Global Gathering 2008

31. júlí 2008 / 14.37 / Kiddi

Biðst velvirðingar á öllum þessum texta. En ég næ aðeins að koma 10% af því sem ég vil til skila með þessu hér fyrir neðan. Undirbúið ykkur bara vel með kaffibolla og bakkelsi.

Þetta var auðvitað bara rosalegt.
Veðrið í ár var miklu betra en í fyrra en það var 30 stiga hiti og sól alla helgina þetta árið.

Diddi sýnir okkur hvar sólin er

Bobbi (held ég) og Andri

Hjörtur og Maggi

Toni

Fannst line uppið betra í ár en var í fyrra. Skildi ekki alveg afhverju Kanye West var að á aðalsviði hátíðarinnar, en hann er víst kominn út í rafpopp eins og svo margir aðrir. Fór ekki að sjá hann. Ég sá eftir helgina að Danni hafi bent mér á að planta mér í Bedrock á laugardagskvöldið sem ég og gerði - takk fyrir hugskeytið Danni. En það tjald var það lang flottasta, ásamt Global tjaldinu. Nánar að því á eftir.

Grosvenor Hótelið sem við gistum á

Hluti af hópnum

Deadmau5

Við mættum þarna í bongóblíðu á föstudeginum. Eftir að hafa fengið okkur gott að borða ákváðum við að drífa okkur á svæðið. Leigubíll tekin og fimm mínutum síðar vorum við mætt á Global Gathering. Á móti okkur tók íslandsvinurinn hann Joel Zimmermann, aka Deadmau5 með bangin’ elektró progg keyrslu og var stemningin mjög góð og virtist hann hafa fólkið nákvæmlega þar sem hann vill það - geggjað á því á gólfinu. Hann átti flott session. Ég var eilítið sár að missa af John Dahlback sem var á undan, en það var nóg eftir. Svo á eftir klikkaða Joel eins og við köllum hann, tók við, enginn annar heldur en bailer Prydz.

Eric Prydz

Í þennan hálftíma sem ég var á meðan hann var að koma sér af stað varð ég fyrir vonbrigðum. Það var lítið að gerast hjá honum og mér fannst eins og að einhver hefði lækkað í græjunum! Kannski var ég bara orðinn svona blekaður. En allavega þarna þurfti ég að rjúka og hleypa tveimur inn á svæðið sem að voru seinir á því. Þegar ég mætti til baka þá var Eric Prydz búinn að keyra þetta upp í hæstu hæðir og nagaði ég mig í handarbökin yfir að hafa þurft að rjúka í burtu. Svo virtist sem hann hafi nelgt þetta á þeim tíma sem ég fór. Ætli það hafi verið persónulegt?

Einnig kíktum við á röltið og sáum Sam Sparro á aðalsviðinu. Þetta er upcoming stjarna og virðist vera nokkuð stór þarna í Bretlandi. Þessi er að gera það gott í dans-commercial heiminum í dag.

Sam Sparro

Global Tjaldið

Þá var komið að meistara Sasha. Í fyrra fannst mér hann bera af og taldi hann þurfa að draga helvíti þétta fjöður úr hattinum í þetta skiptið til þess að toppa það. Viti menn. Sasha kom, sá og sigraði á Global tjaldinu fyrir mitt leiti. Hann tók mig í minn eigin heim (pottþétt eingöngu tónlistin hans, ekki eitthvað annað..) og í ævintýraferð sem ég á seint eftir að gleyma. Hann átti þetta - aftur og ég var illa sáttur.

Í góðum fíling á Sasha

Beljumaðurinn, haha!

Gunni hress

Tiesto tók svo við og voru flestir í ferðinni okkar á því að hann hafi verið afgerandi bestur. Nú tala ég fyrir sjálfan mig þegar ég segi að hann hafi lítið gert fyrir mig - eins og fyrri daginn. Hann átti fína spretti og hafði allt krádið með sér en ég gat bara ekki fundið mig. Þegar þetta var að gerast ákváðum við svala að kíkja á Dubfire og Sven Vath. En einhverneginn rankaði ég svo við mér uppi á hótelherbergi …

Frábært kvöld afstaðið og allir sammála um að þetta hafi verið einstök upplifun - og allt það besta eftir. Þess má geta að ég missti af Funkagenda, Ame, Locodice, Speakerjunk og Axwell en allt voru þetta artistar sem mig langaði að kíkja á. Í fyrra hljóp ég á milli tjalda, en í ár vildi ég ná heilu syrpunum. Lái mér hver sem vill.

Hluti af hópnum

Og aftur!

Markaðurinn í Stratford

Martijn Ten Velden

Eftir að hafa hámað í sig góðan morgunmat og sólað sig með Svölu. Tekið miðbæjarrölt á þetta og kíkt á breska markaði. Var ferðinni heitið á svæðið. Við lentum þarna um fjögur leytið og hlupum beint í fangið Martijn Ten Velden sem var klárlega uppáhalds actið mitt fyrir þetta árið sem mig dauðlangaði að sjá. Og hann eisaði þetta. Það virtist fjölga gríðarlega krádið hjá honum. Ég fékk íslendingana til þess að setjast í sólina og kíkja á hann og sáu flestir ekki eftir því. Ég vildi helst ekki fara! Þess má geta að hann spilaði æðislegt remix af Halcyon On On með Orbital (Human Traffic). Ég og Diddi tækluðum flott spor þarna og sá síðarnefndi tók speakerspor á þetta þar sem maður plantar sig fyrir framan hátalara og dansar, og dansar, og dansar og dansar.. og dansar. Brilliant.

Martijn Ten Velden tjaldið

Jóna, Valur og Benni (Parið og “Vírusinn”)

Leibbi (Leiðtoginn eða “Færeyingurinn”)

Svo tókum við röltið og keyptum okkur meiri bjór sem var ansi vinsæll þessa hátíðina. Þess næst kíktum við á Mark Knight sem var að klára sitt session. Ekki mikið sem kom mér á óvart þar en hann virtist vita hvað hann væri að gera - spilaði útþynnt remix af Higher State sem lagðist vel í fólkið - og mig en þetta er eitt af mínum topp 10 originallinn þaes. Og var svona að reyna pumpa fólkið upp með stöffi sem það þekkti - ekki minn tebolli en þokkalegt engu að síður. Vonbrigði helgarinnar.

Á þessum tíma komu flugvélaofurhetjurnar í “Reds” fljúgandi yfir svæðið og sýndu ótrúlegar listir. Einn af hápunktum hátíðarinnar.

The Reds

Ótrúlegt hvernig þær mætast og hvað þær eru þétt

The Reds í “Vertical Drop”

Við Svala ákváðum að hlaupa yfir í Bedrock og sjá Martin Buttrich live. Yndislegur tónlistarmaður og var frábært að setjast niður í þurrt grasið og hlýða á fallega danstónlist. Strákarnir SOS (Desyn, Demi og Omid) tóku svo við af honum og hlupum við að stað nær sviðinu til þess að taka sporið nákvæmlega eins og í fyrra. Sýndist þeir eiga í einhverjum tæknilegum erfiðleikum þar sem þeir hristu hausinn til skiptis - en frábær músík og dansaði ég ekki svona mikið alla ferðina. Hitti þá svo seinna um kvöldið og þeir grátbáðu mig um að fá þá aftur til íslands. Enda æðislegir strákar og skemmtilegustu plötusnúðar sem ég hef komist í kynni við og ég veit að það eru fleiri á sama máli.

SOS

Bedrock

“Bræðurnir”

Auður og Diddi í léttum dansi

Uppáhalds tónlistarmaðurinn í minni “tösku” er án efa Gui Boratto. Hann tók við af SOS með live setti og ég held að ég hafi dottið í nett trans. Hann spilaði allt sitt eðal stöff og ég eiginlega bara missti mig. Sitjandi. Hlustaði á meira af fallegri danstónlist og stökk upp af og til að taka sporið. Þar sem ég hafði heyrt nánast þetta sama sett nýlega úr útvarpsþættinum hans Digweed þá ákvaðum við að taka smá rölt og kíktum á Sander Van Doorn sem var að trylla lýðinn í Godskitchen. Gott hjá honum og fórum við í göngutúr um svæðið áður en við fórum aftur í Bedrock. Francois K, James Zabiela og John Digweed áttu lokaorðið í Bedrock og á hátíðinni sjálfri fyrir mig - þeir voru allir frábærir þó Zabiela hafi komið mér mest á óvart. Hann var töluvert öðruvísi heldur en hann á að sér að vera - sem er gott. Spilaði mjög dröggý progg trance og lagði góðar línur fyrir Digweed sem kom, sá og sigraði hátíðina að mínu mati, ásamt Sasha. Nákvæmlega eins og í fyrra.

Vil nota tækifærið og þakka öllum þeim sem komu með okkur á hátíðina. Hópurinn var frábær og andrúmsloftið yndislegt. Við kynntumst hressum aðilum allstaðar frá og allir voru með sama markmið. Að skemmta sér vel.

Flex Music ætlar þokkalega að vera með hópferð á næsta árið aftur. Takk fyrir og .. Cheers mate!

Læt þessa mynd af Didda kveðja ykkur ;)

kv, fara-r-stjórinn

Íslendingar eru hálfvitar.

2. maí 2008 / 14.24 / Kiddi

www.visir.is Segjast ætla að kæra lögregluna

Ef menn skoða myndbandsupptökunar af þessum mótmælum þá er augljóst að þessi drengur lætur fara mikið fyrir sér gagnvart lögreglunni.

Löggumenn hljóta að hlægja að þessari frétt og eru með spóluna í tækinu til að sýna móður þessa drengs. Trúi ekki öðru.

Ástin mín

7. nóvember 2007 / 16.12 / Kiddi

Brúnó heilsast vel. Enda stór og sterkur strákurinn. Pínulítill hrakfallabálkur enda búinn að lenda í nokkrum slagsmálum og hefur nælt sér í nokkur ör vegna þessa. Aðrir hundar fyllast bara afbrýðisemi þegar þeir hitta hann og ráðast á hann, hvað er það?

Svo hef ég eignast yndislega kærustu frá því ég bloggaði síðast. Hún heitir Svala Jónsdóttir og er eiginlega bara draumakonan mín. Hef aldrei kynnst öðrum eins persónuleika. Hún er sæt, góð, skemmtileg, hress og ekkert lítið jákvæð. Ég er ekkert að ýkja neitt! Það hlakkar í mér þegar ég hugsa um hana ;) Fiðringurinn er .. já yndislegur. Hehe! Ég elskana.

Erum við að tala um fyndna auglýsingu?

3. október 2007 / 0.19 / Kiddi

Haha! … smella á þetta hér.

Brilliant auglýsing sem fékk mig til þess að emja um af hlátri.

Einn illa sáttur!

6. júlí 2007 / 21.07 / Kiddi

Við erum að tala um að nú styttist óðum í þriggja ára afmælið hans Brúnó. Þann fyrsta ágúst 2004 fæddist þetta litla dýr sem unnið hefur hug og hjörtu þeirra sem kynnst hafa drengnum. Þessa stundina er hann staddur í sumarbústað með kærustunni sinni, gullfalleg Rottweiler stelpa, hún Líf sem Dísa og Arnar eiga. Þessi yndislega fjölskylda úr Garðabænum bauð Brúnó upp í sveit. Ég held að hann hafi ekki verið svona spenntur síðan ég bjó með hann í Auðsholtinu milli Hveragerðis og Selfoss fyrir þó nokkru síðan. Var að heyra í Dísu! Hann og Líf hlaupa um eins og brjálæðingar í náttúrunni og hvíla sig þess á milli í klessu ofan á hvort öðru. Vá hvað hann hefur það gott ;)

Í ljósi þess að hann muni eiga afmæli bráðum ákvað ég að dekra aðeins við strákinn í gær. Ég verslaði nýja ól á hann þar sem hann týndi sinni í fyrradag, alveg eins ól nema styttri svo hún fer honum mun betur. Í leiðinni verslaði ég heilan haug af uppáhalds namminu hans, voða gómsæt grísaeyru .. haha! Þvílíkt nammi maður. Hann elskar þetta.. og lifrapylsu! Svo fékk hann nýtt rúm í afmælisgjöf! Og hann var ekkert smá illa sáttur. Rúmið er töluvert stærra en það gamla og mun mýkra. Svo eftir herlegheitin var honum boðið í sumarbústaðinn…

Einn illa sáttur!







Pioneer á Íslandi, Icelandair, Beep og Global Underground ásamt Flex Music kynna:

24. apríl 2007 / 0.23 / Kiddi

Þeir sitja í sjötta sæti heimslistans yfir bestu plötusnúða veraldar í dag. Deep Dish skipa þeir Sharam og Dubfire, en sá síðarnefndi hefur nýlokið við útgáfu af nýjustu afurð í hinni ótrúlegu Global Underground seríu, Global Underground Taipei.

Í tilefni af útkomu GU#31ætlar Flex Music í samstarfi við Global Underground, Pioneer á Íslandi, Icelandair og Beep að efna til klúbbakvölds á NASA þann 16. maí næstkomandi. Þar mun koma fram Dubfire úr Deep Dish ásamt Ghozt og Brunhein úr klúbbaþættinum Flex á Xinu 977 og hinum landsþekkta Danna Bigroom.

Þann 12. maí verður hitað upp fyrir kvöldið í þættinum með sérstökum Deep Dish þætti þar sem spilað verður eingöngu efni frá þeim félögum.Dubfire á NASA 16. ma</p>
				</div>

				<p class=

Íslendingar efna til hópferðar á stærstu danshátíð Evrópu!

2. apríl 2007 / 16.24 / Kiddi

www.visir.is Flex Music með hópferð til Bretlands

Flex Music efnir til ferðar á Global Gathering í Bretlandi
65.000 manns + 200 plötusnúðar og listamenn!

Flug kl 7:45 á föstudagsmorgun þann 27. júlí með Iceland Express.
(Flex náði síðustu sætum)

Rúta frá stansted á svæði Global. Tekur 4 tíma að ferðast með lest svo það er mun fljótlegara að fara með rútu sem og með góðum hóp.

Flug heim á sunnudags kvöldi með síðustu vél.

Verð 65 þús ca. (flugið á 35 þús VIP miði á 20 þús) og lestarmiðar ofl á 5 þús ca.

Innifalið í okkar verði er íslensk farastjórn + VIP miði + flug og gisting á tjaldsvæði alla hátíðina.

Til þess að skrá þig í ferðina þarft þú að senda okkur póst á flex@flex.is
(Fullt nafn, heimilisfang og símanúmer)

Staðfestingargjald (8þús) þarf að greiða helst fyrir páska.

Sendið okkur póst og við höfum samband!

Global Gathering 2007

  • * Faithless * Steve Lawler * Paul Van Dyk * David Guetta * Ferry Corsten * Pete Tong * Carl Cox * Sander Kleinenberg * Roger Sanchez * Mason * Funkagenda * Judge Jules * Armand Van Helden * Armin Van Buuren * John Digweed * Sasha * Mark Knight * Booka Shade (LIVE) * Paul Van Dyk * Steve Angello & Sebastian Ingrosso * D. Ramirez * Stanton Warriors * Eddie Halliwell * Fedde Le Grand * Sander Van Doorn * 2 Many DJs * Tom Novy * Eric Prydz * Eric Morillo * Paul Oakenfold * Basement Jaxx * Hot Chip (DJ) * Chris Lake * Mason * Jimmy Van M * SOS Omid16b & Desyn Masiello * Bodyrox * Goldie * Markus Schulz * Pendulum (DJ) * Plump DJs * Adam Freeland * Danny Howells * Steed Lord (IS) *
  • Húnninn knútur er krúttlegur kútur

    23. mars 2007 / 14.15 / Kiddi

    Þessi skemmtilega fyrirsögn blasti við mér á forsíðu Vísir.is nú rétt í þessu. Fréttin fjallar um ísbjarnarhnoðra nokkurn sem hlotið hefur gífurlegar vinsældir í Þýskalandi. Hann er 15 vikna og heitir Knútur.

    Allt er nú til.

    Borið hefur svolítið á því að fréttaflutningur Vísis sé ábótavant þó ekki séu allir á eitt sáttir um það. Finnst mér fínt að fá fréttirnar frá tveimur veitum og tel það bara gott mál. Fannst þó um daginn þegar “meintur nauðgari” var handtekinn í Reykjavík. Á meðan MBL greindi frá “meintum nauðgara” skrifaði Vísir um að “nauðgari” hefði verið handtekinn. Það passar ekki alveg..

    Global Underground #31 Taipei

    15. mars 2007 / 12.19 / Kiddi

    Við Heiddi höfum barist eins og ljón fyrir því að staðfesta komu Deep Dish til Íslands. Fyrir þá sem ekki vita eru Deep Dish plötusnúðar sem hafa unnið til verðlauna um heim allan og ber þá helst að nefna Grammy verðlaun. Sömuleiðis hafa þessir plötusnúðar endurhljóðblandað og unnið fyrir listamenn á borð við Madonna. Dubfire úr Deep Dish var að gefa út disk sem heitir Global Underground Taipei og er þetta næsti útgefinn GU diskur, númer 31 í röðinni úr þessari frábæru seríu.

    Það verður svo að Flex Music muni tilkynna á næstu dögum að Deep Dish featuring Dubfire muni spila á Broadway þann 16. maí næstkomandi. Verður þetta þá hluti af Global Underground túrnum sem hann fer um heiminn og búast má við erlendum ferða- og blaðamönnum á þennan viðburð.

    Smá umsögn:
    Grammy Winner Deep Dish’s Ali “DUBFIRE” Shirazinia delivers the amazing double disc DJ Mix “TAIPEI” based on his recent set at the famous “Luxy” Club in Taipei. Following up the success of his Deep Dish partner SHARAM’s DUBAI mix CD from last year. The album features a wide array of cutting edge electronic artists including Booka Shade, Xpress 2, Ellen Allen, Nitzer Ebb and Dubfire himself with an exclusive track “I Feel Speed”.

    Ljóst er að við erum að tala um eitt svakalegasta kvöld Flex Music fyrr og síðar í samstarfi við stórann plötuútgefanda í þessari senu erlendis frá. Að sjálfsögðu munum við bræður Ghozt & Brunhein sjá um flutning tónlistar á undan stjörnunum en einnig verður Danni Bigroom með okkur á sviði og heldur uppi heiðri norðlendinga með frábærri spilamennsku.

    Deep Dish á Broadway þann 16. maí 2007
    (Global Underground Tour)

    Elskan, hvar eru nærbuxurnar þínar?

    14. mars 2007 / 12.37 / Kiddi

    Mikið þætti mér nú merkilegt ef einhver í minni fjölskyldu yrði staðinn að verki við þjófnað. Enn merkilegra yrði ef þessi þjófnaður yrði á svo viðkvæmu stigi að ég yrði lagður í einelti á mínum vinnustað, í mínum skóla eða hreint og beint bara af mínum eigin vinum!

    Aldrei myndi ég leggjast það lágt í það minnsta. En bíræfinn þjófur í Hiroshima stóð sig eins og hetja. Hann gerði það sem gera þurfti, svona í anda Hróa Hattar.

    Sjá þessa stórfurðulegu frétt nánar.