fara í valmynd

Viðskiptaráð á villigötum. 16. desember 2009

Fært af leifur undir Óflokkað. rita ummæli

Því miður virðist Viðskiptaráð Íslands ekkert hafa lært af bankahruninu.

1. Tillaga þeirra um sölu Landsvirkjunar sem á Íslandi þýðir einkavinavæðing mundi eins og allstaðar annar staðar þar sem orkufyrirtæki, sem í eðli sínu eru einokunar og fákeppnisfyrirtæki hafa verið einkavædd , leiða af sér verri þjónustu og miklu hærra verð til neytenda.

2. Sala Ríkisútvarpsins væri einfaldlega aðför að lýðræði í landinu þar sem sú hætta væri fyrir hendi að fámennur hópur auðmanna sölsaði undir sig alla fjölmiðla landinu og eingöngu sjónarmið viðskiptaráðs heyrðust, en til þess er sjálfsagt leikurinn gerður af hálfu viðskiptaráðs.

3. Sala á húsnæði í eigu ríkisins til einkaðila þýðir á Íslandi að einkavinir fá húsnæðið keypt fyrir slikk og leigja það síðan til opinberra aðila fyrir háa leigu eftir sitja skattgreiðendur með sárt ennið, en til þess er sjálfsagt leikurinn gerður af hálfu viðskiptaráðs.

4. Tillaga viðskiptaráðs um að gera upptækan lífeyri opinberra starfsmanna til að borga Icesave er einfaldlega stjórnarskrárbrot og þarf ekki að hafa fleiri orð um það.

5. Tillaga um að skattleggja séreignasparnað og hirða 105 milljarða í einu lagi í ríkissjóð og síðan 8 milljarða á ári eftir það gengur ekki upp vegna þess að séreignasparnaðurinn er ekki allur laust fé eins og viðskiptaráð virðist halda og því ekki hægt að hirða 105 milljarða á einu bretti. Gulrótin sem almenningur hefur til að leggja í séreignasparnað er skattfrelsið verði hann skattlagður mun almenningur einfaldlega hætta að leggja fé í séreignasparnað og þessar 8 milljarða skattekjur á ári því aldrei skila sér.

6. Ein stærsta ástæðan fyrir efnahagshruninu á Íslandi var að stjórnvöld tóku mark á viðskiptaráði og hrintu í framkvæmd á 18 ára valdatíma Sjálfstæðissflokksins 90% af því sem frá því kom. Mikilvægt er að viðskiptaráð sýni auðmýkt og biðji þjóðina afsökunar á því gríðarlega tjóni sem það hefur valdið þjóðinni. Einnig er mikilvægt að viðskiptaráð biðji hinar norðurlandaþjóðirnar afsökunar á þeirri fullyrðingu sinni að við getum ekkert lært af þeim vegna þess að við stöndum þeim svo miklu framar, sennilega hrokafyllstu öfugmæli sem nokkurt viðskiptaráð hefur gert sig sekt um.

7. Sýni viðskiptaráð ekki auðmýkt og biðjist afsökunar er einfaldlega ekki hægt að taka það alvarlega.

Ráðning Davíðs sem ritstjóra veruleikafirring á háu stigi. 25. september 2009

Fært af leifur undir Óflokkað. rita ummæli

Ráðning Davíðs Oddssonar sem ritstjóra Morgunblaðsins sýnir veruleikafirringu á háu stigi. Ráðningin sýnir að Sjálfstæðissmenn hafa ekkert lært af bankahruninu og þrátt fyrir að hafa á 18 ára valdatíma sínum sett  eftirtalin met.

a. Heimsmet í aukningu ójafnaðar. 

b.Heimsmet í erlendri skuldasöfnun.

c.Ótvírætt evrópumet í hagstjórnarmistökum

d. Þrátt fyrir skattalækkanir á auðmenn þá settu Sjálfstæðissmenn  norðurlandamet í auknum opinberum umsvifum úr 32% í 47% af landsframleiðslu á 18 ára valdatíma sínum.

e.Engin stjórnmáleiðtogi í lýðræðissríki eftir 1945 hefur valdið jafn miklu tjóni og Davíð Oddsson.

Þrátt fyrir þessar staðreyndir sýnir Sjálfstæðissflokkurinn enga iðrun.

Ráðning Davíðs sem ritstjóra Morgunblaðsins mun verða til þess að auka átök í samfélaginu á viðsjárverðum tímun þegar það er það síðasta sem við þurfum á að halda.

Sjálfstæðissflokkurinn kemur til með að snúast um persónu Davíðs Oddssonar og gera stöðu núverandi forystu flokksins óþolandi, útkoman verður að öllum líkindum sú að flokkurinn verður lítill 15% HÆGRI ÖFGA FLOKKUR.  Ráðningin hinsvegar mun sannfæra fólk um  að Sjálfstæðissflokkurinn er ekki stjórntækur og frumforsenda þess að hér sé hægt að byggja upp gott samfélag er að flokkurinn sé einangraður frá öllum áhrifum í samfélaginu.

Steingrímur er Obama Íslands. 7. ágúst 2009

Fært af leifur undir Óflokkað. rita ummæli

Loksins eftir að fjórir óhæfir Sjálstæðissmenn í röð hafa gegnt embætti fjármálaráðherra hefur þjóðin eignast fjármálaráðherra með bein í nefinu kjark og raunsæi.

Helstu afrek hinna vanhæfu Sjálfstæðismanna . Opinber útgjöld jukust úr 32% af landsframleiðslu 1991 í 47% 2008.

Erlendar skuldir Íslendinga 25 földuðust . Ójöfnuður var aukinn kerfisbundið í gegnum skattakerfið var svipaður og í Danmörku 1991 meiri en í Bandaríkjunum 2007.

Evrópumet í hagstjórnarmistökum, valdníðslu ,hroka og heimsku sem endaði með hruni.

Steingrímur er ekki öfundsverður af því að þurfa að tína saman brotinn .

Kastljósviðtalið sýndi svo ekki um villst að Steingrímur er réttur maður á réttum stað.

Sérstaklega lokaorð Steingríms um nauðsyn þess að hið siðferðilega og efnahagslega gereyðingarvopn Sjálfstæðissflokkurinn komist aldrei aftur til valda á Íslandi.

Steingrímur er Obama Íslands.

Raunverulegir sökudólgar í ICESAVE. 24. júní 2009

Fært af leifur undir Óflokkað. rita ummæli

Það virkar alveg fáranlegt þegar Steingrímur J Sigfússon er allt í einu orðinn aðalsökudólgurinn í ICESAVE af því að það hefur komið í hans hlut að týna saman brotin eftir hina raunverulegu sökudólga.

Sumir telja líka Breta, Hollendinga og ESB til sökudólga það er ekki síður fáránlegt en að telja Steingrím til sökudólga.

Hinir raunverulegu sökudólgar eru . Pólitíkusarnir Davíð Oddson, Halldór Ásgrímsson, Geir Haarde, Finnur Ingólfsson og Valgerður Sverrisdóttir sem öll tóku virkan þátt í að einkavinavæða bankanna með þeim hætti sem gert var.

Stjórnendur Landsbankans Björgólfur Guðmundsson formaður bankaráðsins.

Kjartan Gunnarsson varaformaður bankaráðsins.

Bankastjórarnir Sigurjón Þ Árnasson og Halldór Jón Kristjánsson.

Þetta fólk gerði það sem það gerði með pólitískum stuðningi Sjálfstæðissflokks og Framsóknarflokks ef þessir tveir stjórnmálaflokkar væru ekki til hefði Icesave málið og bankahrunið aldrei komið til.

Fólk sem er flokksbundið í þessum flokkum ber því sína ábyrgð á því sem gerst hefur.

Þolendur eru Íslenskir skattgreiðendur og almenningur. Breskir og Hollenskir sparifjáreigendur sem áttu innistæður á Icesave reikningum auk Sveitarfélaga ,góðgerðarsamtaka, Lögreglumdæma og lögaðila sem líka áttu innistæður á Icesave.Breskir og Hollenskir skattgreiðendur.

Mikilvægt er að menn horfi á staðreyndir þegar menn fjalla um málið en hengi ekki bakara fyrir smið.

Þeir sem nú fara hamförum gegn Icesave samkomulaginu verða að átta sig á því

1. Hverjir eru hinir raunverulegu sökudólgar.

2. Hvað gerist ef við göngum ekki að samkomulaginu.

Það sem gerist ef við höfnum samkomulaginu er

a. Stimplun okkur út úr EES samningnum.

b. Stimplun okkur út úr norrænnu samstarfi.

c. Greiðslumiðlun við útlönd lokast eins og gerðist í þrjár vikur í haust.

d. Algert efnahagslegt og samfélagslegt hrun í kjölfarið.

Ráðning Sigurðar Kára.(Ræður Davíð Öllu) 16. júní 2009

Fært af leifur undir Óflokkað. rita ummæli

Ráðning Sigurðar Kára sem aðstoðarmanns Bjarna Benediktssonar formanns Sjálfstæðssflokksins sýnir svo ekki verður um villst að Davíð Oddsson ræður öllu innan Sjálfstæðissflokksins.

Illugi Gunnarsson  þingflokksformaður er fyrrverandi aðstoðarmaður Davíðs. Sagt er að Bjarni taki engar ákvarðanir án þess að bera þær undir Davíð og að þeir talist daglega við í síma.

Þetta eru skýr skilaboð til evrópusinnaðs miðjufólks í Sjálfstæðissflokknum um að yfirgefa flokkinn og ganga í raðir Samfylkingarinnar.

Sjálfstæðissflokkurinn er hægri öfga flokkur mini útgáfa af Bandaríska Repúblikanaflokknum á ekkert skylt við öfluga hægri flokka  í öðrum evrópulöndum eins og td Venstre í Danmörku, Moderatarna í Svíþjóð eða CDU í Þýskalandi, ráðning hægri öfga mannsins Sigurðar Kára staðfestir það.

Valtýr sjái að sér. 12. júní 2009

Fært af leifur undir Óflokkað. rita ummæli

Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari er hinn mætasti maður hann er hinsvegar vanhæfur til að gegna embættinu vegna sonar síns, en vonandi áttar hann sig á því sjálfur.

Atli Gíslason væri réttur maður á réttum stað í embætti Dómsmálaráðherra við núverandi aðstæður.

Davíðs heilkennið hrjáir nýjan formann. 5. maí 2009

Fært af leifur undir Óflokkað. rita ummæli

Bjarni Benediktsson nýr formaður Sjálfstæðissflokksins getur ekki hugsað sér að Alþingi ákveði að sækja um aðild að ESB.

Það var helst á honum að skilja að formenn stjórnarflokkanna ættu að ákveða þetta og troða síðan málinu í gegnum þingið.

Það voru þau vinnubrögð sem stunduð voru á  Davíðs ,Halldórs Ásgrímssonar tímabilinu frá 1995 til 2005. Þeir gengu jafnvel svo langt að gera Ísland að þáttakanda í árásarstríði gegn Írak án þess að tala við utanríkissmálanefnd Alþingis hvað þá að fá það samþykkt í þinginu.

Á vegum Nato hafa verið haldinn námskeið í lýðræðislegum vinnubrögðum fyrir stjórnendur frá Póllandi og öðrum fyrrum kommúnistaríkjum.

Ekki veitti af að senda þingflokk Sjálfstæðismanna á slíkt námskeið.

Hringlandaháttur Framsóknaríhaldsins.

Fært af leifur undir Óflokkað. rita ummæli

Erfitt er að átta sig á hvað foringjar Framsóknaríhaldsmanna eru að fara í evrópu og gjaldmiðilsmálun.

Ef við byrjum á Sjálfstæðissflokknum þá eru þeir búnir að skipta oftar um skoðun í gjaldmiðilsmálun en nokkrir aðrir.

Í haust var það Svissneskur Franki en síðan að kröfu Davíðs aftur krónan.

Næst stungu þeir upp á Norskri krónu, síðan Dollar, Sænska krónan var heit á tímabili.

Fjórum dögum fyrir landsfund stakk nýkjörinn formaður upp á upptöku evru með ESB aðild en á landsþingi sagði hann að Íslandi væri best borgið utan ESB.

Tveimur dögun eftir landsfund stungu Sjálfstæðismenn uppá Dollar en þrem dögun seinna ákváðu þeir síðan að upptaka evru með aðstoð AGS væri mjög trúverðug. Þegar ESB benti þeim á að það væri ekki hægt sagði Bjarni Ben ESB  að þeim kæmi þetta ekkert við ,frændi hans Björn Bjarnasson bætti um betur og talaði um sívirðilega árás ESB á Sjálfstæðisflokkinn.

Næst leggja þeir sennilega til upptöku evru með aðstoð alþjóða hvalveiðiráðsins.

Landsfundur Framsóknar samþykkti að sækja skyldi um aðild að ESB en með svo hörðum skilyrðum að banna yrði ESB þegnum að eiga sumarbústaði á Íslandi það meiga þeir núna og hefur aldrei valdið neinum vandræðum.

Þegar Samtök iðnaðarins, Samtök verslunar og þjónustu, Samtök ferðaþjónustunnar, ASÍ og Samfylkingin skiluðu sameiginlegu áliti um að Ísland ætti að sækja um aðild að ESB skilaði Framsóknarflokkurinn séráliti og var helst á þeim að skilja að þeir væru með fyrir hádegi en á móti eftir hádegi.

Núna er helst að skilja á Sigmundi Davíð að Framsóknarflokkurinn muni greiða atkvæði á móti aðildarumsókn í þinginu af því að Samfylkinginn er með því.

Var ekki stundum sagt að Framsóknarmenn væru opnir í báða enda.

Niðurstaða kosninganna.

Fært af leifur undir Óflokkað. rita ummæli

Niðurstaða kosninganna var söguleg fyrir margra hluta sakir.

Samfylkingin háði mjög heiðarlega kosningabaráttu bætti við sig tveimur þingmönnum og endaði sem stærsti flokkurinn.

Vinstri grænir háðu sömuleiðis mjög heiðarlega kosningabaráttu unnu stórsigur bættu við sig fimm þingmönnum.

Samanlagt bættu flokkarnir við sig sjö þingmönnum fóru úr 27 þingmönnum í 34 þingmenn . Minnihlutastjórn varð að meirihlutastjórn í fyrsta sinn á Lýðveldisstímanum gerist það Sjálfstæðissflokkurinn og Framsókn geta ekki myndað meirihlutastjórn fá raunar bara 25 þingmenn og rétt um 39% fylgi. Ríkisstjórnarflokkarnir fengu um 52% fylgi.

Sjálfstæðisflokkurinn háði óvenju óheiðarlega kosningabaráttu Nixon aðferðinni var óspart beitt  skattatillögum logið upp á Vinstri Græna og Samfylkingu og annað í þeim dúr niðurstaðan sýnir sterkt siðferði kjósenda flokkurinn fékk sýna verstu niðurstöðu í sögunni 23% fylgi og 16 þingmenn.

Framsóknarflokkurinn beitti samblandi af Nixon og Göbbels aðferðinni réðst ítrekað með skítkasti að Samfylkingunni en beitti reyndar líka aðferð Göbbels (þú átt alltaf að miða áróðurinn við þá vitlausustu því þeir eru flestir) með 20% loforðinu.

Þetta er í fyrsta sinn í Stjórnmálasögu evrópu sem stjórnmálaflokkur gefur út kosningaloforð á kostnað erlendra kröfuhafa.

Flokkurinn fór úr 11.7% í 14.9% og bætti við sig 3.2% í síðustu kosningum galt flokkurinn afhroð þeir sem kusu hann þá hefðu sennilega kosið hann þó eingöngu Beljur hefðu verið á framboðslistunum.

Þeir heimskustu reyndust því eingöngu vera 3.2%. Þrátt fyrir að bæta við sig tveimur mönnum er flokkurinn ekki í þeirri oddaaðstöðu sem hann var og verður því væntanlega í Stjórnarandstöðu.

Borgarahreyfinginn náði glæsilegum árangri fékk fjóra þingmenn kosna og er full ástæða til að óska henni til hamingju með það. Kosningabarátta Borgarahreyfingarinnar var kurteis og málefnaleg.

Ótrúverðugur Vefþjóðvilji. 6. apríl 2009

Fært af leifur undir Óflokkað. rita ummæli

Vefþjóðviljinn er út á túni þegar hann gagnrýnir Jóhönnu Sigurðardóttur fyrir að vera ekki á leiðtogafundi Nato.

Ef Jóhanna hefði verið á fundinum hefðu Sjálfstæðismennirnir á Vefþjóðviljanum ráðist harkalega á hana fyrir að vera spóka sig í útlöndum á erfiðum tímun.

Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning