Ef guð og heilsan lofar…

28. nóvember 2007 / 8.18 / kvoldsogur

…verður afar áhugaverð lífssaga í Kvöldsögum annað kvöld. Bryndís Guðmundsdóttir, talmeinafræðingur ætlar þar af segja okkur af lífi sínu, en hún er alin upp hjá heyrnarlausri móður og gaf nýverið út bók fyrir börn þar sem hún hjálpar þeim að feta þann veg. Bryndís hefur verið borgarstjórafrú, er núverandi bæjarstjórafrú en fyrst og fremst er hún talmeinafræðingur sem ekkert hefur breytt. Dugnaðarforkur sem hefur látið til sín taka á ótal mörgum sviðum þar sem hún hefur hjálpað fólki sem á erfitt með tal og heyrn. Í kvöld verður dóttir hennar, Védís Hervör Árnadóttir, söngkona með útgáfutónleika og við fáum að heyra lög af nýju plötunni hennar og Bryndís segir okkur líka af því þegar ástin kom inn í lífið, af markverðum rannsóknum sem hún hefur unnið að, hvernig það var að flytjast úr stórborginni og og og og.  En allt veltur þetta á heilsuleysi stjórnandans og góðvild tæknimanna sem eru reiðubúnir að gera viðtalið þannig úr garði að það sé sæmandi útvarpshlustendum.

Verið stillt, bæði í umferðinni, heima hjá ykkur, á vinnustaðnum og á Bylgjuna kl. 22 annað kvöld, fimmtudag.

kær kveðja

Anna Kristine

Englakuldi í hljóðstofu

16. nóvember 2007 / 0.50 / kvoldsogur

Þetta var afar merkilegt kvöld. Þannig er að í hljóðstofu Bylgjunnar er alltaf svo sjóðandi heitt að við þurfum að hafa opið fram á gang. Læknirinn sem kom til mín um níuleytið vildi ekki að ég færi í útvarpið heldur á Bráðamóttökuna en ég sagði honum að það væri svo lítið álag í þættinum, ég hallaði mér bara aftur og hlustaði við kertaljós að mér væri ábyggilega óhætt að fara í 2 tíma. Stutt ferð og ekkert álag. Lofaði honum að koma við á Brðamóttökunni á leiðinni heim ef mér væri ennþá svona þungt og með verk í lunganum.Sagði honum að í raun væri þetta bara að fara eins og í einn jógatíma og hugleiðslu. Hann gaf mér tvenns konar lyf, hafði fínan húmor fyrir að ég YRÐI að vera í útvapri annars þyrfti ég að hringla með fullt af fólki á síðustu stundu.Sigrún læknamiðill var góður gestur, hafði frá mörgu að segja og svo gerðist það skrýtna. allt í einu var kaldur vindur sem lék um okkur, engu líkara en við stæðum í kuli, sem straukst við kinnarnar. ég þurfti að fara í úlpuna síðasta hálftímann til að skjálfa ekki af kulda. Sigrún sagði þetta  vera englaorku,Mér er reyndar ekkert batnað, en er ekki svo slæm að ég fari á Bráðamóttökuna nema mér versni í nótt. kannki hafa englarnir fylgt mér heim oglækna mig í nótt, það væri nú yndislegt að vakna heilbrigður á morgun. annars verð ég bara að hlýða og vera í mínu 2ja vikna veikindaleyfi,taka lyf, fara í rannsóknir, hvílast. Þetta er eitt af því sem maður stjórnar þvi miður ekki. Ætla að prófa nudd hjá Sigrúnu á morgun, veit hún hefur gert kraftaverk Ef þið viljið komast í tengsl við hana þá er slóðin skogarsetrid.is

góða nótt og dreymi ykkur vel

bestu kveðjur

anna kristine.

Læknamiðill og reikimeistari í Kvöldsögum

15. nóvember 2007 / 19.33 / kvoldsogur

Fyrir nákvæmlega átta árum, næstum upp á dag - minnir það hafi verið 14.nóvemberárið 1999 -  sat í hljóðveri Bylgjunnar kona að nafni Sigrún Gunnarsdóttir. Hún sagði hlustendum af óvanlegu lífi sínu og einni sárustu lífsreynslu móður; að missa barnið sitt. Á þessum tíma var erfitt að komast að hjá Sigrúnu sem hjálpaði á einhvern óútskýranlegan hátt þeim sem veikir voru. Frá þessum tíma hef ég af og til fylgst með henni og frábæra manninum hennar honum Finnboga. Veit að hún átti sér drauma sem hún vildi sjá rætast, en eins og fyrr var eins og óútskýranleg öfl frestuðu  stundum framkvæmdum hjá henni. En nú hefur stóri draumurinn ræst, hún opnaði nýverið Skógarsetrið við Grensásveg þar sem starfa saman nokkrar góðar konur. Þar verður haldið Hugleiðslu og draumanámskeið um helgina, þar eru starfræktir bænahringir og margt annað sem gerir sálinni gott. Frá þessu öllu og mögnuðum manneskjum sem hún hefur kynnst segir Sigrún okkur í kvöld.

Við Sigrún höfum oft rætt að það séu engar tilviljanir til. Svo mikið er víst að ef hún hefði ekki verið bókuð í Kvöldsögur í kvöld, hefði ekkert orðið af þeim þar sem “stjórnandinn” er illa haldin af brjósthimnubólgu, búin að sofa meira og minna í allan dag og er nú að hella í sig sterku kaffi til að geta vakað til miðnættis. Svo er auðvitað aldrei að vita hvað gerist í hljóðstofu í kvöld með þessa sterku konu mér við hlið: Kannski verð ég albata bara við að sjá hana. Hún segist koma með lög með sér sem eigi eftir að koma öllum þeim sem þekkja hana verulega á óvart. Sjálf er ég orðin forvitin.

Saga af sárum missi, stórum sigrum, dagdraumum og draumum sem rætast milli klukkan tíu og tólf í kvöld á Bylgjunni.

verið stillt - á Bylgjuna, FM 98.9

kær kveðja

Anna Kristine

Ingólfur Margeirs og Sæmi rokk, nýja tvíeykið!

5. nóvember 2007 / 22.50 / kvoldsogur

Það er skrýtið að vera handlama og geta ekkert gert. Slá inn texta með vinstri hendi og einum og einum fingri hægri handar. Skrýtið að geta ekki keyrt bíl, ekki ryksugað, ekki blásið á sér hárið, ekki sent sms nema með vinstri hendi og eiga erfitt með að halda á símtóli. Allt getur gerst, líka þetta. En röddin fór ekki neitt, ekki ennþá að minnsta kosti, svo við Ingólfur Margeirsson höfum um helgina planað næstu Kvöldsögur símleiðis. Hann er náttúrlega svo vanur að koma fram í útvarpi, líkt og sme var síðasta fimmtudag að ég hef engar áhyggjur af að þurfa að senda honum spurningalista. Við spilum þetta af fingrum fram og það er annað sem ég hef engar áhyggjur af: Það er að Ingólfur verði leiðinlegur. Það er hann nefnilega aldrei. Tveimur tímum áður en Kvöldsögur fara í loftið verður Heilaheill með styrktartónleika í Salnum, og þar sem Ingólfur fékk heilablóðfall á ég ekki von á öðru en hann komi við í Kópavoginum áður en hann lítur við í hljóðveri Bylgjunnar. Það er hægt að lofa fallegum Bítlalögum þetta kvöld, og líka lærdómsríkri sögu sem verður ekki dapurleg þótt aðstæður gætu gert hana þannig.

Verið stillt. Verið líka stillt á Bylgjuna klukkan tíu á fimmtudagskvöldið.

kær kveðja og góða nótt

Anna Kristine

annakristine@bylgjan.is

Með ritstjóra DV í viðtali og vita ekki neitt!

2. nóvember 2007 / 3.28 / kvoldsogur

Eins og ég lofaði í auglýsingunum fyrir þáttinn í kvöld, þá kom saga Sigurjóns M.Egilssonar mörgum á óvart.(sá það á sms-um og tölvupóstum eftir þáttinn)  Hann er nefnilega allt öðruvísi en þeir sem ekki þekkja hann halda. Eins og konan sem eyddi tíma og orku í að skrifa á vefinn að hún þyldi hann ekki. Kona, sem hafði aldrei hitt hann! Voðaleg þröngsýni er það að halda að maður geti dæmt einhvern sem maður hefur aldrei hitt og aldrei talað við. Eða kannski er þetta ekki þröngsýni heldur heimska og hroki.

Sigurjón var kannski í erfiðri aðstöðu þegar hann kom í viðtalið, því aðeins nokkrum klukkustundum áður mátti lesa á vefmiðlinum eyjan.is að verið væri að sameina DV, dv.is og Mannlíf á fréttasvið og yrði sviðsstjóri Reynir Traustason, sem er líka ritstjóri á DV,en hefur verið mun skemur í þeirri stöðu en sme. Mikill pirringur varð á vinnustaðnum, því fram til þessa hefur það talist til kurteisi að láta starfsfólk vita af fyrirhuguðum breytingum ÁÐUR en þær leka út og eru komnar á Veraldarvefinn. Ég veit að mörgum  starfsmönnum brá í brún í dag þegar þeir sáu þessar fréttir á eyjunni. En Sigurjón svaraði heiðarlega að hann hefði ekki vitað neitt sjálfur fyrr en í gær (miðvikudag) þegar honum var sagt frá skipulagsbreytingum. Þetta er nú bara beinlínis ljótt. Sigurjón tók við DV um áramótin í lélegri sölu og gerði úr því skemmtilegt og söluvænlegt blað. Allt í einu er kominn við hlið hans annar ritstjóri og skömmu síðar er búið að sameina nokkra mikilvæga þætti fyrirtækisins og Sigurjón, sme, ritstjóri og ábyrgðarmaður DV í raun þá orðinn undirmaður Reynis ef við hérna erum að lesa rétt í fréttirnar. Mar, mar,mar,mar,mar bara skilur þetta ekki eins og Ragnar Reykás segir. Ekki veit ég hvað þetta þýðir fyrir framtíð og stöðu blaðamannanna sem á DV starfa. Í dag er sagt að ekkert breytist en hvað veit maður svosem? Svona endalausar hræringar í fjölmiðlaheiminum fá alla vega mig til að fallast hendur og hugsa með eftirsjá til þess tíma þegar ég var læknaritari. Frá 1. mars 2006 fram til dagsins í dag, 1. nóvember 2007 hef ég haft sex ritstjóra á DV. Finnst einhverjum þetta eðlilegt? Ekki mér, sem var vön að hafa bara minn ritstjóra /yfirmann árum saman. Fjölmiðlaheimurinn er harður heimur að þessu leyti, fólk veit yfirleitt ekki hvort það er að koma eða fara og veit aldrei hvenær það á von á uppsagnarbréfinu. Skyldu einhverjir hafa fengið uppsagnarbréf í kvöld - eða fá þeir það á morgun? Kannski kom einhver heim til mín í kvöld með uppsagnarbréfið mitt, en ég var ekki heima því ég var á Bylgjunni með Sigurjóni. Eðlilegt hefði verið að fólk fengi sitt uppsagnarbréf í gær, 31.október, þar sem uppsögn miðast við mánaðamót. Ég vona svo innilega að engum hafi verið sagt upp. Það er ömurlegt að vera rekinn og ég finn alltaf til með fólki sem lendir í þeim leiðindapakka án þess að hafa nokkuð til saka unnið annað en kannski bara það að hafa mætt með ljót gleraugu eða í peysu í lit sem yfirmaðurinn þoldi ekki. Það al versta sýnist mér vera á þessu dæmi að haldnir hafi verið einhverjir plottfundir í bakið á Sigurjóni og ef það er eitthvað sem ég þoli ekki þá er það baktjaldamakk og plott. Og hana nú. Þeir sem koma hreint fram og segja hlutina eins og þeir eru fá á sig að þeir séu frekjuhundar. Ég kýs frekar heiðarlega frekjuhunda en plottara, án þess ég viti neð vissu hvort einhverjir plottarar hafi ákveðið framtíð DV,dv.is og Mannlífs - og þar með framtíð einhverra blaðamanna. Það eru allir að gera sitt besta og enginn átti von á því sem gerðist í dag og við lásum um á vefmiðlinum eyjan.is

góða nótt

anna kristine

Bylgjan.

fyrir þá sem misstu af viðtalinu við Sigurjón Magnús, bendi ég á að það verður  komið inn á vefinn upp úr hádegi á morgun (föstudag) og verður endurflutt á Létt Bylgjunni FM 96.7 á sunnudagskvöldið klukkan tíu. Þetta er viðtal sem vert er að hlusta á, það get ég sagt ykkur.


Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning