvinnulífs sem fellur undir upplifunariðnað -  skemmtun, menningu og afþreyingu.

Eftir hrunið hefur nokkuð verið rætt um ,,raunhagkerfið” sem á að vera andstæða við hagkerfi sem einkenndist af óefnislegum verðmætum. Hugtakið minnir mig mjög á gamla skemmtilega hugtakið ,,bjargræðisatvinnuvegir” sem var notað fyrir nokkrum áratugum um landbúnað og sjávarútveg. Í raun er um sama draum að ræða. Þeir sem nota hugtakið raunhagkerrfi eru fyrst og fremst að vísa til þess að þessar greinar ásamt iðnaði séu í raun þau sem skapi verðmæti í hagkerfinu. Og vonast til að sjávarútvegur verði aftur helsti atvinnuvegur þjóðarinnar. Þá er því stillt upp þannig að efnisleg framleiðsla standi undir þjónustunni. Það er alrangt.

Nútíma hagkerfi er samfléttað af rannsóknum, þróunarstarfi, framleiðslu og umbótastarfi. Ofan á það bætist að mennta- og heilbrigðiskerfi tryggja framleiðni vinnuaflsins. Eitt lítið dæmi þessu til stuðnings: Íslenskur sjárvarútvegur er á heimsmælikvarða vegna þess að hann notar flæðilínur frá Marel (sem þróaði upprunalega hugmynd sína í fiskvinnslu), hefur tileinkað sér framsækið markaðsstarf, styðst við nýjustu rannsóknir á vinnslu sjávarafurða og þannig má lengi telja. Þjónusta styður við framleiðsluna sem kallar á eftirspurn eftir þjónustu.

Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning