Kvöldsögur á Bylgjunni

Tvær og hálf vika og leitin að Dr. House
Þann 28. nóvember skrifaði ég í bjartsýniskasti að ef Guð og heilsan lofaði yrði Bryndís Guðmundsdóttir, talmeinafræðingur, gestur minn í Kvöldsögum þann 29. nóvember. Svo varð ekki, enda er lífið nú einu sinni þannig að stundum tekur það óvænta stefnu með engum fyrirvara og maður getur ekki rönd við reist. Af þeim orsökum höfum við endurflutt nokkurra ára gömul viðtöl í Kvöldsögum. Þetta hafa verið viðtöl sem fólk hafði beðið um að heyra aftur og vonum við að við höfum getað komið til móts við óskir margra með þessum hætti.

Til að geta unnið þarf maður heilsu og til að finna heilsuna þarf maður að gefa sér þann tíma sem til þarf.  Ég er á fullu að leita að minni - hún er einhvers staðar og þegar ég finn Dr. House þá skýrist nú margt held ég!  Nú er bara að taka á æðruleysinu og gera sér grein fyrir því að ef maður getur ekki breytt hlutunum þá er það eina í stöðunni að sætta sig við þá. Allt batnar og breytist með hækkandi sól

Njótið helgarinnar og hátíðarinnar,

bestu kveðjur frá

Önnu Kristine.

Ef guð og heilsan lofar…
…verður afar áhugaverð lífssaga í Kvöldsögum annað kvöld. Bryndís Guðmundsdóttir, talmeinafræðingur ætlar þar af segja okkur af lífi sínu, en hún er alin upp hjá heyrnarlausri móður og gaf nýverið út bók fyrir börn þar sem hún hjálpar þeim að feta þann veg. Bryndís hefur verið borgarstjórafrú, er núverandi bæjarstjórafrú en fyrst og fremst er hún talmeinafræðingur sem ekkert hefur breytt. Dugnaðarforkur sem hefur látið til sín taka á ótal mörgum sviðum þar sem hún hefur hjálpað fólki sem á erfitt með tal og heyrn. Í kvöld verður dóttir hennar, Védís Hervör Árnadóttir, söngkona með útgáfutónleika og við fáum að heyra lög af nýju plötunni hennar og Bryndís segir okkur líka af því þegar ástin kom inn í lífið, af markverðum rannsóknum sem hún hefur unnið að, hvernig það var að flytjast úr stórborginni og og og og.  En allt veltur þetta á heilsuleysi stjórnandans og góðvild tæknimanna sem eru reiðubúnir að gera viðtalið þannig úr garði að það sé sæmandi útvarpshlustendum.

Verið stillt, bæði í umferðinni, heima hjá ykkur, á vinnustaðnum og á Bylgjuna kl. 22 annað kvöld, fimmtudag.

kær kveðja

Anna Kristine

Englakuldi í hljóðstofu
Þetta var afar merkilegt kvöld. Þannig er að í hljóðstofu Bylgjunnar er alltaf svo sjóðandi heitt að við þurfum að hafa opið fram á gang. Læknirinn sem kom til mín um níuleytið vildi ekki að ég færi í útvarpið heldur á Bráðamóttökuna en ég sagði honum að það væri svo lítið álag í þættinum, ég hallaði mér bara aftur og hlustaði við kertaljós að mér væri ábyggilega óhætt að fara í 2 tíma. Stutt ferð og ekkert álag. Lofaði honum að koma við á Brðamóttökunni á leiðinni heim ef mér væri ennþá svona þungt og með verk í lunganum.Sagði honum að í raun væri þetta bara að fara eins og í einn jógatíma og hugleiðslu. Hann gaf mér tvenns konar lyf, hafði fínan húmor fyrir að ég YRÐI að vera í útvapri annars þyrfti ég að hringla með fullt af fólki á síðustu stundu.Sigrún læknamiðill var góður gestur, hafði frá mörgu að segja og svo gerðist það skrýtna. allt í einu var kaldur vindur sem lék um okkur, engu líkara en við stæðum í kuli, sem straukst við kinnarnar. ég þurfti að fara í úlpuna síðasta hálftímann til að skjálfa ekki af kulda. Sigrún sagði þetta  vera englaorku,Mér er reyndar ekkert batnað, en er ekki svo slæm að ég fari á Bráðamóttökuna nema mér versni í nótt. kannki hafa englarnir fylgt mér heim oglækna mig í nótt, það væri nú yndislegt að vakna heilbrigður á morgun. annars verð ég bara að hlýða og vera í mínu 2ja vikna veikindaleyfi,taka lyf, fara í rannsóknir, hvílast. Þetta er eitt af því sem maður stjórnar þvi miður ekki. Ætla að prófa nudd hjá Sigrúnu á morgun, veit hún hefur gert kraftaverk Ef þið viljið komast í tengsl við hana þá er slóðin skogarsetrid.is

góða nótt og dreymi ykkur vel

bestu kveðjur

anna kristine.

Læknamiðill og reikimeistari í Kvöldsögum
Fyrir nákvæmlega átta árum, næstum upp á dag - minnir það hafi verið 14.nóvemberárið 1999 -  sat í hljóðveri Bylgjunnar kona að nafni Sigrún Gunnarsdóttir. Hún sagði hlustendum af óvanlegu lífi sínu og einni sárustu lífsreynslu móður; að missa barnið sitt. Á þessum tíma var erfitt að komast að hjá Sigrúnu sem hjálpaði á einhvern óútskýranlegan hátt þeim sem veikir voru. Frá þessum tíma hef ég af og til fylgst með henni og frábæra manninum hennar honum Finnboga. Veit að hún átti sér drauma sem hún vildi sjá rætast, en eins og fyrr var eins og óútskýranleg öfl frestuðu  stundum framkvæmdum hjá henni. En nú hefur stóri draumurinn ræst, hún opnaði nýverið Skógarsetrið við Grensásveg þar sem starfa saman nokkrar góðar konur. Þar verður haldið Hugleiðslu og draumanámskeið um helgina, þar eru starfræktir bænahringir og margt annað sem gerir sálinni gott. Frá þessu öllu og mögnuðum manneskjum sem hún hefur kynnst segir Sigrún okkur í kvöld.

Við Sigrún höfum oft rætt að það séu engar tilviljanir til. Svo mikið er víst að ef hún hefði ekki verið bókuð í Kvöldsögur í kvöld, hefði ekkert orðið af þeim þar sem “stjórnandinn” er illa haldin af brjósthimnubólgu, búin að sofa meira og minna í allan dag og er nú að hella í sig sterku kaffi til að geta vakað til miðnættis. Svo er auðvitað aldrei að vita hvað gerist í hljóðstofu í kvöld með þessa sterku konu mér við hlið: Kannski verð ég albata bara við að sjá hana. Hún segist koma með lög með sér sem eigi eftir að koma öllum þeim sem þekkja hana verulega á óvart. Sjálf er ég orðin forvitin.

Saga af sárum missi, stórum sigrum, dagdraumum og draumum sem rætast milli klukkan tíu og tólf í kvöld á Bylgjunni.

verið stillt - á Bylgjuna, FM 98.9

kær kveðja

Anna Kristine

Ingólfur Margeirs og Sæmi rokk, nýja tvíeykið!
Það er skrýtið að vera handlama og geta ekkert gert. Slá inn texta með vinstri hendi og einum og einum fingri hægri handar. Skrýtið að geta ekki keyrt bíl, ekki ryksugað, ekki blásið á sér hárið, ekki sent sms nema með vinstri hendi og eiga erfitt með að halda á símtóli. Allt getur gerst, líka þetta. En röddin fór ekki neitt, ekki ennþá að minnsta kosti, svo við Ingólfur Margeirsson höfum um helgina planað næstu Kvöldsögur símleiðis. Hann er náttúrlega svo vanur að koma fram í útvarpi, líkt og sme var síðasta fimmtudag að ég hef engar áhyggjur af að þurfa að senda honum spurningalista. Við spilum þetta af fingrum fram og það er annað sem ég hef engar áhyggjur af: Það er að Ingólfur verði leiðinlegur. Það er hann nefnilega aldrei. Tveimur tímum áður en Kvöldsögur fara í loftið verður Heilaheill með styrktartónleika í Salnum, og þar sem Ingólfur fékk heilablóðfall á ég ekki von á öðru en hann komi við í Kópavoginum áður en hann lítur við í hljóðveri Bylgjunnar. Það er hægt að lofa fallegum Bítlalögum þetta kvöld, og líka lærdómsríkri sögu sem verður ekki dapurleg þótt aðstæður gætu gert hana þannig.

Verið stillt. Verið líka stillt á Bylgjuna klukkan tíu á fimmtudagskvöldið.

kær kveðja og góða nótt

Anna Kristine

annakristine@bylgjan.is

Með ritstjóra DV í viðtali og vita ekki neitt!
Eins og ég lofaði í auglýsingunum fyrir þáttinn í kvöld, þá kom saga Sigurjóns M.Egilssonar mörgum á óvart.(sá það á sms-um og tölvupóstum eftir þáttinn)  Hann er nefnilega allt öðruvísi en þeir sem ekki þekkja hann halda. Eins og konan sem eyddi tíma og orku í að skrifa á vefinn að hún þyldi hann ekki. Kona, sem hafði aldrei hitt hann! Voðaleg þröngsýni er það að halda að maður geti dæmt einhvern sem maður hefur aldrei hitt og aldrei talað við. Eða kannski er þetta ekki þröngsýni heldur heimska og hroki.

Sigurjón var kannski í erfiðri aðstöðu þegar hann kom í viðtalið, því aðeins nokkrum klukkustundum áður mátti lesa á vefmiðlinum eyjan.is að verið væri að sameina DV, dv.is og Mannlíf á fréttasvið og yrði sviðsstjóri Reynir Traustason, sem er líka ritstjóri á DV,en hefur verið mun skemur í þeirri stöðu en sme. Mikill pirringur varð á vinnustaðnum, því fram til þessa hefur það talist til kurteisi að láta starfsfólk vita af fyrirhuguðum breytingum ÁÐUR en þær leka út og eru komnar á Veraldarvefinn. Ég veit að mörgum  starfsmönnum brá í brún í dag þegar þeir sáu þessar fréttir á eyjunni. En Sigurjón svaraði heiðarlega að hann hefði ekki vitað neitt sjálfur fyrr en í gær (miðvikudag) þegar honum var sagt frá skipulagsbreytingum. Þetta er nú bara beinlínis ljótt. Sigurjón tók við DV um áramótin í lélegri sölu og gerði úr því skemmtilegt og söluvænlegt blað. Allt í einu er kominn við hlið hans annar ritstjóri og skömmu síðar er búið að sameina nokkra mikilvæga þætti fyrirtækisins og Sigurjón, sme, ritstjóri og ábyrgðarmaður DV í raun þá orðinn undirmaður Reynis ef við hérna erum að lesa rétt í fréttirnar. Mar, mar,mar,mar,mar bara skilur þetta ekki eins og Ragnar Reykás segir. Ekki veit ég hvað þetta þýðir fyrir framtíð og stöðu blaðamannanna sem á DV starfa. Í dag er sagt að ekkert breytist en hvað veit maður svosem? Svona endalausar hræringar í fjölmiðlaheiminum fá alla vega mig til að fallast hendur og hugsa með eftirsjá til þess tíma þegar ég var læknaritari. Frá 1. mars 2006 fram til dagsins í dag, 1. nóvember 2007 hef ég haft sex ritstjóra á DV. Finnst einhverjum þetta eðlilegt? Ekki mér, sem var vön að hafa bara minn ritstjóra /yfirmann árum saman. Fjölmiðlaheimurinn er harður heimur að þessu leyti, fólk veit yfirleitt ekki hvort það er að koma eða fara og veit aldrei hvenær það á von á uppsagnarbréfinu. Skyldu einhverjir hafa fengið uppsagnarbréf í kvöld - eða fá þeir það á morgun? Kannski kom einhver heim til mín í kvöld með uppsagnarbréfið mitt, en ég var ekki heima því ég var á Bylgjunni með Sigurjóni. Eðlilegt hefði verið að fólk fengi sitt uppsagnarbréf í gær, 31.október, þar sem uppsögn miðast við mánaðamót. Ég vona svo innilega að engum hafi verið sagt upp. Það er ömurlegt að vera rekinn og ég finn alltaf til með fólki sem lendir í þeim leiðindapakka án þess að hafa nokkuð til saka unnið annað en kannski bara það að hafa mætt með ljót gleraugu eða í peysu í lit sem yfirmaðurinn þoldi ekki. Það al versta sýnist mér vera á þessu dæmi að haldnir hafi verið einhverjir plottfundir í bakið á Sigurjóni og ef það er eitthvað sem ég þoli ekki þá er það baktjaldamakk og plott. Og hana nú. Þeir sem koma hreint fram og segja hlutina eins og þeir eru fá á sig að þeir séu frekjuhundar. Ég kýs frekar heiðarlega frekjuhunda en plottara, án þess ég viti neð vissu hvort einhverjir plottarar hafi ákveðið framtíð DV,dv.is og Mannlífs - og þar með framtíð einhverra blaðamanna. Það eru allir að gera sitt besta og enginn átti von á því sem gerðist í dag og við lásum um á vefmiðlinum eyjan.is

góða nótt

anna kristine

Bylgjan.

fyrir þá sem misstu af viðtalinu við Sigurjón Magnús, bendi ég á að það verður  komið inn á vefinn upp úr hádegi á morgun (föstudag) og verður endurflutt á Létt Bylgjunni FM 96.7 á sunnudagskvöldið klukkan tíu. Þetta er viðtal sem vert er að hlusta á, það get ég sagt ykkur.

Sterk viðbrögð við Kvöldsögum í gær
Hef sjaldan fengið jafn sterk viðbrögð við nokkru viðtali og því sem var í Kvöldsögum í gærkvöldi. Þar sögðu Þórey Þórisdóttir og Ólafur Geir Jóhannesson frá skilnaði sínum, en þau skildu eftir tólf ára hjónaband þegar Ólafur Geir sá að hann gat ekki afneitað tilfinningum sínum og sjálfum sér. Hann varð ástfanginn af karlmanni. Þetta var afar óvenjuleg saga og þau sýndu bæði mikinn þroska þegar þau fóru gegnum skilnaðarferlið.

Það var ekki rétt sem ég skrifaði á bloggið síðast að Þórey hafi verið svaramaður Ólafs Geirs þegar hann gifti sig aftur árið 2000, - eða réttara sagt: fór í staðfesta samvist. Hún var hins vegar ein kátasta konan í brúðkaupsveislunni (má segja brúðkaupsveisla þegar hommar gifta sig? Spyr sá sem ekki veit, það verður allt vitlaust ef maður notar ekki “réttu” orðin!) enda skiptir lífshamingja Ólafs Geirs hana miklu máli.

Er búin að vera um allan bæ í dag. Dagurinn byrjaði hjá flugfélaginu Erni þangað sem ég fór að sækja vinkonu mína sem var að koma austan af Höfn, fór í Kringluna, Perluna og svo í Röntgen Domus. Síminn hefur hringt látlaust eftir að ég kom heim og hvar sem ég kom hitti ég fólk sem hrósaði þeim Þóreyju og Óla Geir. Fólk hafði á orði hversu miklu æðruleysi Þórey býr yfir og hversu einlægur Ólafur Geir hafði verið í að segja frá því að hann hafi í raun hafnað sjálfum sér um árabil. Það hafa verið svo sterk og falleg viðbrögð við viðtalinu að ég man varla eftir öðru eins. Er alveg viss um að þetta viðtal hefur hjálpað einhverjum sem stendur í sömu sporum og þau hjónin gerðu á sínum tíma, því einn sem heyrði kynninguna á Bylgjunni áður en þátturinn hófst, en heyrði ekki nöfn viðmælanda spurði: “Ertu að fara að taka viðtal við  ……..?” Nei, svaraði ég. “Nú. Ertu þá að fara að tala við …….?” Nei, þau heita Ólafur Geir og Þórey.  - Þá kom í ljós að þessi maður þekkir tvo menn sem hafa staðið í þeim sporum að horfast í augu við eigin tilfinningar og slitið í framhaldi af því hjónabandi. Hversu algengt er þetta? velti ég fyrir mér. Getur einhver svarað því?

Nú hefði ég átt að sitja um borð í flugvél Iceland Express á leið til Lúxemborgar í boði vinkonu minnar sem þar býr. Þar ætluðum við þrjár vinkonur úr Verzló að njóta lífsins eina helgi… En lífið er þannig að maður getur ekki gert allt sem mann langar. Eða eins og Hörður Torfason orðar það í texta sínum: Þú færð ekki allt sem þú vilt og þú vilt ekki allt sem þú færð!

Viðtalið við Þóreyju og Ólaf Geir er komið inn á Netið og það verður líka endurflutt á Létt Bylgjunni FM 96.7 kl. 22 á sunnudagskvöldið.

Næsta fimmtudagskvöld verður gestur minn maður sem hefur upplifað margt og hefur einstaka frásagnargáfu. Hann heitir Sigurjón Magnús Egilsson, var um árabil til sjós, gerðist óvænt fréttaritari DV í Ólafsvík og ritstýrir nú DV. Ég veit smá hluta af lífssögu hans, langar að vita meira og veit að þið munuð hafa gaman af að heyra í Sigurjóni.

Góða helgi.

Anna Kristine.

Óvenjulegur skilnaður, óvenjulegt samband, óvenjulegt framhald
Nú er matartími og í stað þess að borða enn eina rækjusamlokuna sit ég við tölvuna til að segja ykkur af næstu viðmælendum í Kvöldsögum.

Þegar Þórey og Ólafur Geir ákváðu að slíta hjónabandi sínu, var það af ástæðum sem fáir upplifa. Eins og flestir vita eru skilnaðir of algengir hér á landi og mat margra er það að fólk reyni ekki nóg til að halda hjónabandinu gangandi. Slíku var ekki fyrir að fara hjá þeim Þóreyju og Óla Geir. Það varð ekki aftur snúið, en spurningin er hvernig þeim tókst að halda vináttu og trausti eins og ekkert hefði í skorist. Svo mikil vinátta ríkir á milli þeirra að þegar Ólafur Geir gifti sig aftur var Þórey svaramaður hans.

Þau hafa nú bæði byrjað “nýtt líf”. Þórey á lítið barn auk barnanna sem þau Ólafur Geir eiga saman og Óli Geir sinnir danskennslunni sem aldrei fyrr. Ólafur Geir Jóhannesson er danskennari sem er vanur að tala við ókunnuga og því á ég ekki von á neinu öðru en að hann segi okkur söguna alla af fullkomnum heiðarleika í þættinum á fimmtudagskvöldið. Hann hefur upplifað margt óvanalegt í lífinu - og ef hann skortir orð mætir Þórey örugglega og segir sína hlið á málunum. Þetta verður örugglega skemmtilegt viðtal, í það minnsta get ég lofað ykkur því að það verður harla óvenjulegt og ólíkt öðrum viðtölum sem við eigum að venjast.

Munið: Kertaljós, kakó og Kvöldsögur klukkan tíu á fimmtudagskvöldið

bestu kveðjur

Anna Kristine

annakristine@bylgjan.is

Trúin á það góða
Fimmtudagar eru “töff”dagar. Þá fer blaðið sem ég skrifa fyrir, helgarblað DV, í prentun og það er alltaf mikið fjör í vinnunni þegar við erum að leggja lokahönd á það. Kom við á gamla góða pósthúsinu á heimleiðinni. Hélt í alvöru að það væri ennþá í Pósthússtræti en auðvitað er inngangurinn núna frá Austurstræti. Þar biðu mín tveir pakkar, Vinjettubókin hans Ármanns Reynissonar og svo fimm kílóa kassi af fatnaði, bókum, blöðum og ýmsu notalegu frá Ameríku. Konan sem afgreiddi mig á póstinum heilsaði mér svo fallega og innilega að hún lyfti mér upp í hæstu hæðir.

Ég verð að segja alveg eins og er, að ég er eiginlega búin að vera í smá sjokki eftir að hafa horft á fund borgarstjórnar á þriðjudaginn. Mér fannst sumir borgarfulltrúanna okkar svo yfirmáta ókurteisir og nota svo dónaleg orð að ég varð miður mín. Hef mikið verið að hugsa um það síðan hversu miklu máli skiptir að fólk fari ekki í persónulegar árásir þótt menn greini á í málefnum. Um tíma gerði ég það sjálf í vanmætti mínum að fara á lágt plan þegar mig skorti rök. Ég virkilega vann í því að breyta slíkri framkomu því hún var sjálfri mér til mjög mikillar vansæmdar. Ég vona að umræddir borgarfulltrúar horfi á sjálfa sig af myndbandi og læri af mistökum sínum. Persónulegar árásir hitta alltaf þann fyrir sem þeim beitir

Á DV vinn ég með mörgu ungu fólki. Þau eru sum eitthvað um þrjátíu árum yngri en ég, en þau eru hvert öðru yndislegri. Það er svo frábært að kynnast vel uppöldu ungu fólki sem er reiðubúið að gera allt til að skapa góðan starfsanda á vinnustað. Mér sýnist að sú kynslóð, “krakkar” fæddir frá 1980 sé almennt talað fólk sem ég myndi treysta til að stjórna borg og landi. Jákvæð, kurteis, vinnusöm, hörkudugleg og yndisleg í alla staði.

Til þess að komast áfram í lífinu þarf maður að hafa trú. Trú á verkefnum lífsins, trú á sjálfum sér. En sumir eiga sterkari trú en aðrir og gera allt sem þeir geta til að breiða út boðskapinn. Einn þeirra sem það gerir er Kolbeinn Sigurðsson, sem ætlar að segja okkur sögu sína í Kvöldsögum á eftir. Hann er menntaður lífeindafræðingur sem upplifði eins og margir unglingar að ánetjast í net Bakkusar. Þegar hann sá konuna sína í fyrsta skipti vissi hann að þetta ætti eftir að verða konan hans. En Bakkus hélt honum föstum og hafði nánast tekist að eyðileggja hjónabandið. Það var þá sem Kolbeinn fann trúna innra með sér og frá þeim degi varð allt breytt. Kolbeinn hefur farið í fátækustu ríki Afríku og þar hefur hann orðið vitni að hverju kraftaverkinu á fætur öðru.

Frá þessum kraftaverkum, lífinu og fólkinu í Rúanda, Úganda, Kongó og víðar ætlar Kolbeinn að segja okkur í Kvöldsögum sem hefjast klukkan 22 í kvöld. Sé að núna er klukkan að nálgast hálf níu, þannig að mér er ekki til setunnar boðið. Þarf að lokka sambýlismanninn inn, hita kakó handa okkur Geir og finna geisladiskinn með fallega laginu sem svo margir hafa beðið mig að hefja þáttinn í kvöld á.

kertaljós, kakó og kvöldsaga klukkan tíu í kvöld á Bylgjunni,

bestu kveðjur

Anna Kristine

Beinar og óbeinar reykingar
Það er hollt að fara að heiman. Heimsækja önnur lönd og kynnast viðhorfum fólks þar. Milli þátta á Kvöldsögum var ég í Prag. Það var ótrúlega oft sem ég hugsaði til Þórdísar Tinnu Aðalsteinsdóttur sem sagði sína kvöldsögu í fyrrakvöld. Hún er 38 ára móðir níu ára stúlku og er með krabbamein á lokastigi í lunga. Lokastig í huga Þórdísar þýðir ekki endalok heldur það að þá ljúki ferlinu og hún verði aftur frísk. Ástæða þess að Þórdís Tinna var mér svo ofarlega í huga í þessari ferð voru sígarettureykingarnar í Prag sem virðast hafa stórlega aukist. Þegar starfsmaður í hótelafgreiðslu gat varla komið út úr sér orðunum fyrir reyknum sem liðaðist út um munn hans og inn í vitund gesta sem í mesta sakleysi voru að reyna að fá hótellykilinn sinn, langaði mig að spyrja hann hvort Tékkar væru yfirleitt ekkert meðvitaðir um áhrif óbeinna reykinga. Þórdís Tinna sagði  í viðtalinu frá því að hún hefði sjálf starfað í sautján ár í veitingabransanum, innan um reykjandi gesti.  Það reyktu bókstaflega allir í Prag. Úti á götu, inni á veitingastöðum - já hvar sem var. Ég minnist þess ekki í öllum þeim tugum ferða sem ég hef farið til borgarinnar að hafa séð jafn marga reykja. Held það ætti að þýða viðtalið við hana Þórdísi Tinnu yfir á tékknesku og biðja tékkneska ríkisútvarpið að senda það út.  Kæmist ekki inn á Radio Free Europe, því þeir eru gjörsamlega búnir að tapa sér í hræðslu eftir 11.september. RFE er víggirt, umkringt öryggisvörðum og lögreglumönnum. Sé nú ekki alveg að það gegni svo mikilvægu hlutverki að það yrði fyrsta og eina bygging sem hryðjuverkamenn hefðu áhuga á að sprengja í loft upp í Prag.

Sáum ekki nema tvo útigangsmenn allan tímann. Þeir áttu sitt “stæði” á gangstéttum í sitthvoru hverfinu. Voru ekki beinlínis að betla þessar elskur, sátu bara og störðu brostum augum á ríku túristana sem dröttuðust varla úr sporunum vegna þyngdar kristalsins sem þeir báru. Ég hafði eiginlega meiri áhyggjur af hundi annars þeirra. Þvílík sorg úr augum eins hunds…

Næsti gestur í Kvöldsögum getur pottþétt beðið reykingar frá fólki. Ég er sannfærð um það. Kolbeinn Sigurðsson er trúboði sem hefur upplifað svo stór kraftaverk fyrir mátt bænarinnar að reykingar eru ekkert miðað við það sem hann hefur séð með eigin augum. Blindir fá sýn, heyrnarlausir heyra. Þetta eru atburðir sem Kolbeinn Sigurðsson varð vitni að í trúboðsferð til Úganda. Hann hefur látið margt gott af sér leiða síðustu árin og ætlar að segja okkur af ævintýralegum ferðum og guðlegum upplifunum í Kvöldsögum á fimmtudaginn kemur klukkan 22.00

bestu kveðjur, sendið endilega línu ef þið eruð með “óskaefni”.

annakristine@@bylgjan.is