fara í valmynd

Páskar og trúarbrögð með Eddie Izzard 23. mars 2008

Fært af Ingi Rúnar undir Brandarar. rita ummæli

Nú er páskadagur. Við sem erum á miðjum aldri eða eldri munum tímana tvenna. Eitt af því er að helgi jóla og páska minnkar ár frá ári. Þegar ég var barn var allt lokað á föstudaginn langa og skemmtanahald um páskana mjög takmarkað. En nú er öldin önnur. Þess er varla lengur að merkja að páskar séu í nánd lengur í sjónvarpi og útvarpi, nema gömlu Gufunni. Hér áður fyrr var alltaf reglan að Sjónvarpið dró upp gamlar trúarmyndir um krossfestingu og upprisu Jesú fyrir páska. Stöð 2 var með nýja útfærslu Mel Gibson á sama tema - blóða og hryllingur út um allt. Tímanna tákn eða hvað. Ekki það að ég syrgi gamla tímana mikið, enda trúlaus maður. Svo ku þetta auka á hagvöxtinn að hafa allt galopið á stórhátíðum að hætti Bandaríkjamanna.

Í tilefni dagsins set ég inn magnað myndband um trúarbrögðin og trúarhreyfingar með grínistanum og leikaranum alkunna Eddie Izzard.

Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning