LESUM NÚ: Öll tímamóta-baráttugrein Evu Joly á netinu! – og um ásælni EB við Ísland

Nú geta allir lesið þau opinberandi skrif sem eru kveikja byltingar í áhrifum sínum á viðhorf manna. Le Monde og Daily Telegraph* birtu hana í gær, einnig Aftenposten, helzta blað Noregs, og þess er að vænta, að greinin birtist einnig í sænskum, dönskum og finnskum blöðum – sem og bandarískum, enda er fyrir löngu kominn tími til, að Bandaríkjamenn átti sig á því, hve illa er komið fyrir Íslandi aðeins fáeinum misserum eftir brotför varnarliðs þeirra, þegar óskammfeilinn utanríkisráðherra Ísland hefur gegn stjórnarskrárákvæðum sótt um inngöngu landsins evrópskt stórveldi sem hefur það á stefnuskránni að gerast eitt sambandaríki** – stórveldi sem hefur jafnframt fundið sárlega til þess (ekki sízt nú, eftir fullveldisyfirlýsingu Grænlands), að það á engan aðgang að Norðurskautssvæðinu, þar sem er að finna stóran hluta af ónýttum olíulindum heims, auk þess sem þar er að finna aðrar auðlindir, beztu fiskistofna Evrópu (við Grænland, Ísland, Noreg og í Barentshafi) málma, gas og (á Grænlandi) demanta.

  • Um þetta mál fjallaði einmitt þýzkur sérfræðingur í utanríkisstefnu Evrópubandalagsins hjá Stiftung Wissenschaft und Politik í Berlín, sem var í viðtali í fréttum Sjónvarps á nýliðnu kvöldi, Andreas Maurer (sjá hér Sjónvarpsfréttina í upptöku: Ísland opnar ESB leið að Norðurheimskautinu). Hann lagði þar á það megináherzlu, að með því að fá Ísland mundi Evrópubandalagið öðlast aðgang að norðurskautssvæðinu og “það eigi Ísland að notfæra sér í aðildarsamningum”, enda verði þetta fyrir bandalagið “hlið að norðurskautinu”, sem bandalagið sé að missa með fullveldi Grænlands. [E.t.v. fjalla ég nánar um þetta þegar líður fram á þennan sunnudag, jvj.]
  • En svo gerist það merkilega, að þegar leitað er þessarar fréttar í textaformi á vef Rúv, þá finnst hún ekki, heldur aðeins gerólík frétt [sjá hér***] með allt öðrum áherzlum, tilsniðnum (að séð verður) fyrir heppilega PR-mennsku (kynningar- og nánast auglýsingamennsku) til að fegra ímynd Evrópubandalagsins og “jákvæði” þess í garð Íslendinga. Fréttin sú hefur, endurtek ég, gerólíkan svip þegar borin er saman við sjálft Sjónvarpsviðtalið!
  • INNSKOT UM RÚV:  Er þetta það, sem “vænta” má af fréttamönnum Rúvsins, nú þegar “aðildarumsóknarfrlið” er byrjað á fullu? Verða fluttar ekkifréttir á Ríkisútvarpinu á fullu? Og er ekki kominn tími til að taka aftur með tveimur hrútshornum á þessu fyrirbæri, Rúvinu, sem þessa dagana er verið að innheimta grimmt nefskatt til af sérhverjum 18 ára og eldri til að hafa upp í 3,7 milljarða króna sóun þessarar stofnunar yfir árið (700 milljörðum meira 2009 en 2008!!!). Ég á hér í fórum mínum gamlar ádeilugreinar um sukksemi Rúvsins, þar sem meðalstarfsmaðurinn reyndist vera með vel yfir hálfa milljón króna í mánaðarlaun! Hristi brátt rykið af þeim skrifum!
  • Vissulega sást það í Sjónvarps-viðtalinu, að þessi Andreas Maurer er EB-maður og var þar (einkum undir lokin) með kænskulegar, freistandi blekkingar eins og þær, að “við aðild” fengi Ísland neitunarvald í bandalaginu, þó að vitað sé, að það stefnir að því að afnema neitunarvald einstakra ríkja í flestum meginmálum!** Ennfremur hélt hann þeim áróðri fram, að við hefðum þegar misst fullveldi með EES-samningnum og lét eins og það versnaði varla úr því, þegar staðreyndin er hins vegar sú að 17,2% af allri löggjöf okkar 1993–2005 var lög Alþingis þar sem EES-lagaverk var beinlínis tekið inn (+ 4,5% óbeint), á meðan hins vegar Þjóðverjar fá rúmlega 80% af lögum sínum beint frá Evrópubandalaginu! 
  • En einmitt af því að Maurer þessi (sem er greinilega langtum síðri Íslandsvinur en landi hans dr. Konrad Maurer prófessor, samherji og vinur Jóns forseta Sigurðssonar), þá er það þeim mun eftirtektarverðara, hvernig hann kemur upp um hug Evrópubandalagsins varðandi hungur þess í norðurhjarann með öllum sínum auðlindum, auk aðgengis að siglingaleiðum sem eru að opnast norður fyrir Rússland, Síberíu, Grænland og Alaska, ásamt með stórauknu hernaðarmikilvægi svæðisins (eins og ég hef fjallað um í greinum hér áður, síðast mjög nýlega).
  • En ég þakka Morgunblaðinu þessa birtingu greinar Evu Joly í heild, ekki aðeins á vefsíðum blaðsins sem áskrifendur einir hafa aðgang að, heldur á Mbl.is fyrir alla að sjá og lesa. Greinin er hér: Ísland – það sem læra má af efnahagshruninu, og hér eru tvær vefgreinar mínar um hana (fyrir utan eina á Vísisblogginu hér fyrir neðan):
    • * Ekki finn ég greinina ennþá á vefsíðum The Daily Telegraph; hins vegar er þar að finna An interview with Eva Joly frá 12. júní sl. um það, að hún hafði verið ráðin sérstakur ráðgjafi í okkar bankamálum.
      ** “Í samþykkt [Evrópu]þingsins frá desember 1997 segir m.a.:“Löndin sem sækja um aðild verða að sýna, að þau séu trú grundvallarmarkmiðum ríkjasambands sem stefnir í átt að sambandsríki” (”federal state”). Í samþykktinni er hvatt til þess að afnema neitunarvald, minnka áhrif smáríkja og auka miðstjórnarvald.” (Ragnar Arnalds: Sjálfstæðið er sívirk auðlind, s. 103.)
      *** http://ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item292434/ (’Ísland fengur fyrir ESB’).

     

Ein ummæli við “ LESUM NÚ: Öll tímamóta-baráttugrein Evu Joly á netinu! – og um ásælni EB við Ísland ”

  1. Jón Valur Jensson » Sarpur » Snobba Íslendingar fyrir Evrópubandalaginu?!:

    [...] Jón Valur Jensson Skyggnzt um í henni veröld « LESUM NÚ: Öll tímamóta-baráttugrein Evu Joly á netinu! – og um ásælni EB við Ísland [...]

Rita ummæli

Þú verður að skrá þig inn til að rita ummæli.


Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning