Til hamingju Rimaskóli og til hamingju Áslaug Traustadóttir
Mér finnst þetta hreint frábært framtak hjá Áslaugu Traustadóttur sem hefur staðið fyrir kokkakeppni í Rimaskóla undanfarin ár. Nú kepptu grunnskólarnir í fyrsta sinn. Það er svo gaman að sjá myndirnar sem hafa verið sýndar af keppendum við kokkamennskuna. Í andlitum þeirra skýn áhugi, metnaður og eftirvænting.
Keppni sem þessi hefur að mínu mati meira vægi en margur gerir sér grein fyrir. Krakkarnir þroska með sér einbeitni, keppnisanda, sjálfsaga auk þess að finna hvers þau eru megnug. Svona framtak er ekki bara þroskandi heldur hefur það einnig forvarnargildi.
En það er margt annað en matreiðsla sem hægt er að keppa í. Ég vona að þetta sé aðeins upphafið af fleiri góðum hugmyndum þar sem hægt er að virkja börn og unglinga með ámóta hætti.
Færslur um sálfræði, stjórnmál og dægurmál.