29. september 2007 / 12.21 / kvoldsogur
Regnkápuleiðangurinn sem ég sagði frá í Kvöldsögum í fyrrakvöld reyndist ekki eitthvað sem bara ég hef upplifað. Hef heyrt í konum sem nota fatastærðir yfir nr. 12 sem hafa lent í svipuðum upplifunum. Fyrir þá sem ekki heyrðu var þetta svona:
Góðan dag. Voruð þið ekki að auglýsa regnkápur á útsölu?
Afgreiðslukonan, fullorðin kona, mælir mig út og svarar kuldalega:”Jú en við seljum ekki svona stórar stærðir.”
Nú? Er 34 stór stærð? (aldrei verið eins fljót að ljúga!)
Undrunarsvipur: “Ertu ekki að leita að kápu á þig?”
Nei, ég er að athuga regnkápu í stærð 34 fyrir aðra.
Nú, svoleiðis. (væmnistónninn tekur yfir). Það hefur nú voðalega mikið selst hjá okkur í morgun en ég er hér með nokkrar voðalega fallegar og…
Nei fyrirgefðu frú. Ég bara má til með að segja þér að þú ert ókurteis og þótt þetta væri eina búðin á landinu sem seldi regnkápur myndi ég ekki versla við ykkur. Takk fyrir.
Ég vona að þessi sölukona hafi verið eigandi búðarinnar. Það væri ekki gott fyrir eigandann að hafa svona starfsmann sem fælir ekki einn viðskiptavin frá, heldur miklu fleiri. Við vinkonurnar erum að búa til lista yfir búðir sem varast skal að fara inn í ef maður vill ekki alveg láta velta sér upp úr því að maður sé kannski í þyngri kantinum. Okkur finnst það eiginlega ekki vera í verkahring afgreiðslufólks að gera lítið úr okkur. Við erum alveg nógu duglegar sjálfar að rífa okkur niður þegar sá gállinn er á okkur og þurfum enga utanaðkomandi aðstoð til þess! Núna erum við komnar með þrjár verslanir á listann. Hann verður opinberaður þegar þær verða orðnar tíu.
Laugardagsmorgunn með Simma og Jóa var fínn. Þeir passa sig á að mann langi ekki að kúra með þeim, heldur virkilega koma sér í gírinn, þvo og þrífa og undirbúa komandi viku.
Næsta fimmtudag verð ég með þekktan mann í hljóðverinu. Hann virkar mikill töffari, er eins og Víkingur að sjá en þegar farið er að tala við hann kemur í ljós eitthvert mesta ljúfmenni sem ég hef hitt. Svo þegar síst varir dregur hann fram gítar og syngur sænskar ástarvísur. Skemmtileg hlið á Skólavörðustígsmanninum í næstu Kvöldsögum.
Njótið dagsins, kærar kveðjur
Anna Kristine
annakristine@bylgjan.is