AFTAKA ORG. Athyglisverð síða íslenskra anarkista.

Rakst á þessa síður þegar ég leitaði að Hótel Borg á Gúggli. Þarna sést hugmyndagrundvöllur og skoðanaskipti anarkista hér á landi.
http://aftaka.org/2008/12/22/engin-bylting-nema-anarkisk-bylting/#comments
Hérna er Manifesto, stefnuskrá þeirra sem standa að síðunni.
Við höfnum hugmyndinni um hlutleysi! Það er ekki okkar að verja eða standa vörð um skoðanir annarra. Við segjum það sem við viljum, tillitslaust og án umburðarlyndis. Við látum ekkert í friði því það ríkir enginn friður. Við höfnum og stígum á öll grunngildi sem ættleidd eru úr dönsku þingræði, amerískri frjálshyggju og tvöþúsund ára krossfestingu. Við skrifum og sköpum eftir eigin gildum, reglum, siðferði og samvisku. Við afhjúpum samfélagið og bendum á að það er ekki klætt í keisarans föt heldur stendur blygðunarlaust á tittlingi lyga og óréttlætis.
Flettið og skoðið, forvitnilegt að sjá hugmyndir þessa hóps sem alls staðar hefur borið mest á í mótmælum liðinna daga. Gert margt frumlegt og skemmtilegt en annað ansi vafasamt. Ýmislegt er skiljanlegt eftir að hafa gluggað í þessari síðu. Segir sá sem ekkert veit.

Karl, fjölfræðingur með áhuga á þjóðmálum, sagnfræði, bókmenntum og tónlist.
blommi ritaði,
5. janúar 2009 @
Stjórnleysingjar eru nú einu sinni svo að hafa bara eina stefnu sem er engar reglur. Hvernig þjóðfélag yrði til úr svoleiðis vitleisu, þar sem frumskógarlögmálið sé í fullu gildi.
Erling Ólafsson ritaði,
5. janúar 2009 @
Blommi þetta er kannski ekki svo einfalt, ég las stjórnmálafræði í gamla daga, það eru til margar stefnur í anarkisma, sumar mjög skipulagðar.
blommi ritaði,
5. janúar 2009 @
ok. ég verð að lesa mér betur til.
vilhjálmur ritaði,
5. janúar 2009 @
Réttlæti verður að vera en Krossfesting á mönnum er til að mynda allavega 5000 ára gömul Anarkistar eru yfileitt vel skipulagðir og eins og Erling benti á.Anarkistar eru ekki stjórnleysigjar eru ekki til innan raða þeirra,Anarkistar hafa forustu.