fara í valmynd

Lee Evans túlkar Bohemian Rhaspody 28. apríl 2008

Fært af Ingi Rúnar undir Brandarar. 1 ummæli fram að þessu

Breski grínistinn og leikarinn Lee Evans er einstakur á  sviði, alltaf á iði og hefur einstaka líkamstjáningu. Hér túlkar hann hið fræga lag Queen - Bohemian Rhaspody með sínum sérstaka hætti.

Hershöfðingi Bush

Fært af Ingi Rúnar undir Brandarar. rita ummæli

Ásrölsku háðfuglarnir í Comedy Inc. taka hér fyrir hershöfðingja Bush á fréttamannafundi. Þeir eru frábærir.

Vinnuferð í sumarbústaðinn 27. apríl 2008

Fært af Ingi Rúnar undir Blogg. rita ummæli

Var ásamt móðurfjölskyldunni í vinnuferð í sumarbústaðinn í kulda og trekki. Bústaðurinn er í Dölunum, í landi Kolsstaða. Við vorum í girðingarvinnu, klippa runna og fleira. Svakalega var kallt en hressandi að vera útivið. Síðan var borðað og skálað í góðum félagsskap um kvöldið. Í morgun var hvít jörð. Þannig að það er sannarlega bakslag í blíðuna sem var fyrir nokkrum dögum.

Gleðilegt sumar 24. apríl 2008

Fært af Ingi Rúnar undir Óflokkað. rita ummæli

Vonandi verður veðrið í dag fyrirboði um gott sumar. Frábært verður á Akureyri í dag. Búinn að fara í pottinn og sólbað. Ekki slæmt það. Kannski sumarið verði gott - þrátt fyrir að hann spái kólnandi um helgina.

Ég hata algebru 23. apríl 2008

Fært af Ingi Rúnar undir Brandarar. rita ummæli

Billy Connolly er ótrúlegur á sviði. Hér hraunar hann yfir algebru. Til hvers að læra algebru, ég á aldrei eftir að fara þangað. Sjón er sögu ríkari.

Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning