Prófkjör: Eitthvað nýtt? Lifir spillingin?

7. febrúar 2010 kl. 12.22 |

Prófkjörin í gær:  Fáar nýjar fréttir, og þó. Töluverð átök milli yngi og eldri kynslóðar í VG í Reykjavík. 

Og nýi tíminn og kona sigraði, Sóley Tómasdóttir, sem hefur verið vaxandi seinasta kjörtímabilið.  Sumir eru sárir.  En þannig eru prófkjör, þrír nýir komust á listann,  Líf, Elín og Davíð.   Virkar sterkur listi á mig.  En maður veit aldrei.  Maður heyrir að margir eru þreyttir á pólitíkinni, sérstaklega sveitarstjórnarmálum.  Enda flest eftir bókinni, 4 karlar í Garðabæ í efstu sætum, Forystumanninum í xD til margra ára sparkað á Álftanesi, eins og vera bera, hóf hann ekki bruðlið og eyðslunar þar?    

Og er ekki xD í Kópavogi næstu helgi?   Og Gunnar B.  maðurinn sem er undir smásjá ákæruvaldsins í efsta sætinu.  Það verður gaman að sjá hvort eitthvað hafi breyst.  Ég efast um það.  Spillingin lifir góðu lífi. 


Ummæli

Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning