fara í valmynd

Ganga á páskadag 24. mars 2008

Fært af Ingi Rúnar undir Blogg. rita ummæli

Veðrið á Norðurlandi var frábært í gær. Stilla og sól. Fjölskyldan hélt í Vaglaskóg og einnig í Kaldakinn til mágkonu minnar og fjölskyldu hennar. Við gengum góða stund í Vaglaskógi. Fnjóskadalurinn skartaði sínu fínasta eins og sést á meðfylgjandi mynd. Fengum síðan kaffi hjá mágkonunni og fórum í jeppaferð upp á fjall í nágrenninu. Páskadagurinn var hinn fínasti hjá okkur.

Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning