Tilkynning.
Ég á afmæli í dag,
ég á afmæli í dag.
Ég á afmæli sjálfur,
Ég á afmæli í dag.
KV:Korntop
Fært undir Vinir og fjölskylda þann 14. ágúst 2008 af korntop | 0 ummæli
Töðugjöld.
Vil bara minna á tónleikana í kvöld í Fjölskyldu og Húsdýragarðinum.
Fram koma:Nýdönsk,Veðurguðirnir og Stuðmenn auk Röggu Gísla og Dísu.
Vonast til að sjá sem flesta í garðinum í kvöld.
KV:Korntop
Fært undir Tónlist, Óflokkað þann 3. ágúst 2008 af korntop | 0 ummæli
Endurbætur.
Eftir helgina fara fram endurbætur á síðunni og er það í tengslum við fluttninga frá mbl blogginu sem þýðir að allir tenglar verða fluttir hingað á síðuna og ætti það að taka 3 -4 vikur.
Einnig munu valdir og góðir bloggvinir vera hér með síður sínar svo ég geti kíkt á þær þegar tími gefst til.
KV:Korntop
Fært undir Óflokkað þann 2. ágúst 2008 af korntop | 0 ummæli
Sæl á ný.
Sæl aftur,þá er kominn tími til að blogga hér aftur og mun auka bloggfærslur hér með tíð og tíma en mbl bloggið fer að vera ansi útþynnt en þar grassera allskyns bloggarar sem eru einhverra hluta vegna í keppni um hver eigi flesta “bloggvini” og blogga bara einhverja tóma steypu.
Hér mun ég halda áfram að blogga um hvað er að gerast í mínu lífi auk þess sem skoðanir mínar á ýmsum hlutum fá að koma með en meira um þróun síðunnar síðar en ég er mjög ánægður með að vera kominn hingað aftur.
Við skulum eiga góðar stundir saman yfir góðum umræðum en tekið skal fram að ég er ekki í neinni keppni við aðra um vinsældir heldur er þetta mín leið til að skrá niður það sem finnst um hitt og þetta.
En nóg í bili-meira síðar.
KV:Korntop
Fært undir Óflokkað þann 29. júlí 2008 af korntop | 1 ummæli
sportsíða?
Er að spá í að hafa þetta sportsíðu frekar en fréttasíðu en tíminn leiðir það í ljós vonandi.
Læt vita hvað gerist í þessu efni bráðlega.
Kveðja:Korntop
Fært undir Íþróttir þann 12. nóvember 2007 af korntop | 0 ummæli
Sunnudagur.
Í dag á bara að taka það rólega og glápa á sjónvarpið enda nógáð horfa á, það markverðasta í mínum huga er leikur í Ameríska ruðningnum á milli Miami Dolphins og New York Giants en leikurinn er spilaður á Wembley á englandi.
Stórleikurinn í enska boltanum er leikur Liverpool og Arsenal á Anfield og má búast við hörkuleik enda Arsenalliðið best spilandi lið Úrvalsdeildar en Liverpool unnið 3 síðustu deildarleiki liðanna á Anfield.
Aðöðru leyti verður bara slappað af og legið í leti.
En nóg í bili-KV:Maggi.
Fært undir Íþróttir þann 28. október 2007 af korntop | 4 ummæli
Sæl og blessuð.
Bara að láta vita af mér hérna,verð bara latur um helgina og hef það kósí með sjálfum mér,blogga meira við ctækifæri.
Fært undir Umræðan þann 27. október 2007 af korntop | 2 ummæli
Fyrsta blogg á Vísi.
Þá er ég kominn á vísisbloggið og líkar vel,á þó eftir að vinna betur í síðunni og gera hana eftir mínu höfði og það tekur sinn tíma enda er ég að læra á ýmislegt hérna og á ég örugglega eftir að njóta aðstoðar Emils Tölvutryllis við ýmislegt eins og við aðrar síður sem ég hef búið til.
En læt þetta gott heita í bili.
KV:Maggi
Fært undir Umræðan, Óflokkað þann 25. október 2007 af korntop | 1 ummæli
Halló.
Er að prófa mig áfram hérna og blogga hér endrum og sinnum og vonandi á ég samleið með öðrum vísisbloggurum.
Fært undir Óflokkað þann 25. október 2007 af korntop | 0 ummæli
Ég er léttgeggjaður náungi með ýmis áhugamál og er söngurinn þar efstur á blaði en einnig eru málefni öryrkja og annara sem minna mega sín mér hugleikinn.