Allt og ekkert

Það sem er mér efst í huga hverju sinni

Flutt

Krása 25. janúar 2009

Ég ætla ekki að blogga meira hér á Vísisblogginu. Líst ekki á blikuna hvað fréttastofu Vísis- og Stöðvar 2 varðar. Hef stofnað nýja síðu http://utblastur.blogspot.com/ sjáumst þar :)

Fært undir Óflokkað | Engin ummæli »

Útblástur tilfinninga minna

Krása 17. janúar 2009

Hef ekkert bloggað lengi. Líklega af því að ég hef svo margt að segja að ég er að springa. Þetta hefur kannski bara orsakað einhverskonar stíflu?  Veit samt ekki hvort ég á að blogga um spillingarbælið Ísland, pólitísku ráðningarnar, valdagræðgina, hrokann, ábyrgðarleysið, einkavæðingu heilbrigðiskerfisins og allt það. Allavega get ég sagt það að ég er komin með ógeð.

En af mér svona prívat og persónulega þá er ég búin að vera að vinna á Markaðs-og samskiptasviði Háskóla Íslands frá því í nóvember og hef mjög gaman af. Ég er búin að fá nýja sýn á þennan skóla þar sem ég er að skrifa greinar um hitt og þetta sem er að gerast innan skólans og það er bara að opnast fyrir mér algerlega nýr heimur.

Svo byrjaði skólinn í vikunni og það er mjög þægilegt að rölta bara í næstu stofu eða næstu byggingu til að sækja tíma.

Ég fór að mótmæla áðan með Teklu litlu. Austurvöllur var fullur af fólki og hundum. Ræðurnar voru góðar, Gylfi Magnússon og Svanfríður Anna Lárusdóttir. Ég þekki Svönu (eins og hún er yfirleitt kölluð) frá því fyrir mörgum árum úr JC hreyfingunni. Hún hefur engu gleymt og flutti flotta ræðu. Gylfi var góður líka en hann er mjög rólegur í tíðinni en innihaldið í ræðunni var gott.

Ég ætlaði að blogga um eitthvað voða merkilegt þegar ég skráði mig hér áðan. En nú man ég ekkert hvað það var. Veð bara úr einu í annað eins og áttavilltur einstaklingur með enga stefnu. En kannski er ég bara áttavilltur einstaklingur með enga stefnu? Langar svolítið að yfirgefa landið, það er svona á stefnuskránni allavega, þannig að kannski hef ég smá stefnu. Er bara búin að fá nóg af ástandinu hérna (aðallega spillingunni). Mér hefur blöskrað peningahyggjan í mörg ár, en nú er ég bara búin á því sko.  Samt er ég nokkuð heppin, í vinnu og skóla og á ennþá í mig og mína og á. 

Hvernig eiga allir þeir sem búnir eru að missa vinnuna að hafa það af? E.t.v. með húsnæði sem það getur ekki losnað við, og svo verður fólk nú hvort eð er að búa einhversstaðar. Ef ég færi á atvinnuleysisbætur myndu þær ekki duga fyrir mánaðarlegu skuldasúpunni hvað þá meira. Hvort á fólk að borga skuldirnar eða mat? Mat myndi ég halda. En þá safnast upp skuldir sem fólk losnar ekkert við. Úrræði ríkisstjórnar… jú geyma smá og húrra því ofan á höfuðstólinn til að auka mánaðarlegar greiðslur í framtíðinni - fyrirgefið en það er engin lausn fokking ríkisstjórn.  Af hverju er Solla ekki búin að slíta stjórnarstarfinu? Ég trúði svo á þessa konu. En í dag hef ég misst allt álit á Samfylkingunni. Fyrir hafði ég ekkert og sko EKKERT álit á Sjálfstæðisflokknum og ekki heldur Framsókn. Það er ekki mikið eftir að trúa á. Já heyrðu, ég trúi bara ekki lengur á stjórnvöld punktur. Hvar á ég þá heima? Er ég kannski bara að verða anarkisti? Ég bíð eftir nýjum lausnum sem umbylta núverandi kerfi. Kerfi þar sem spilling er ekki liðin og félagshyggja höfð að leiðarljósi. Er sami rassinn undir öllum þeim sem komast til valda?

Fanndís mín er að æfa box á fullu. Fór í æfingarbúðir yfir helgi um daginn og var svakalega ánægð. Nú er hún farin að þamba prótein og skokka milli æfinga. Hún er í fanta formi og er að fíla það vel. Mér líst vel á starfið hjá boxfélaginu. En mér líst illa á box almennt. Heilinn er viðkvæmt líffæri sem á ekki að vera á fleygiferð inní hauskúpunni. En hann fer af stað við höfuðhögg. Vona að þetta verði allt innan skynsamlegra marka hjá þeim.

Svana talaði um það í sinni ræðu áðan á Austurvelli að engan væri búið að draga til ábyrgðar NEMA hana sjálfa og alla þá sem missta hafa vinnuna - fólk sem hafði ekkert með efnahagshrunið að gera. Fólki blæðir fyrir VIÐURSTYGGILEGA GRÆÐGI HINNA.

Blóð, sviti og tár almenningur - Völd, peningar og græðgi útvaldir.

Fært undir Óflokkað | Engin ummæli »

Mótmæli og verðlag

Krása 29. nóvember 2008

Við mæðgurnar fórum á Austurvöll í dag og tókum þannig þátt í mótmælunum.  Eftir mótmælin fengum við okkur kakó og eplapæ á Kaffi París og borguðum kr. 2360 fyrir sem mér finnst algert okur. Ekki nóg með það heldur fengum við framreitt kalt eplapæ og 10 mínútum seinna kom kakóið… uhhh

Fært undir Óflokkað | 2 ummæli »

Breytingar, ástandið og klúbburinn

Krása 12. nóvember 2008

Jæja jæja aldeilis kominn tími til að blogga enda mikið búið að gerast á stuttum tíma.  Í fyrsta lagi bauð fyrirtækið sem ég hef starfað hjá í rúm ellefu ár mér lækkað starfshlutfall um daginn. Það lágt hlutfall að ég sá ekki fram á að geta lifað á því. Ég sagði því nei takk og ákvað að nú væri kominn tími til að gera eitthvað í því sem mig hefur langað til að gera lengi. Sótti því um í mastersnám í félagsfræði og ætla að haga því þannig að ég byrja hér heima í janúar en ætla svo að sækja um skiptinám (sem er víst auðsótt mál) og klára úti í Kaupmannahöfn. Þannig næ ég að slá tvo drauma í einu höggi :)  Mig hefur nefnilega langað mjög lengi til að búa úti og mennta mig enn meira á þessu spennandi sviði félagsvísinda.  Það veitir víst ekki af félagsfræðingum á þessum tímum sem við erum að ganga í gegnum og nóg af rannsóknarverkefnum.

Rósa systir mín býr í Kaupmannahöfn ástamt Degi sambýlismanni sínum og þau eru mjög spennt yfir því að fá okkur mæðgur út. Fanndís er líka spennt og alveg til í að söðla um með mömmslu sinni.  Teklu getum við vonandi tekið með okkur líka. Svo er bara vonandi að ég geti leigt út kofann hér heima til að hafa uppí síhækkandi íbúðalánin og fasteignagjöldin.

Talandi um íbúðina mína og ástandið á Íslandi. Árið 1994 keypti ég fyrstu íbúðina mína, tveggja herbergja rúmlega 40fm í Búðagerði. Ég leigði hana út fyrsta árið til þess að geta þetta og fékk inni hjá mömmu og pabba á meðan. Árið 1999 keypti ég 68fm íbúð á Hrísateig sem ég tók algerlega í gegn ásamt pabba og þá fékk Fanndís mín sér herbergi. Árið 2005 keypti ég svo hér á Rauðalæknum og við fengum okkur hund enda komnar með sér inngang og fínheit. Ég hef því greitt af íbúðalánum í rúm 14 ár. háar upphæðir um hver mánaðarmót. Ég hef aldrei átt nýjan bíl, var lengst af á gömlum Skoda sem kom mér bara vel á milli staða. Nú á ég 8 ára gamlan bíl sem er kannski 200þ kr. virði. Enda hef ég lagt meira upp úr góðum kofa en góðu farartæki. Ætla mætti að eftir 14 ára afborganir væri eignarmyndun góð. En með verðtryggðum íbúðalánum, verðbólgu og lækkandi fasteignaverði sé ég eignarmyndun mína í íbúðinni minnka með hverjum degi sem líður. Er ég þá búin að vera að streða í 14 ár fyrir engu?  Og hækkunin á lánunum mun ekki ganga til baka þótt verðbólga minnki.  Þetta er staðan sem nánast allir íslendingar eru í!!  Þeir sem tóku gjaldeyrislán eru sumir hverjir í enn verri stöðu, í það minnsta á meðan gengið er svona. Fólk sem ég þekki keypti til að mynda íbúð á 30 milljónir fyrir nokkrum árum með gjaldeyrislánum sem nú eru komin upp í 50 milljónir. Og við tókum ekki þátt í þessu neyslubrjálæði, útrás og sukki.

Og fyrir hvað erum við almenningur í landinu að blæða?  Einkavæðingu frjálshyggjuflokka, eftirlitsleysi stjórnvalda, sukk, svínarí og gróðarÆÐI útrásarvíkinga. Ég hreinlega sit og spyr hvernig í ósköpunum gat þetta gerst?  Það eru sífellt að koma fram upplýsingar í dag um að þessar og hinar viðvaranir hafi borist stjórnvöldum hér og stjórnvöldum í Bretlandi… en enginn gerði neitt!!  Og ennþá situr ríkisstjórnin.  Jeddúddamía.

Já ég er stundum reið og sorgmædd, en oftast er ég þó voða bjartsýn og glöð og hlakka til að labba í þessa nýju átt sem ég er að fara í lífinu.

En að öðru.. við mæðgur fórum ásamt bestasta klúbb í heimi í sumarbústað síðustu helgi. Þessi klúbbur var stofnaður á Höfn í Hornafirði árið 1993 og hefur haldið hópinn síðan.  Þessar sumarbústaðaferðir eru árlegar og þá fær öll fjölskyldan að koma með okkur stelpunum. Og allir ná svo vel saman, krakkar, bóndar og auðvitað við skvísurnar.

Kvöldverður

Þetta var æðisleg veisla

Fórum í ratleik og hér er hluti af hópnum

Á leiðinni heim kíktum við á hestana og hér er Máni litli kominn í vetrarbúninginn en hann fæddist í ágúst litla dúllan.

Fært undir Óflokkað | 1 ummæli »

Síðan síðast

Krása 26. október 2008

Síðan mín hér tók uppá því að henda inn glugga sem krafðist passwords.  Ég bað ekki um þetta og fékk bara hundleið á þessari síðu og gaf í hana skít um tíma.  Hef fengið nokkrar umkvartanir af þessum sökum og hripa því niður nokkar línur núna.  Password gluggan næ ég ekki að losa mig við en ég held að allir eigi að geta hent honum burt með cancel og haldið áfram að lesa án þess að setja inn eitthvað password sem enginn veit hvað er hvort eð er.

Það er að frétta frá því síðast að Mánadís er engin dís heldur typpalingur.  Nafninu var því snarlega breytt í Mána.  Við skiljum ekki alveg í því hvernig þetta gat farið framhjá okkur þar sem við nánast lágum undir nýfæddu foladinu að knúsa það og kjassa.  Við mæðgurnar eigum því núna þrjá hesta og eina meri; Rjóma, Glym, Mána og Maístjörnu.  Svo auðvitað aðalkrúttið fína hana Teklu sem er hundur.

Í gær tók ég svo í spaðan á nöfnu minni Ingólfsdóttur í tilefni af því að ég útskrifaðist sem félagsfræðingur.  Hélt svo fína veislu í kjölfarið og voða voða gemen.  Pabbi tók þessa mynd hér að neðan og það glittir í mig þarna næstaftast í óþægilegri dragt sem ég fór úr um leið og ég komst heim aftur.

Lokaritgerðin mín ber titilinn; Íslenskir fréttavefmiðlar, kynjahlutfall og birtingarmyndir kynjanna (e. Gender in Icelandic News Web-Media: Numbers and Representation). 

Fanndís er hress, stendur sig ágætlega í skólanum og er farin að æfa box.  Svo ætlar hún líka að fara að æfa júdó. 

Meira síðar.

Fært undir Óflokkað | 2 ummæli »

Litla merfolaldið

Krása 11. ágúst 2008

Á heimleiðinni eftir reiðtúrinn í dag kíktum við á folaldið hennar Maístjörnu.  Fanndís fær að ráða nafninu á litlu merinni og hún er búin að ákveða að annaðhvort muni hún heita Máney eða Mánadís enda er sú litla með þennan líka flotta mána á enninu.  Sú litla kom í heiminn í gær, líklega um 16 leytið og ótrúleg tilviljun að pabbi og mamma skyldu einmitt kíkja við á sama tíma.

img_54572.JPG

Mæðgurnar í dag

img_54182.JPG

Máney / Mánadís

img_54112.JPG

Maístjarna passaði vel upp á afkvæmið sitt í dag og það tók okkur smá tíma að vinna traust og fá að koma nær

img_54562.JPG

Finna spena

img_54552.JPG

Sjúga spena

img_54382.JPG

Ólöf náði taki á Maístjörnu og ég tékkaði á spenunum og þar var næga mjólk að finna

img_54482.JPG

Hér var Maístjarna farin að leyfa okkur að skoða litlu merina sína

img_54472.JPG

Sú dagsgamla var ótrúlega gæf

img_54462.JPG

Henni fannst gott að láta klóra sér

img_54442.JPG

Bara flottust og ég er svo ótrúlega ánægð að hafa fengið meri í þetta sinn því þetta er að öllum líkindum síðasta afkvæmi Maístjörnu sem er orðin 21 vetra gömul. 

Fært undir Dýr, Óflokkað | 2 ummæli »

Þingvellir - Laugavatn

Krása 11. ágúst 2008

Í dag riðum við frá Þingvöllum og yfir á Laugavatn.

img_53682.JPG

Í upphafi ferðar á Þingvöllum, Ólöf, Jónas og ég

img_53992.JPG

Í þjóðgarðinum, Ólöf á Moldu með Rjóma í taumi

img_53982.JPG

Jónas á Rauðku með Gutta í taumi

img_53922.JPG

Veðrið lék við okkur

img_53902.JPG

Á þeysireið

img_53732.JPG

Áð

img_53862.JPG

Þingvallavatn í baksýn

Fært undir Dýr, Ferðalög, Vinir og fjölskylda | 1 ummæli »

Folald komið í heiminn

Krása 10. ágúst 2008

Fékk þau skemmtilegu tíðindi í dag að það væri komið folald hjá Maístjörnu minni.  Mamma og Pabbi voru að koma að austan og kíktu við í haganum - og viti menn var ekki þetta fallega merfolad komið við hlið mömmu sinnar.  Pabbi tók þessar myndir hér að neðan.  Við mæðgur brunum svo austur á morgun og tökum fleiri myndir og finnum nafn á þessa litlu prinsessu.  Þetta er sum sé hvolpa og folaldasumarið mikla :)

2008-seinni-partur-1242.jpg2008-seinni-partur-1232.jpg2008-seinni-partur-1202.jpg2008-seinni-partur-1192.jpg

2008-seinni-partur-1252.jpg

Fært undir Dýr | 3 ummæli »

Flognir úr hreiðrinu

Krása 6. ágúst 2008

Í dag fór Lotta á sitt nýja heimili og eru þá báðir hvolparnir farnir og báðir á frábær heimili þar sem dekrað verður við þá :)

img_53352.JPG

Ólöf vinkona og Sóley María sækja Lottu

img_53382.JPG

Sóley María og Lotta

img_53632.JPG

Við Fanndís heimsóttum Tinna í dag og hann blómstrar hjá Siggu vinkonu og systkynunum Berglindi og Andra.  Tinni vildi leika við mömmu sína hana Teklu

img_53602.JPG

Tinni, Berglind og Andri

img_53492.JPG

Fanndís klórar Tinna á maganum

img_53462.JPG

Tekla og Tinni leika sér

img_53342.JPG

Síðustu hvolpaknúsin í dag

img_53242.JPG

img_53192.JPG

Lovja

Fært undir Dýr, Hundar, Vinir og fjölskylda | 3 ummæli »

Sumarmyndir

Krása 5. ágúst 2008

Svona var stemningin í garðinum okkar þegar hitamet í Reykjavík var slegið 30. júlí sl. 

 img_52872.JPG

Vinkonurnar Fanndís, Nína og Silja ákváðu að tjalda í garðinum.  Tekla fékk að vera memm.

img_52922.JPG

Boltaleikur.

img_52972.JPG

Fórum í sumarbústað til góðra vina í Kjósinni um Verslunarmannahelgina og þar var bongóblíða fram á nótt og því við hæfi að taka létt miðnæturtrampólín.  Fanndís og Sóley María hoppa og skoppa.

img_53022.JPG

Hér er Sóley María í loftinu en hún er eigandi hennar Lottu litlu sem fer til nýju mömmu alfarið á morgun og þá eru báðir hvolparnir flognir úr hreiðrinu.

Fært undir Ferðalög, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »

 
Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning