Jónas H. 3. janúar 2010
- I moved to London. Late december 2008 the Foreign Ministry offered me the half chance of becoming an intern again, this time around in London. I accepted on the 6th of January 2009 and on the 12th of January we arrived at Stansted Airport.
- I bought a keyboard and an external soundcard. Having a keyboard is amazing. Wonder why I didn’t do it before. And the main reason I got the keyboard was so I could start preparing to perform live! Iceland Airwaves anyone?
- I went to Greece and Sicily. In Sicily people aren’t Italian – they are Sicilian. Beautiful scenery, incredible place. And in Greece we stayed in Athens. Again, amazing. Aris took Laura & I around and showed us Greek hospitality when we were invited for Sunday lunch with his family. Fantastic food and great people. And the history…
- I got a job. Late this year the Foreign Ministry once again offered me a job. This was the fourth time and now the offer was a permanent position. I will start in Iceland and will later have to rotate between embassies – as a proper diplomat.
- I recorded my music in a professional studio. I met an Icelandic guy studying sound engineering here in London and he offered to record me. And very soon I will use those recordings to make my very first album, which I will then send to record companies and radio stations. You can listen here -> http://www.reverbnation.com/c./poni/7618032
- I went snowboarding in the Dolomites. I went with Laura to Italy for Christmas and on our last day there, we went to Passo Rolle in the Italian Alps and went snowboarding. It was the first time in nine years and only my fifth time ever. My ass froze, my arms almost fell off and my legs were weak for days… what a day it was!
- I found my new favourite book. It is by Norman Lewis and is called Naples ‘44. Mr Lewis was an intelligence officer in World War II Naples. It is basically excerpts from his diary. Reality like you never imagined. A must read.
- I made new friends. And those friends made London a great place to be. I often say that places are the people you have around you. And thanks to the many friends I now have, London has started to feel like home.
- I saw the ‘Last Supper’ by Leonardo da Vinci. And I must say, all those conspiracy theories must be true. Simply because it isn’t John the Babtist who is next to Jesus – it is actually Mary Magdalene. Without any doubt.
- I went to my first Liverpool game at Anfield. It was great. Stevie G was there. Carra was there. I was there. Fantastic experience and almost everything I had hoped for. It was unreal. I will go again.
Fært undir Óflokkað | Engin ummæli »
Jónas H. 7. september 2009
ég er hér um bil hættur að nota þessa síðu. allavega á meðan ég er í bretlandi. hérna nota ég facebook og svo twitter og tek myndir á símann sem ég síðan sendi þangað. status update-in eru því bloggin mín.
Fært undir Óflokkað | Engin ummæli »
Jónas H. 3. júlí 2009
Það hefur verið hitabylgja hérna að undanförnu. Hitinn hefur verið að fara í 33-34 stig á daginn og hangið í rúmlega 20 stigum um hánótt. Það væri frábært ef ég ætti hörjakkaföt, en ég á þau ekki. Það væri frábært ef ég mætti vera í stuttbuxum í vinnunni, en ég má það ekki. Það væri stórkostlegt ef það væri ekki of heitt í íbúðinni hjá mér, en það er það. Það verður samt að viðurkennast að þetta veður er stórkostlegt fyrir lautarferð. Við fórum einmitt í eina slíka á miðvikudagskvöldið í garði rétt hjá húsinu okkar. Við dreyptum á ísköldum guðaveigum og böðuðum okkur í kvöldsólinni. Yndislegt.
_____________
We have had a heatwave here recently. Temperatures have been 33-34 degrees during the daytime and around 20 during the nighttime. It would be great if I had linen suits, which I don’t. It would be great if I could wear shorts to work, but it’s not allowed. It would be fantastic if the apartment wasn’t too warm, but it is. But I do have to admit, that this weather is perfect for picnics. And we had one the other night. Walked to a park close to our house, sat down, enjoyed a nice cool beverage and basked in the evening sun. Fantastic.
Fært undir Mannlegt | Engin ummæli »
Jónas H. 29. júní 2009
Núna er liðinn mánuður síðan ég skrifaði hérna síðast. Ég hef haft þónokkuð að gera. Ég var einn heima í rúma viku. Skrapp síðan til Ítalíu, fór þar í brúðkaup, lá á ströndinni í Lídó og labbaði svo um Feneyjar. Ég fór í grillveislu í suðausturhluta Lundúna og grillaði þar í monsúnrigningu, hagléli og vindi - og 25 stiga hita. Ég hef verið að gera armbeygjur, magaæfingar og ýmislegt fleira á morgnanna og meira segja farið út að hlaupa annað slagið. Svo vann ég afsláttarkort sem gildir á 800 veitingastöðum hérna í Lundúnum - 50% af öllum mat - hreint ekki leiðinlegt! Og þá tókst mér loksins að gera skemmtilegt lag.
______________
Its been a month since I last wrote on here. Lets recap quickly. I was home alone for a week. Then I went to Italy, attended a wedding, sunbathed at Lido and strolled around Venice. I went to a bbq in Southeast London, bbq-ing in torrential rain, hailstorm and wind - and 25 degrees. I have been doing pushups, situps and squats in the mornings recently and sometimes I even go out running. And then I won a discount card, giving 50% discount in around 800 restaurants in London - not bad! And finally, I managed to make a fun song.
Fært undir Óflokkað | Engin ummæli »
Jónas H. 28. maí 2009
Ég fékk símtal í morgun þar sem ég var spurður hvort að þetta væri í skandinavíska sendiráðinu. Ég sagði nei. Þá spurði hún hvort það væri ekki skandinavískt sendiráð í bænum. Ég sagði að það væru nokkur skandinavísk sendiráð í Lundúnum - taldi upp Svíþjóð, Danmörk, Noreg, Ísland, Finnland - og sagðist geta sagt henni númerin hjá þeim… þá kom hik á stúlkuna. Að lokum sagði hún að hún vildi nefnilega gifta sig í Skandinavíu og þyrfti að vita hversu lengi hún þyrfti að vera í landinu eftir að hún hefði gift sig þar. Ég spurði í hvaða skandinavíska landi hún hyggðist gifta sig og taldi aftur upp löndin. Aftur kom hik á stúlkuna en að lokum sagðist hún vilja gifta sig í Noregi. Ég gaf henni því næst upp símanúmerið hjá norska sendiráðinu í Lundúnum. Stúlkan þakkaði þá kurteislega fyrir sig og lagði á.
_________
This morning I answered a phone call at the embassy. The caller, a young woman, asked if this was the Scandinavian embassy. I said no. Then she asked if there was no Scandinavian embassy in London. I answered that there were a few in London – I counted Sweden, Norway, Denmark, Iceland and even Finland – and told the girl I could give her the phone numbers at the aforementioned embassies. She hesitated… but eventually she made up her mind and told me she wanted to get married in Scandinavia and was wondering how long she would need to stay in the country after getting married there. I asked in which Scandinavian country she wanted to get married in and again counted the countries. Again, she hesitated but finally said she wanted to get married in Norway. I then told her the phone number at the Norwegian embassy; thanked me, and hung up.
Fært undir Óflokkað | 3 ummæli »
Jónas H. 26. maí 2009
Tomorrow a new working week will begin! Four days! Way too long - how is one to work for four days after being on holiday for five days? I think, after every long holiday, people should be eased into work again. Work Monday, Tuesday off, work Wednesday & Thursday and then Friday off - long weekend again. That would be perfect. Now I just need to find an understanding employer… something like a law firm maybe.
——–
Á morgun byrjar fjögurra daga vinnuvika! Allt of langt hreinlega - hvernig á maður að geta unnið í fjóra daga, strax eftir fimm daga frí? Mér finnst, að þegar maður snýr til baka úr löngu fríi, ætti fyrirtækið að slaka manni aftur i vinnuna. Vinna á mánudegi, frí á þriðjudegi, vinna á miðvikudegi og fimmtudegi og svo frí á föstudegi - löng helgi aftur. Það yrði frábært. Núna er bara að finna einhvern vinnuveitanda sem er tilbúinn til þess að fallast á þessar kröfur mínar… lögmannastofur eru örugglega líklegar.
Fært undir Óflokkað | Engin ummæli »
Jónas H. 23. maí 2009
Today I went to watch a rugby tournament. It was great fun - never seen a rugby game before. I think rugby is generally considered a masculine thing to do - at least crazy Australians and Brittons believe so. But the amazing thing about this rugby tournament I went to see today was that every player was gay. Yes, gay. That did however in no way prevent horrible tackles, bad injuries, threatening behaviour and foul language. The main difference was perhaps that in between games I saw a small group of guys practicing the dance routine from Beoncey’s song ‘Single Ladies’ - not sure you would see that at other rugby tournaments. And Laura even got it on video - so soon, you might be able to see it here
____
Í dag fór ég á rúgbímót. Það var stórgaman verð ég að segja - aldrei farið á rúgbíleik áður. Rúgbí er almennt það karlmannlegasta í heimi - brjálaðir Ástralir og Bretar þykja karlmannlegir ef þeir spila rúgbí. En það merkilega var, að allir sem voru að keppa á mótinu, voru hommar. Það kom þó ekkert í veg fyrir stórhættulegar tæklingar, töluverð meiðsl á mönnum, hótanir um líkamsmeiðingar, blótsyrði og fleira. Helsti munurinn var kannski að eftir leik þá sá ég nokkra leikmenn vera að æfa ‘Single Girls’ dansinn sem Beoncey dansar í myndbandinu við samnefnt lag. Á það reyndar á vídeói og það mun eflaust koma hingað á næstunni - bíðið spennt!
Fært undir Óflokkað | Engin ummæli »
Jónas H. 22. maí 2009
Mikið er gott að vita að fjármál Íslands eru í góðum höndum. Fjármálaráðherra virðist vera með þetta allt saman á hreinu. Til vitnis um það er hægt að benda á þennan bút úr viðtali við hann, sem birtist á Vísi, og fjallar um hvað fjármálaráðherra ræddi við sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, sem er hér á landi um þessar stundir.
“Aðspurður um hvort stýrivextir hefðu komið til tals sagði Steingrímur svo vera „Að sjálfsögðu ræddum við þá. Ég fór bara yfir þessi almennu rök hversu mikilvægt það sé fyrir okkur heimili, fyrirtæki bankanna að við getum haldið áfram vaxtalækkunarferli. það er auðvelt að færa mörg gild rök fyrir því að við þurfum bráðnauðsynlega á því að halda að vextirnir haldi áfram að lækka,” segir Steingrímur.”
Já já já. Fjármálaráðherra fór yfir ’almennu’ rökin fyrir vaxtalækkunum. Gott að vita það er farið ‘almennilega’ í þetta mál.
Sæll.
Ég hefði getað farið yfir ‘almennu’ rökin.
Fært undir Alþjóðamál | Engin ummæli »
Jónas H. 20. maí 2009
Úti í Aþenu sá ég þarlenda karlmenn (gríðarlega ljótir allir) labba um með svona lítið talnaband, er kallast ‘Kombolói‘ eða áhyggjuband. Þeir héldu á því og voru í sífellu að leika sér með það - nudda kúlurnar (á áhyggjubandinu, ekki hinar), telja þær og sveifla þessu um og svona. Ég varð því vitanlega að fá mér slíkt, enda mikill glingurmaður. Undir lok ferðarinnar var það jafnvel orðið enn mikilvægara að fá sér svona þar sem ég var farinn að hafa áhyggjur af því að finna ekki áhyggjuband! En á endanum fann ég gott áhyggjuband og áhyggjurnar hurfu þá eins og dögg fyrir sólu!
Mér finnst þó ennþá merkilegt að hafa haft áhyggjur yfir því að hafa ekki eitthvað sem losaði mig við áhyggjur. Sérstaklega þar sem ég hef ekki oft áhyggjur af hlutunum. Ætti ég kannsi að hafa áhyggjur af þessu? Best að fara að nudda áhyggjukúlurnar mínar…
Fært undir Óflokkað | Engin ummæli »
Jónas H. 19. maí 2009
Fyrir utan kalda veðrið, sem hefur elt mig á röndum undanfarin ár, þá hefur gengið ekki beint verið hliðstætt eftir að ég fór að starfa fyrir utanríkisráðuneytið og dvelja í sendiráðum útum hvippinn og hvappinn. Kíkjum á grafið af gengi breska pundsins, tekið af vef Kaupþings núna í morgun, því til stuðnings. Í morgun er það einmitt 197 krónur, tæpar.
Á þessu má sjá að gengið hefur ekki beint verið mér hliðstætt. Þá hefur veðrið líka verið mér óhagstætt. Hvað næst? Fylgist spennt með á morgun!
Fært undir Óflokkað | Engin ummæli »