Fólk úti á landi fær 84% af launum Reykvíkinga 13. mars 2007
Fært af Ingi Rúnar undir Stjórnmál. bakvísunÞegar ég var ungur þá voru skattakóngarnir lyfsalar og aflaskipstjórar. Margir þeirra bjuggu út á landi. Nú er öldin önnur. Skattkóngar búa nær allir í Reykjavík þar sem þeir stunda fjármálaþjónustu og önnur viðskipti. Það ber líklega bestan vott um lífskjör í landinu hvað þegnar fá í laun. Því skoðaði ég þróun mála á heimsíðu Hagstofunnar varðandi laun á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni á árunum 1998-2005. Niðurstöðurnar eru sláandi. Þannig fengu karlar úti á landi 91% af launum karla (meðalatvinnutekjur í aðalstarfi) í Reykjavík og nágrenni. Árið 2005 hafði þetta hlutfall lækkað í liðlega 86%. Bilið hefur þvi aukist um fimm prósentustig á síðustu átta árum.
Ekki er staða mála betri hjá landsbyggðarkonum. Árið 1998 fengu þær aðeins 81% af launum kvenna í Reykjavík og nágrenni. Hlutfallið versnaði enn árið 2005 þegar þær fengu aðeins 79% af launum kvenna í höfðborginni.
Þegar heildartekjur (tekjur í aðal- og aukastarfi, auk dagpeninga og ökutækjastyrks) eftir landshlutum er skoðaðar versnar enn málið. Árið 2005 hafði landsbyggðarfólk 84% af heildarlaunum höfuðborgarbúa.
Þær niðurstöður sem hér hafa verið kynntar bera óræk merki að aðgerðir ríkisstjórnarinnar í byggðamálum hafi ekki gengið sem skyldi. Þetta er með öllu óástættanlegt og þessu verður að breyta. Það ætti að vera forgangsverkefni nýrrar ríkisstjórnar.
Þeir einstaklingar sem vilja kynna sér málið frekar bendi ég á slóðina: http://www.hagstofa.is/?PageID=636&src=/temp/Dialog/varval.asp?ma=VIN07003%26ti=Heildaratvinnutekjur+eftir+atvinnugreinum+og+landshlutum+1998%2D2005++++%26path=../Database/vinnumarkadur/atvinnutekjur/%26lang=3%26units=milljónir%20kr.
Ég er bloggari sem hef gaman af bloggi um stjórnmál, mannlíf, og ljósmyndir. Er á besta aldri og bý á Akureyri.
Athyglisvert og þarf að komast meira í umræðuna. Þetta er einmitt það sem hefur gerst og skiptir miklu máli þegar rætt er um byggðastefnu. Ég skora á þig að birta þetta á prenti í dagblöðum.
Sammála því þetta er mjög áhugaverður vinkill sem farið hefur hljótt.