feb
7
Kristrún H: Stekkur um borð
7. febrúar 2010 kl. 16.27 |
en lendir hún ekki milli skips og bryggju?
Gríðarathygli virðist það vekja að Samfylkingarmaður tjái sig á skilmerkilegan hátt um mál málanna. Sem þeir hafa samt gert oft á Alþingi.
En mér finnst merkilegast hversu hún segir fátt sem ekki hefur komið fram áður. Og jafnvel í sjónvarpinu notar hún vafasöm sjónarmið, . Hún sagði að samningur þessi hefði verið eingöngu á könnu eins flokks og ráðuneytis. Hverjir sátu í nefndinni? Fulltrúar utanríkisráðuneytis, viðskiptaráðuneytis, forsætisráðuneytis, Seðlabankans auk formanns og fulltrúa fjármálaráðuneytis. Svavar Gestsson sendiherra er formaður nefndarinnar sem sér um samninga vegna Icesave-skuldbindinga. Með honum í þeirri nefnd eru: Áslaug Árnadóttir, Indriði Þorláksson, Martin Eyjólfsson, Páll Þórhallsson og Sturla Pálsson. Þannig að allir aðilar komu að þessu máli sem eðlilegt er í samningum við önnur ríki. Það er ríkisstjórnin og stjórnsýslan sem á að sjá um slíka samninga og þingsins að fjalla um þá sem snýr að meiri háttar skuldbindingum. Á þingið að taka þátt í samningum um lán sem þarf að taka vegna hruns Seðlabankans???
Er það ekki á ábyrgð annarra ráðuneyta að taka þátt á fullu í undirbúningi þessa máls. Það er ekki bara hægt að segja VG hataði ESB. Málið er ekki svo einfalt. Allir sem hafa fylgst með þessu hafa séð að Steingrímur hefur beygt sig ansi mikið til móts við Samfylkinguna. Er þetta ekki kattarþvottur Kristrúnar einnar eða ákveðins hóps Samfylkingar til að stökkva um borð þar sem almenningsálitið hefur ekki viljað fylgja með þeim í þjóðaratkvæðagreiðslu um svívirðilega erfitt mál. Að halda því fram að allt sé Svavari Gestssyni og Indriða að kenna. Þegar samið var buðust ekki betri kostir. Andrúmsloftið hefur breyst síðan, kreppunni er að linna víðast hvar, og yfirvöld eru til umræðu viða um heims sem ekki var í mái júní í fyrra.
Hún segir fátt sem þeir sem hafa goldið varhug við samningnum innan og utan þings. Innan- og utanlands. Hún skrifar þessa grein líka þegar flest allt sem hún talar um er í umræðu hjá stjórn og stjórnarandstöðu. Seinustu vikurnar hafa þessi mál verið rædd.
Það er eitt atriði sem er umhugsunarvert og sem fram hefur komið oft áður. Það er innkoma ESB að þessu máli sem skrifað var undir í desember. Ég hef ekki heyrt neina skýringu á því hingað til. En líklega er það andstaða Breta sem hún talar um en án þess að hún hafi nokkur skjalfest i höndum, VG var á móti aðkomu ESB, en það dugir ekki. Hvers vegna er hægt að útskýra þögn allra ráðamanna í ESB allt árið 2009 og 2010. Enginn tjáir sig opinberlega um þetta mál. Býr ekki frekar almenn vantrú á fjármálum okkar sem gerði það að verkum að enginn hefur viljað snerta á okkur.
Það er gott að Kristrún Heimisdóttir hafi skoðanir. En gerir það eitthvað auðveldar að ná breiðu samkomulagi þegar hún kemur með ansi miklar fullyrðingar. Sem geta hleypt illu blóði í ýmsa.
Ummæli
1 ummæli fram að þessu
Karl, fjölfræðingur með áhuga á þjóðmálum, sagnfræði, bókmenntum og tónlist.
Ég varpa fram kenningu.
Þær stöllur Kristrún og Ingibjörg Sólrún hafa verið að skoða skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis og meta hvernig best sé að haga andmælum. Skellurinn sem Ingibjörg fær lendir auðvitað líka á hægri hönd hennar Kristrúnu Heimisdóttur. Greinin og viðtalið hjá Agli er liður í málsvörn þeirra stallsystra. Þær meta það svo að vörnin fari að miklu leit fram í fjölmiðlum.
Þess utan eru kosningar fram undan og nauðsynlegt fyrir Samfylkinguna að draga ESB-fleytuna aftur á flot en fleytan sú hefur marað í kafi eftir að Barroso krafðist þess að Íslendingar gengju til samninga við Breta og Hollendinga.