Með ritstjóra DV í viðtali og vita ekki neitt!
Eins og ég lofaði í auglýsingunum fyrir þáttinn í kvöld, þá kom saga Sigurjóns M.Egilssonar mörgum á óvart.(sá það á sms-um og tölvupóstum eftir þáttinn) Hann er nefnilega allt öðruvísi en þeir sem ekki þekkja hann halda. Eins og konan sem eyddi tíma og orku í að skrifa á vefinn að hún þyldi hann ekki. Kona, sem hafði aldrei hitt hann! Voðaleg þröngsýni er það að halda að maður geti dæmt einhvern sem maður hefur aldrei hitt og aldrei talað við. Eða kannski er þetta ekki þröngsýni heldur heimska og hroki.
Sigurjón var kannski í erfiðri aðstöðu þegar hann kom í viðtalið, því aðeins nokkrum klukkustundum áður mátti lesa á vefmiðlinum eyjan.is að verið væri að sameina DV, dv.is og Mannlíf á fréttasvið og yrði sviðsstjóri Reynir Traustason, sem er líka ritstjóri á DV,en hefur verið mun skemur í þeirri stöðu en sme. Mikill pirringur varð á vinnustaðnum, því fram til þessa hefur það talist til kurteisi að láta starfsfólk vita af fyrirhuguðum breytingum ÁÐUR en þær leka út og eru komnar á Veraldarvefinn. Ég veit að mörgum starfsmönnum brá í brún í dag þegar þeir sáu þessar fréttir á eyjunni. En Sigurjón svaraði heiðarlega að hann hefði ekki vitað neitt sjálfur fyrr en í gær (miðvikudag) þegar honum var sagt frá skipulagsbreytingum. Þetta er nú bara beinlínis ljótt. Sigurjón tók við DV um áramótin í lélegri sölu og gerði úr því skemmtilegt og söluvænlegt blað. Allt í einu er kominn við hlið hans annar ritstjóri og skömmu síðar er búið að sameina nokkra mikilvæga þætti fyrirtækisins og Sigurjón, sme, ritstjóri og ábyrgðarmaður DV í raun þá orðinn undirmaður Reynis ef við hérna erum að lesa rétt í fréttirnar. Mar, mar,mar,mar,mar bara skilur þetta ekki eins og Ragnar Reykás segir. Ekki veit ég hvað þetta þýðir fyrir framtíð og stöðu blaðamannanna sem á DV starfa. Í dag er sagt að ekkert breytist en hvað veit maður svosem? Svona endalausar hræringar í fjölmiðlaheiminum fá alla vega mig til að fallast hendur og hugsa með eftirsjá til þess tíma þegar ég var læknaritari. Frá 1. mars 2006 fram til dagsins í dag, 1. nóvember 2007 hef ég haft sex ritstjóra á DV. Finnst einhverjum þetta eðlilegt? Ekki mér, sem var vön að hafa bara minn ritstjóra /yfirmann árum saman. Fjölmiðlaheimurinn er harður heimur að þessu leyti, fólk veit yfirleitt ekki hvort það er að koma eða fara og veit aldrei hvenær það á von á uppsagnarbréfinu. Skyldu einhverjir hafa fengið uppsagnarbréf í kvöld - eða fá þeir það á morgun? Kannski kom einhver heim til mín í kvöld með uppsagnarbréfið mitt, en ég var ekki heima því ég var á Bylgjunni með Sigurjóni. Eðlilegt hefði verið að fólk fengi sitt uppsagnarbréf í gær, 31.október, þar sem uppsögn miðast við mánaðamót. Ég vona svo innilega að engum hafi verið sagt upp. Það er ömurlegt að vera rekinn og ég finn alltaf til með fólki sem lendir í þeim leiðindapakka án þess að hafa nokkuð til saka unnið annað en kannski bara það að hafa mætt með ljót gleraugu eða í peysu í lit sem yfirmaðurinn þoldi ekki. Það al versta sýnist mér vera á þessu dæmi að haldnir hafi verið einhverjir plottfundir í bakið á Sigurjóni og ef það er eitthvað sem ég þoli ekki þá er það baktjaldamakk og plott. Og hana nú. Þeir sem koma hreint fram og segja hlutina eins og þeir eru fá á sig að þeir séu frekjuhundar. Ég kýs frekar heiðarlega frekjuhunda en plottara, án þess ég viti neð vissu hvort einhverjir plottarar hafi ákveðið framtíð DV,dv.is og Mannlífs - og þar með framtíð einhverra blaðamanna. Það eru allir að gera sitt besta og enginn átti von á því sem gerðist í dag og við lásum um á vefmiðlinum eyjan.is
góða nótt
anna kristine
Bylgjan.
fyrir þá sem misstu af viðtalinu við Sigurjón Magnús, bendi ég á að það verður komið inn á vefinn upp úr hádegi á morgun (föstudag) og verður endurflutt á Létt Bylgjunni FM 96.7 á sunnudagskvöldið klukkan tíu. Þetta er viðtal sem vert er að hlusta á, það get ég sagt ykkur.
2. nóvember 2007 kl. 3.28
Ég verð nú að segjast vera sammála þér. Það er of mikið um að starfsfólk fær ekkert að vita fyrr en allt er um garð gengið. Þá verður starfsfólkið óöruggt um stöðu sína og vinnur miklu verr. Ég hef aldrei skilið þá heimsku yfirmanna að tala ekki við starfsfólkið um leið og búið er að ákveða breytingar í fyrirtækinu. Það er eins og stjórnarmenn og yfirmenn líti ekki á starfsfólkið sitt eins og manneskjur. Ég held að fyrirtæki sem koma illa fram við starfsfólkið sit fari á hausinn fyrr heldur en seinna.
kl. 3.28
Sammála vinkonu minni hér að ofan. Hins vegar var ég mjög hrifin af viðtlinu við hann Sigurjón. Ég man eftir honum úr Hagaskólanum og þótti hann alltaf svolítið spennandi. Hann þorði svo mörgu sem aðrir þorðu ekki. Ég varð svolítið hissa þegar ég sá að hann var orðinn blaðamaður, fannst hann einhvern veginn alltaf svona sjómaður í eðli sínu. En hann er fínn blaðamaður og það væri vont held ég, ef hann hættir á DV. Hann er fínt mótvægi við götustrákinn að vestan. Svo finnst mér endilega að þið ættuð að fara að hætta að bjóða okkur upp á eintóm barnaheimilismál og mistnotkunarmál. Þau eru alveg farin að missa marks. Getið þið ekki reynt að vera aðeins jákvæðari? Ég vil ekki missa DV af markaði, en vil hana það jákvæðara.