LOKSINS!!! Lausn á ICESAVE í sjónmáli!
logicsociety 14. janúar 2010
Lausn á Icesave deilunni er nú í sjónmáli.
Heyrst hefur að ríkisstjórnin hefur náð samkomulagi við stjórnarandstöðuna um endurgreiðslur vegna Icesave.
Þeir Íslendingar sem vilja borga mörg hundruð milljarða skuld Landsbankans vegna Icesave geta nú fengið að gera það.
Viðkomandi sem vill borga getur sótt um sérstakt eyðublað og fyllt það út.
Þar gefur hann upp hversu margar milljónir hann vill borga. Þeir sem ekki vilja borga þurfa þá ekki að gera það.
Þeir Íslendingar sem lýst hafa yfir vilja til að borga eru um 40% þjóðarinnar. Greiðslur frá þeim munu því ganga vel upp í kröfur Breta og Hollendinga.
Fylgjendur ríkisstjórnarflokkanna geta nú tekið gleði sína á ný og borgað með bros á vör.
.

14. janúar 2010 kl.
Húrra !
Þetta líst mér vel á
Þeir sem kjósa að borga …. BORGA !
En við hinir sem viljum ekki borga …. borgum ekki !
Snilld
Kv.
14. janúar 2010 kl.
Þetta er hrein snilld!
Hvað sgja þeir núna sem vilja borga þetta skuldaskrímsli?
15. janúar 2010 kl.
Þetta er flott lausn á málinu og allir geta verið sáttir. lol
15. janúar 2010 kl.
Það hlýtur að koma í hlut þeirra sem kusu þetta yfir okkur að borga.
Þeirra var valið á sínum tíma þegar einkavinavæðingin var kosin yfir okkur.
Sjálfstæðis og Framsóknarmenn borgi 95% og Samfylkingarfólk 5% fyrir að vera samsek