Myrti ólétta systur sína vegna ósiðlegs lífernis hennar
logicsociety 12. apríl 2009
Myrti ólétta systur sína
Jórdanskur karlmaður var í dag ákærður fyrir að myrða ólétta systur sína. Hann segist hana stungið hana til bana sökum ósiðlegs lífernis hennar.
Maðurinn, sem er 25 ára gamall, er ákærður fyrir að hafa stungið 28 ára gamla systur sína, sem var gift, í andlitið, magann og bakið áður en hann skar hana á háls. Því næst gaf hann sig fram á nálægri lögreglustöð og viðurkenndi ódæði sitt.
„Hann segist hafa myrt systur sína, sem ólétt var í fimmta mánuði, þar sem hún hafi sýnt af sér ósiðlegt athæfi,“ er haft eftir opinberum starfsmanni í Tafileh. Ekki reyndist unnt að fá nánari upplýsingar um málið frá hinu opinbera.
Ár hvert eru á bilinu 15-20 konur eru myrtar í Jórdaníu vegna þess að karlmenn í fjölskyldu kvennanna telja sig þurfa að verja heiður fjölskyldunnar. Á síðasta ári urðu fórnarlömb „heiðursmorða“ alls 17 konur.
Refsing við morði í Jórdaníu er dauðadómur, en morðingjar í hinum svonefndu „heiðursmorðum“ geta vænst mun vægari dóms fallist fjölskylda fórnarlambsins á að falla frá kæru sinni.
Morðingjar sem halda því fram að þeir hafi verið að verja heiður fjölskyldunnar fá oft mjög væga dóma sökum þess að að löggjafi landsins hefur neitað að endurskoða refsirammann og herða refsingar við „heiðursmorðum“ þrátt fyrir ákall þar um bæði frá alþjóðlegum mannréttindasamtökum og mannréttindafrömuðum sem starfa í landinu.
/mbl.is
.

15. apríl 2009 kl.
Það verður ekki séð að neitt dragi úr morðunum á kvenfólki í Mið-Austurlöndum eftir því sem árin líða.
Ástandið versnar þarna jafnt og þétt.