Jónína B. sótti um stöðu forstjóra  Útlendingaeftirlitsins. 

Voða fyndið finnst sumum.  Mér finnst það svo sem ekkert sérstakt.

Það er fynidð af því að tengdadóttir henna verðandi fékk forgang að ríkisborgararétti hér um árið.

Ég er nú svo sem nokkurn veginn viss að Jónína hefur ekki labbað um og rætt við alla aðila um þetta mál til að tryggja stelpunni ríkisborgararétt.  En Jónína til heyrir yfirstéttinni og út á það fær fólk ýmislegt sem við hin fáum ekki.  Hún var þingmaður, ráðherra, í innsta koppi Framsóknarflokksins.  Út á það fékk maður ýmsan greiða (jafnvel án þess að nefna það).  En í sambandi við þetta mál henna getur maður ekkert vitað.  Kannski var hún á útopnu í símanum og á göngum Alþingishússins.  En ég veit bara ekkert um það.  Frekar en þú lesandi góður. 

En nú sækir hún um stöðu forstjóra Útlendingastofnunar.   Og ef eflaust ekkert illa að því komin.  Hér eru starfsframi hennar samkvæmi vef Alþingis:

 Skrifstofustjóri Lögmannafélags Íslands 1978-1981. Fulltrúi hjá bæjarfógeta Hafnarfjarðar, Garðabæjar og Seltjarnarness og sýslumannsins í Kjósarsýslu 1981. Fulltrúi hjá yfirborgarfógeta Reykjavíkur 1982 og hjá bæjarfógeta Ísafjarðar og sýslumanni Ísafjarðarsýslu 1982-1984. Fulltrúi á Lögfræðiskrifstofu Páls Arnórs Pálssonar hrl. og Stefáns Pálssonar hrl. 1984-1985. Hefur rekið Lögfræðistofuna sf. síðan 1985 ásamt eiginmanni sínum Pétri Þór Sigurðssyni. Skip. 15. júní 2006 umhverfisráðherra og jafnframt samstarfsráðherra Norðurlanda, lausn 18. maí 2007 en gegndi störfum til 24. maí.
      Formaður Heimilis og skóla, landssamtaka foreldra 1996-2004. Formaður nefndar ríkisstjórnarinnar um aðgerðir í fíkniefnamálum 1998-1999. Í stjórn Landssíma Íslands hf. 1998-2002. Formaður FKA, Félags kvenna í atvinnurekstri, 1999-2001. Formaður verkefnisstjórnar um heilsufar kvenna 2001-2006. Formaður nefndar um endurskilgreiningu verksviða LSH og FSA frá 2003-2006. Í nefnd um Evrópumál frá 2004. Í stjórnarskrárnefnd frá 2005.

      Alþm. Reykv. 2000-2003, alþm. Reykv. s. 2003-2007 (Framsfl.).
      Umhverfisráðherra og samstarfsráðherra Norðurlanda 2006-2007.
      2. varaforseti Alþingis 2003-2006.
  

 En það eru svo margir aðir sem sækja um þetta.  Sem fá ekki þessa auglýsingu.  Og lítil umræða um.

Svo spurningin hvort þau eigi sjens. 

Ég efast um það.


Ummæli

Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning