Ef guð og heilsan lofar…
…verður afar áhugaverð lífssaga í Kvöldsögum annað kvöld. Bryndís Guðmundsdóttir, talmeinafræðingur ætlar þar af segja okkur af lífi sínu, en hún er alin upp hjá heyrnarlausri móður og gaf nýverið út bók fyrir börn þar sem hún hjálpar þeim að feta þann veg. Bryndís hefur verið borgarstjórafrú, er núverandi bæjarstjórafrú en fyrst og fremst er hún talmeinafræðingur sem ekkert hefur breytt. Dugnaðarforkur sem hefur látið til sín taka á ótal mörgum sviðum þar sem hún hefur hjálpað fólki sem á erfitt með tal og heyrn. Í kvöld verður dóttir hennar, Védís Hervör Árnadóttir, söngkona með útgáfutónleika og við fáum að heyra lög af nýju plötunni hennar og Bryndís segir okkur líka af því þegar ástin kom inn í lífið, af markverðum rannsóknum sem hún hefur unnið að, hvernig það var að flytjast úr stórborginni og og og og. En allt veltur þetta á heilsuleysi stjórnandans og góðvild tæknimanna sem eru reiðubúnir að gera viðtalið þannig úr garði að það sé sæmandi útvarpshlustendum.
Verið stillt, bæði í umferðinni, heima hjá ykkur, á vinnustaðnum og á Bylgjuna kl. 22 annað kvöld, fimmtudag.
kær kveðja
Anna Kristine
28. nóvember 2007 kl. 8.18
âûâîç ñòðîèòåëüíîãî ìóñîðà…
âûâîç ñòðîèòåëüíîãî ìóñîðà…
kl. 8.18
medication…
pharmacy…