Er farin

3. febrúar 2009 kl. 22.13 | 73 ummæli

Ég hef ákveðið að blogga á Eyjunni. Vonandi kíkið þið þangað inn :-)

http://blog.eyjan.is/lara/

Tekjutengdar barnabætur

30. janúar 2009 kl. 23.15 | 20 ummæli

Barnabætur eru tekjutengdar, sem er svo sem gott og blessað, en þær miðast við tekjur síðasta árs.

Nú þegar ég og fjölmargir aðrir höfum misst vinnuna þá hefði nú getað komið sér vel að fá fullar barnabætur.

En nei, þær miðast við tekjur síðasta árs og því skiptir ekki máli núna hvort tekjurnar séu umtalvert lægri en þá, bæturnar miðast við síðasta ár.

Hefði ég vitað að ég hefði orðið atvinnulaus hefði ég kannski sparast meira á síðasta ári. Hefði ég vitað að allt efnahagskerfið myndi hrynja hefði ég kannski lagt meira til hliðar en ég gerði.

En ég vissi það ekki

Ég get þó huggað mig við það að á næsta ári fæ ég barnabætur í samræmi við tekjur mínar núna. Þá er bara að vona að ég þurfi jafnmikið á þeim að halda!

eða hvað :/ ???

Þetta er ekki svo slæmt!

30. janúar 2009 kl. 14.51 | 29 ummæli

Mikið er nú gott að heyra það að ástandið í efnahagsmálum sé ekki svo slæmt. Geir H. Haarde á að greint frá þessu á fundi Sjalla í dag og lesa má um hér.

Já, ástandið er ekki svo slæmt, Geir.

Eða hvað?

Samkvæmt vef Vinnumálastofnunar þá eru 12.948 án atvinnu. Ef miðað er við að í hverri fjölskyldu séu 3 einstaklingar þá hefur atvinnuleysi nú þegar áhrif á tæplega 40.000 manns!

40.000 manns sem finna verulega fyrir efnahagsvandanum

Nei, ástandið er ekki svo slæmt.

Eða hvað?

Yndislegt :)

29. janúar 2009 kl. 0.18 | 81 ummæli

Mikið finnst mér alltaf snjórinn yndislegur - garðurinn og gatan mín verða svo falleg þegar það liggur snjór yfir öllu. Varð bara að taka mynd af þessu og setja hérna inn svona ykkur til yndisauka :)

Vona að ykkur finnist snjórinn jafn yndislegur og mér og farið svo út og gerið engla :) Það er fátt eins rómantískt og það - sérstaklega ef maður fær einhvern með sér.

Á þessum síðustu og verstu tímum er nefnilega gott að finna barnið í sjálfum sér og leyfa sér stundum að gera það sem óvenjulegt er :)

Aðrar fréttir

27. janúar 2009 kl. 10.27 | 414 ummæli

Seinni part dags í gær var ég komin með upp í kok af pólitískum fréttum. Hvert sem litið var á netinu snerist umræðan um stjórnarslitin sem eðlilegt er. Þá snerust allar fréttir fréttamiðlana einnig um ástandið á Alþingi.

Mig langaði að lesa eitthvað annað líka, um eitthvað skemmtilegt sem gæti lífgað upp á annars erfiðan dag. Það var ekki um auðugan garð að gresja. Ég leitaði lengi og fann að lokum einn bloggara sem fjallaði ekkert um atburði dagsins hér heima. Sá fjallar aldrei um ástandið hérna heima og fannst mér kærkomið að skoða myndir af fræga fólkinu í Hollywood og lesa um hvað það er gera, svona til að hvíla mig á fréttunum sem dundu yfir okkur.

Það getur tekið á andlega að hlusta á of mikið af fréttum þessa dagana. Of sjaldan fáum við að heyra af því jákvæða og margur verður kvíðinn og vonlítill á að heyra fregnir af ástandinu í þjóðfélaginu. Við verðum að passa okkur á að sjá ljósið í þessu skammdegi. Passa börnin okkar líka, því þau spyrja og velta fyrir sér hvað sé eiginlega að gerast. Ein dóttir mín spurði t.d. í gær af hverju þessi kreppa væri alltaf hérna og önnur hélt að forsætisráðherrann væri að deyja.

Þá hefur verið eftir því tekið á mínu heimili að íþróttafréttir hafa mátt víkja fyrir pólitíkinni. Einn meðlimur fjölskyldu minnar spurði sem svo; hva, halda þeir að maður hafi ekki lengur áhuga á HM í handbolta?

Ég vissi ekki einu sinni að það mót stæði yfir!

Drukknum ekki í volæði - munum að brosa og lifa lífinu :)

Nú hefur forsetinn ákveðið að setja væntanlegri stjórn ákveðin skilyrði sem hann sagði fjórþætt. Ég er að mörgu leiti sammála því að þetta sé gert því varla viljum við að sú stjórn sem setjist við völd ákveði til að mynda að boða ekki kosningar.

Eins verður að ríkja sátt um þessa skammtímastjórn og fólk verður að treysta henni til þeirra verka sem bíða fram að kosningum.

Mér þætti ekki heldur óeðlilegt í ljósi þess sem gerst hefur að forsetinn myndi kalla til sérfræðinga utan þings til að gegna hlutverki ríkisstjórnar fram að kosningum.

Það þýðir ekkert að hafa hér allt í hershöndum langt fram á vor. Það er kominn tími á að menn vinni saman að uppbyggingu þessa lands.

Best væri þó ef þingheimur gæti komið sér saman um að vinna að heill íslenkrar þjóðar. Það er jú þeirra hlutverk og það sem hann var kosinn til að gera

Von um betri tíð?

26. janúar 2009 kl. 14.05 | 3 ummæli

Sjálfstæðisflokkurinn hefði aldrei getað orðið við þeirri beiðni Samfó að gefa eftir forsætisráðuneytið. Það eitt að fara fram á slíkt er í raun boð um stjórnarslit því Samfylkingin vissi vel að Sjallar gætu ekki orðið við þessari bón.

Með því að fara fram á þetta er Samfó að lýsa yfir vantrausti á Geir H. Haarde og Þorgerði Katrínu. Hvernig hefði slík ríkisstjórn átt að starfa saman?

Skil vel að Geir og Sjallar hafi hafnað þessu. Enda lyktar tilboðið af því að kosningabaráttan sé hafin.

Nú er bara að sjá hvort Samfó sé tilbúin í þjóðstjórn eins og margur almenningur hefur krafist að undanförnu. Hugsanlega vill hún þó í samstarf með VG en það gæti allt eins skaðað kosningabaráttu þeirra.

Mér virðist nefnilega sem nú séu flokkarnir hættir að hugsa um hag okkar og farnir að huga að kosningum. Vonandi leiðir það ekki til þess að allt fari hér á verri veg, að upplausn ríki og engu verði áorkað fram að kosningum.

Kannski er bara best að fá utanþingsstjórn, fá inn fólk til að sinna daglegum störfum ríkisins fram að kosningum. Þá gæti þjóðstjórn líka gengið upp því þá væru allar flokkar skuldbundnir til að starfa saman í smá tíma. Þeir sem kosninr eru til þing ættu að vera hæfir til þess. Er samt ekki viss um að svo sé

Vonandi verður allt þetta þó að lokum til þess að sátt náist í þjóðfélaginu, að fólk geti horft fram á við og bjartsýni og von fari að gera vart við sig í hjörtum fólks á nýjan leik

Er tími Jóhönnu kominn?

26. janúar 2009 kl. 12.50 | 49 ummæli

www.visir.is Ingibjörg Sólrún: Þarf að finna trúverðugan einstakling til að leiða ríkisstjórn

Ef rétt reynist sem Eyjan og Visir greina frá að í burðarliðnum sé minnihlutastjórn Samfó og Vg þá er spurningin hver er þessi trúverðugi einstaklingur sem Ingibjörg Sólrún nefnir?

Ekki hefur hún sjálf þann trúverðugleika sem þarf og varla er það Össur eða Þórunn eða Kristján. Varla mun Samfó gefa VG forsætisráðuneytið svo eina manneskjan sem kemur til greina og notið hefur trausts almennings er Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra.

Það kæmi mér í það minnsta ekki á óvart ef hún yrði beðin um að leiða slíka ríkisstjórn fram að kosningum.

Hins vegar er stóra spurningin þessi: Mun Sjálfstæðisflokkurinn lúffa fyrir Samfó? Ef hann gerir það, hverjir eiga þá að leiða ríkisstjórnina? Fannst á orðum Ingibjargar að það væri hvorki hún né Geir og þá beinast spjótin aftur að Jóhönnu sem er eini ráðherrann sem nýtur trausts meirihluta kjósenda.

Nú er bara að bíða og sjá

—bætt við kl. 13.07

Nú er ljóst að Sjálfstæðismenn munu ekki gefa eftir forsætisráðuneytið og stjórnarsamstarfi þar með lokið. Ný stjórn er því í burðarliðnum og spennandi að sjá hver kemur til með að leiða þá stjórn. Enn er möguleiki á að það verði Jóhanna en kannski verður sótt út fyrir þing.

Þjóðstjórn segir Geir, en ef Ingibjörg er með starfhæfa stjórn þá er boltinn hjá Samfó


Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Sjónvarp Útvarp Fréttablaðið
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning