Blóðsuga í fjárnáms ferð

20. mars 2010 kl. 0.17 eftir kreppa

Einu sinni var það Jack The Ripper sem skelfdi fólk, nú er það blóðsuga sem beit leigubílstjóra við rán (fjárnám). Blóðsugunni tekst bara fjári vel upp. Einhverjir kunna hugsanlega að hafa áhuga á hvernig blóðsugufjárnám er framið og til að koma þeim á sporið bendi ég HÉR á link til að kynna sér málið.

Allt er hey í harðindum.

Sjálfshjálp, sjálfstæði og sjálfsbjargarviðleitni

13. mars 2010 kl. 21.48 eftir kreppa

Neyðin kennir naktri konu að spinna og mér að prjóna og hekla. Kreppa hefur öðru hvoru  bent á leiðir sem geta hjálpað þeim sem eru hjálparþurfi út úr einhverri þynglyndis-kreppunni.

Sú auma Kreppa sem hér skrifar hefur ekki tekið að sér að bjarga heiminum þannig að það sem hér birtist er eingöngu fyrir þá sem hjálpa sér sjálfir….   Kannast einhver við þannig orðalag?

HÉR er hægt að fá hugmyndir til að vinna við EN það kostar gjaldeyri.

Skilningskortur og heimska

9. mars 2010 kl. 21.56 eftir kreppa

www.visir.is Þarf að grípa til mjög harðra aðgerða gagnvart glæpasamtökum

Fjölbreytileikinn hjá okkur mannfólkinu er með ágætum, við erum ekki öll steypt í sama mótið sem betur fer. Þess vegna getum við haft misjafnar skoðanir en við förum misvel með þær og sumir kunna alls ekki að meta þann fjársjóð sem felst í fjölbreyttu mannlífi og hugsun.

Sá sem heima situr og reynir þar af leiðandi lítið í lífinu fær oft viðurnefnið HEIMSKur.

Ekki hafa heldur allir greind eða gáfur til að átta sig á hinum ýmsu málum eða skilja hvernig þau eru í raun. Sumt af þessu fólki er kallað VANgefið og stundum ÞROSKAheft. Við höfum líka val um önnur orð um þennan skilningskort sem ég er að velta fyrir mér en ég ætla að sleppa þeim hér og get bara vonað að einhver velviljaður lesandi skilji hvað ég á við.

Nú er komið að játningu þess sem hér skrifar;

Ég er ljóska og allt í senn, heimsk, vangefin og þroskaheft, skil ekki hvað orðið hugsjón þýðir. Ég viðurkenni fúslega að ég er ekki fullkomin og verð það örugglega aldrei og sætti mig vel við það.

Ég skil ekki hvers vegna fólk þarf að fremja glæpi og ég skil ekki hvernig flestir stjórnmálamenn geti haft þær skoðanir sem þeir segjast hafa. Það er svo margt sem ég skil ekki en ég viðurkenni heimsku mína.

Eitt vil ég þó að komi fram að þrátt fyrir ástand mitt vil ég ekki fyrir nokkurn mun láta innprenta einhverjar skoðanir í minn haus. Því þó hann sé bæði ljós og glær þá vil ég velja mínar skoðanir sjálf hversu heimskulegar sem öðrum þykir það.

Er Lilja Mósesdóttir Kreppa?

8. mars 2010 kl. 18.45 eftir kreppa

www.visir.is Steingrímur: Margar og langar brekkur eftir

Það er næstum því sama hvaða blogg er lesið eða innlendar fréttir, það er allt uppfullt af því að Lilja Mósesdóttir stuðli að Kreppu í VG og víðar. Hún tali eins og hún sé í öðrum flokki og það er látið að því liggja að NÚ eigi að fara að taka hana í gegn. Koma vitinu fyrir hana og sjá til þess að hún tali eins og flokks-undirlægja og hætti að láta samviskuna ráða. Það eru bæði Steingrímur og Jóhanna sem eru sögð ætla að færa hana nær stjórninni í hugsun og framkomu.

Er þetta ekki bara allt orðum aukið, er hægt að taka mark á nokkrum hlut lengur?

Allavega get ég sagt ykkur það í óspurðum að Lilja Mósesdóttir skrifar ekki þessar línur og annað sem mér finnst meiga fylgja er að hún er ekki ástæða Kreppunnar í landinu.

En hún hrærir ansi vel uppí þessu liði sem er á þingi sem hefur engar hugsjónir lengur, nema mata eigin krók.

Það er engan bilbug á mér að finna

6. mars 2010 kl. 22.40 eftir kreppa

www.visir.is Steingrímur og Jóhanna: Engan bilbug á okkur að finna

Ég er ekki að fara neitt,,,, hahahaha, það er engan bilbug á mér að finna.

Þrátt fyrir allar óskir, bænir og bölbænir, þá verð ég kyrr hvað sem hver segir.

Máttur dömubinda

4. mars 2010 kl. 12.43 eftir kreppa

Tveir drengir komu í lyfjaverslun og báðu um dömubindi.

Afgreiðslumaðurinn spurði eldri drenginn;

Hvað ertu gamall?

Átta, svaraði stráksi.

Afgreiðslum: Veistu til hvers þetta er notað?

Stráksi svaraði: “Ekki alveg, þetta er ekki fyrir mig sko, þetta er fyrir hann” og benti á yngri strákinn. “Hann er sko fjögurra ára… Við sáum í sjónvarpinu ef maður notar svona getur maður bæði hjólað og synt en hann getur hvorugt……….”

Íhugar eigin skömm

4. mars 2010 kl. 0.54 eftir kreppa

www.visir.is Starfsmaður á leikskóla gerði grín að grátandi nema á Facebook

Hún grét litla 4 ára stúlkan í leikskólanum, þegar hún átti að íhuga hvað hún gerði af sér og sjálfsagt hefur verið ætlast til þess að hún skammaðist sín. Hún var nefnilega látin sitja undir pappatré sem kallað er íhugunartré….

Svo fór starfsmaður leikskólans að skellihlæja upphátt á Facebook, að því hvernig barnið grét.

Skriflegur skellihlátur fer fram með því að skrifa LOL.

Starfsmaðurinn ætti að taka sig til og íhuga hvað hann gerði af sér svo hann/hún átti sig á hver ástæðan sé fyrir atvinnumissinum sem er yfirvofandi.

Eitt í lokin….. af hverju þarf að breyta um nafn á gamla SKAMMARKRÓKNUM, er talið fegurra að segja íhugunarkrók ?? eða er verið að fara á bak við barnaverndarlög með því?

Nú anda ég léttar

22. febrúar 2010 kl. 8.48 eftir kreppa

www.visir.is Götur í Reykjavík rykbundnar

Það er gott mál þegar andateppunni lýkur og fólk getur andað léttar, farið út fyrir dyr án þess að fá fyrir hjartað vegna súrefnisskorts og mengunar.

Þeir voru að rykbinda umferðaræðarnar sem eru alltaf jafn fjölfarnar þrátt fyrir atvinnuleysi og bensínverð. Nú getum við fylgst með árangri aðgerðarinnar með því að fara inná ÞENNAN LINK og svo er líka gott að hafa hann í Bookmarks þannig að fljótlegra sé að fletta uppá honum. Þar er svifryksmengunin sýnd og útskýrð á 3 mínútna fresti.

Viltu ekki hafa það notalegt um helgina?

20. febrúar 2010 kl. 22.11 eftir kreppa

Maður nokkur hér í höfuðborginni sendi konunni sinni sms á föstudegi og spurði hana:

“Viltu ekki hafa það notalegt um helgina?”

Konan svarar með öðru smsi: “Jújú endilega!

“Maðurinn sendir þá sms um hæl:

“Ok, flott er, heyrumst þá á mánudaginn!” :-D

Spennan eykst

20. febrúar 2010 kl. 18.08 eftir kreppa

www.visir.is Fundað á næstu mínútum

Fundað á næstu mínútum, segja þeir hér á visir.is fyrir tveim klukkutímum og halda okkur í gífurlegri spennu eins lengi og þeir geta. Svo segja þeir ekki orð meir en vilja bara að við bíðum eftir þeim til að vita meira um samningana sem eru í vændum við Hollendinga og Breta og skipta okkur öll máli.

Svei mér þá ef ég fer nú ekki bara að líta á aðra fréttavefi í tölvunni.

Spennan er svo svakaleg að það hljóta einhverjir fréttamenn að vera tilbúnir að segja eitthvað, við okkur aumingjana, þó þeir vinni ekki á vísir.is.

Ég held að ég verði að svíkja lit og líta annað.

________

Og það var eins og við manninn mælt, ég hef sent þeim hugskeyti með þessari hótun. Því það er komin ný frétt af málinu en auðvitað fáum við ekkert að vita um hvað fréttin er …. það á að halda spennunni.

Þetta er allt svo duló og spennandi.




Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning