ivar 27. janúar 2009
Jæja gott fólk. Komið þið sæl og blessuð.
Þorrablótið var hin besta skemmtun eins og við var að búast. Skemmtiatriði mjög góð og var hlegið mikið.
Örn Kjartansson átti góðan leik sem Mikki jóns og Óli bæjó. Friddi frændi minn átti líka góðan leik sem Jói Hansa. Allt var vel heppnað og voru um það bil 370 gestir sem telst mjög gott í 700 manna bæjarfélagi.
Svo var stigið dans undir músík sem Stjórnin spilaði og verð ég að segja að ég hef sjaldan skemmt mér eins vel á balli. Fór varla af dansgólfinu allan tímann.
En að öðru þá heyrðist í fréttum í dag að þann 1.apríl ætti að loka pósthúsinu hér á staðnum og færa afgreiðsluna yfir í Landsbankann. Þar af leiðandi tapast hér tvö störf sem er ekki gott í okkar litla bæ.
Ekki skil ég í hverju sparnaðurinn felst nema kannski þessum tveimur starfsmönnum. Eitthvað þurfa þeir að borga Landsbankanum fyrir aðstöðu og annað. Opnunartíminn skerðist líka því bankinn er bara opinn frá 12:30 til 16:00 og á þessum tíma eiga Seyðfirðingar að nota banka og póstþjónustu. Ég tala nú ekki um þegar ferðamennirnir koma með ferjuni. Þetta er ein vitlausasta humynd sem ég hef heyrt lengi.
Eitt verð ég að segja um að ný ríkisstjórn er að myndast með Samfylkingu og Vinstri Grænum að ekki getur ástandið versnað og afhverju að leyfa þeim ekki að reyna. Sjálfstæðismenn og Samfylkingin voru greinilega komin í hár saman næstum og ekkert gekk að leysa nauðsyleg mál.
Að lokum vil ég skipa Íslandspósti á að endurskoða þessa fáránlegu humynd.
Fært undir Óflokkað | 3 ummæli »
ivar 20. janúar 2009
Jæja ekki komst ég til vinnu í dag því Fjarðarheiði er lokuð vegna ófærðar og óveðurs.
Yfir 20 metrar á sekundu í allan dag.
Vonandi kemst ég á morgun því ég held að veðrið eigi að lagast í nótt.
Annars er þorrablótið góða um helgina og er mikill spenningur farinn að gera vart við sig.
Stjórnin að spila og allt. Alvöru blót framundan semsagt.

Við heyrumst síðar.
Fært undir Óflokkað | Engin ummæli »
ivar 13. janúar 2009
Já gleðilegt ár og takk fyrir gamla gott fólk. Þá er nýtt á tekið við með blómstrandi kreppu og svoleiðis vitleysu EN ég ætla nú ekki að tala um það mikið.
En annars frá því síðast er það að frétta af mér að ég átti frábær jól með allri fjölskylduni og var étið, étið og étið aðallega og legið í leti, eins og það á að vera er það ekki.
Á milli hátíða var svo unnið smá og svo tók flugeldasalan við og var þar nóg að gera, sem er gott.
Gamlársdagur frekar strembinn eins og vanalega hjá mér. Flugeldasalan frá hádegi til 17:00 eftir það þarf að fara að undirbúa sýninguna. Kl:19:00 brunað heim að gúffa kvöldmatnum í sig. 19:30 brunað út aftur og gera sýninguna klára þar sem hún á að vera. Ca 20:50 Skjóta upp sýninguni. 21:05 Ganga frá eftir sýninguna og koma búnaði á sinn stað aftur. 22:15 Brunað heim í hendingskasti í sturtu og í fínu fötin, raka sig og allt.
22:30 Horfa á skaupið með einn öl ahhhhhhhhhhh. 23:20 borða kræsingar sem elskuleg móðir min hefur borið fram. Annann öl á eftir ahhhhhhhhhhh. 00:00 Í gallann og út að skjóta flugeldum jeiiiiiiiii(var með helling þetta árið) Skrítið að vera ekki kominn með nóg af flugeldum eftir sölu, sýningu og fleira.
Svo kl:00:40 ca var arkað í teiti há Hildi Karen mað tilheyrandi kræsingum að vanda, þar var líka stuð að vanda. Eftir gott teiti var haldið af stað í Herðubreið í áramótagleði.
Já gott fólk nóg að gera á gamlárs.
En framundan er líka mikil gleði. Jább þorrablótið er 24.jan og ætlar minns sko að mæta enda alltaf gaman á blóti á Seyðis. Ég hvet alla að koma á blót sérstaklega Klemens hehe.
Segjum það gott í bili
Ívar Bót
Fært undir Óflokkað | 2 ummæli »
ivar 23. desember 2008
Jæja nú eru jólin alveg að koma. Fjölskyldan öll saman komin og minns búinn að gera næstum allt. Eina sem eftir er er að bera út jólakortin, við Klemens tökum alltaf jólakortarúnt á aðfangadag og kíkjum í kaffi hér og þar.
Aldrei hefur Ívar Björnsson verið búinn að öllu á Þorláksmessu en einhverntíma verður allt fyrst. Vanalega er ég að skjótast fyrir hádegi upp í Egilsstaði að kaupa síðustu jólagjöfina.
Í kvöld var svo snæddur saltfiskur og siginn fiskur og var það hin besta máltíð. Skatan ratar ekki inn á mitt heimili sem betur fer enda ekki mannamatur að mínu mati.
Jæja ætla ekki að hafa þetta mikið lengra í bili.
Ég vil senda þeim sem þetta blogg lesa mínar bestu óskir um gleðileg jól og megi birta og friður vera með ykkur um jólahátíða sem og alla tíð.
Jólakveðja Ívar
Fært undir Óflokkað | 1 ummæli »
ivar 15. desember 2008
Jæja komið þið sæl og blessuð. Var að koma inn frá því að steikja laufabrauðið, 95 kökur takk fyrir.
Á mínu heimili eru engin jól nema laufabrauðið sé gert. Gömul laufabrauðsuppskrift frá ömmu í Bót og búið að baka þetta í familíuni í fleiri tugi ára.
Búið er að setja seríur og fleira skraut upp á árstígnum og skartar húsið nú sínu fegursta.
Gamla búin að baka ótal sortir af kökum eins og henni er von og vísa.
En jólagjafainnkaupin hjá mér ganga náttúrulega ekki neitt frekar en venjulega, er sá allra minnsti búðamaður sem finnst á austan verðu landinu og þó víðar væri leitað. En þetta reddast nú alltaf.
Verð líka að fara að skrifa þessi blessuðu jólakort, ekki byrjaður á því heldur en það reddast líka.
En að öðru. Ég fór á jólahlaðborð á Hótel Ölduni á laugardaginn og át yfir mig, úfffff hvað var góður matur. Þar var grafinn og reyktur lax, grafið nautakjöt, gæsapaté ofl í forrétt. Í aðalrétt var hreindýrakjöt, kalkúnn, purusteik og hangikjet. Og til að sprengja mann alveg var frönsk súkkulaðikaka, risalamande og eplapæ. Já liggur við að ég sé saddur ennþá.
En allavega þá er maður kominn í jólagírinn og verður gaman að fá alla fjölskylduna saman í fjörðinn um jól.
Fá vini og kunningja eins og t.d Klemens sem ég hef ekki hitt allt of lengi.
Sá fjórði, Þvörusleikir
var fjarskalega mjór
Og ósköp var hann glaður
þegar eldabuskan fór
þá þaut hann eins og elding
og þvöruna greip
og hélt með báðum höndum
því hún var stundum sleip
Jæja þangað til næst, bless og bæ
Ívar Jólasveinn
Fært undir Óflokkað | 4 ummæli »
ivar 3. desember 2008

Jæja ég sit og reyni eitthvað að skrifa á meðan díselstöðvar reyna að búa til rafmagn fyrir tölvuna. Einhverjir snillingar náðu að grafa í sundur háspennustreng heyrði ég og er aðeins rafmagn á hálfum bænum því vélarnar anna ekki mikið meiru.
Annars að frétta er allt fínt bara. Þokkalega fært yfir heiðina og ágætis veður.
Hef verið að hlusta á útvarp eins og gengur og gerist og í dag heyrði ég jólalag Baggalúts, þá er ég kominn í jólastuð. Þeir eru algjörir snillingar í textum og velja góð lög við. Í textanum er skotið á þá sem komu okkur íslendingum á hausinn, og er það bara fínt.
Stebbi Hilmars að gefa út jólaplötu og er hún plata vikunar á rás 2. Hef heyrt aðeins af henni og lofar hún góðu.
Ekki má gleyma Geir Ólafs sem gaf Færeyingum jólalag fyrir að hafa lánað okkur peninga, einn snillingurinn í viðbót. Skondið að heyra hann syngja á færeysku eða að reyna.
Fjörðurinn fagri er að komast í jólabúning og allir að keppast við að gera sem fallegast hjá sér í svartasta skammdeginu, reyna að lýsa upp skammdegið á þessum síðustu og verstu, ekki veitir nú af.
En jæja þetta er ágætt í bili held ég, maður má ekki alveg missa sig í blogginu.
Þangað til næst
Ívar Bót
Fært undir Óflokkað | 2 ummæli »
ivar 2. desember 2008
Jæja gott fólk, ég ákvað að breyta um blog og ákvað að prufa vísi. Þetta central ekki alveg að virka nógu vel.
Veit ekki hvort ég verð eitthvað duglegri að bloga hér en hver veit.
Eftir að þetta Facebook kom til sögunar þá hef ég minnkað blogið en við sjáum til.
Annars fór ég á jólahlaðborð um síðustu helgi og var það mjög vel heppnað hjá Eyþóri og hans fólki.
Góður matur í alla staði og skemmtilegur dansleikur á eftir og tjúttaði ég fram á nótt.
Og á síðasta fimmtudag komst ég yfir heiðina í vinnu en ekki komst ég til baka og var það fyrsta nóttin sem ég þurfti að dvelja á héraði þennan veturinn, búið að vera hálf leiðinlegt veður á heiðini í um viku.
Jæja nóg í bili. Vonandi nenni ég eitthvað að bloga.
Þangað til Bless
Fært undir Óflokkað | 2 ummæli »